InnlentEmilía fæddist á 23. viku meðgöngu: „Það er svo mikið í tísku að styðja fóstureyðingarfrumvarpið“11. maí 2019 „Ég var bara að horfa á fréttirnar eins og aðrir og sá umræðu um fóstureyðingafrumvarpið. Í kjölfarið sendi ég Ingu Sæland myndirnar bara í gegnum tölvupóst,“ segir Guðrún Björg Brynjólfsdóttir, móðir Emilíu Rósar, fyrirburans sem Inga Sæland, formaður flokks fólksins, sendi myndir af á alla fjölmiðla um miðja síðustu viku.
Innlent„Þetta er grjóthart fag“10. maí 2019 Bylgja Kærnested, deildarstjóri hjúkrunar á hjartadeild Landspítala (LSH), segir að þörf á sérþekkingu hjúkrunarfræðinga hafi aldrei verið meiri og hvetur til þess að fagstéttin nýti fjórðu iðnbyltinguna til gera starf hjúkrunarfræðinga enn skilvirkara.
InnlentYfirlæknir segir Landspítala hafa tekið við slæmu búi krabbameinsleitar eftir einkarekstur9. maí 2019 Yfirlækni röntgendeildar Landspítalans segir af og frá að Landspítalinn beri ábyrgð lengri biðtíma vegna krabbameinsleit. Spítalinn hafi tekið við erfiðri stöðu eftir að einkaaðili hætti þjónustu.
InnlentÞungunarrofSegir þingið ræða áfengi í búðir „tímunum saman“ en keyra frumvarp um þungunarrof í gegn8. maí 2019 Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, segir velferðarnefnd hafa hafnað beiðni hans um að kalla landlækni fyrir nefndina vegna frumvarps um þungunarrof.
Innlent„Fólkið á biðlistum það getur ekkert beðið lengur. Þeirra þjáningum verður að linna“2. maí 2019 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, beindi fyrirspurn til fjármálaráðherra Bjarna Benediktssonar um hvort hann muni beita sér fyrir samningum við sjálfstætt starfandi heilbrigðisþjónustuaðila.
InnlentMunntóbaksnotkun ungra kvenna færist í vöxt28. apríl 2019 Sú ákvörðun að banna sölu fínkorna neftóbaks og munntóbaks var hluti af víðtækum tóbaksvarnarlögum sem samþykkt voru á Alþingi árið 1996.
InnlentHvert höggið á fætur öðru hefur dunið á Arion27. apríl 2019 Í hverju tölublaði tiltekur Mannlíf þá aðila sem átt hafa góða viku og slæma viku. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, er sigurvegari vikunnar á meðan hvert höggið á fætur öðru hefur dunið á Arion banka.
InnlentKosningaáróðurssíða úr dvala til að berjast fyrir einkarekstri í heilbrigðismálum23. apríl 2019 Facebook-síðan Kosningar er vöknuð úr dvala til að tala fyrir framkvæmd liðskiptaaðgerða á einkareknum stofum hér á landi.
InnlentMikilvægri nýrnaaðgerð á sjö mánaða gömlu barni ítrekað frestað sökum plássleysis17. apríl 2019 Sóllilja Ásgeirsdóttir, sjö mánaða stúlka sem fæddist með nýrnagalla vegna þrengingar í þvagleiðara, kemst ekki í aðgerð fyrr en í lok mánaðar sökum plássleysis á gjörgæslu Landspítalans. Vísir greinir frá.
InnlentFrú Ragnheiður ánægð með matargjafir17. apríl 2019 Skaðaminnkunarúrræðið Frú Ragnheiður fær reglulega matargjafir frá fólki og fyrirtækjum sem nýttar eru til handa umbjóðendum verkefnisins. „Einstaklingar hafa verið að koma með dýrindis mat úr veislum til okkar, eins og pönnukökur, flatkökur með hangikjöti, snittur og litla kökubita.“ segir í þakkarpóst frá verkefninu á Facebook til hinna gjafmildu aðila. Þá er að finna upplýsingar fyrir þá sem áhuga hafa á að aðstoða með matargjöfum.
InnlentBörnum á landsbyggðinni hafnað á grunni búsetu12. apríl 2019 Börn á landsbyggðinni með fjölþættan vanda, eins og þroska- og geðraskanir, einhverfurófseinkenni eða ADHD, þurfa í mörgum tilfellum að reiða sig á þjónustu hjá einkastofum með tilheyrandi kostnaði. Ástæðan er einföld: Opinbera heilbrigðiskerfið hefur ekki fjármagn eða mannafla til að veita börnum á landsbyggðinni sömu þjónustu og börnum sem búa nær þjónustukjörnunum.
InnlentDýrt að veikjast á Íslandi29. mars 2019 Sláandi munur er á kostnaði vegna krabbameinsmeðferða á Íslandi og í Skotlandi.Tvær íslenskar konur sem hafa sótt læknismeðferð vegna krabbameins annars vegar í Reykjavík og hins vegar í Edinborg greina frá þessu. Á meðan konan á Íslandi hefur orðið að greiða yfir 800 þúsund krónur, hefur sú í Skotlandi ekki þurft að bera neinn beinan kostnað af meðferðinni.