Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Emilía fæddist á 23. viku meðgöngu: „Það er svo mikið í tísku að styðja fóstureyðingarfrumvarpið“

„Ég var bara að horfa á frétt­irnar eins og aðrir og sá umræðu um fóst­ur­eyð­inga­frum­varpið. Í kjöl­farið sendi ég Ingu Sæland mynd­irnar bara í gegnum tölvu­póst,“ segir Guðrún Björg Brynj­ólfs­dóttir, móðir Emilíu Rósar, fyr­ir­burans sem Inga Sæland, for­maður flokks fólks­ins, sendi myndir af á alla fjöl­miðla um miðja síð­ustu viku.

Emilía fæddist á 23. viku meðgöngu: „Það er svo mikið í tísku að styðja fóstureyðingarfrumvarpið“
|Emilía Rós fædd­ist á 23. viku með­göngu og lifði af. Mynd: Úr safni fjölskyldu Emilíu|Emilía Rós fæddist á 23. viku meðgöngu og lifði af. Mynd: Úr safni fjölskyldu Emilíu|Emilía Rós fæddist á 23. viku meðgöngu og lifði af. Mynd: Úr safni fjölskyldu Emilíu|Emilía Rós fæddist á 23. viku meðgöngu og lifði af. Mynd:

Emelía Rós er dóttir Guðrúnar og Andra Viðars Víglunds­sonar en fyrir á Guðrún þau Díönu Sól, 16 ára, Kolfinnu Ósk, 12 ára, Sigurð Eystein, 9 ára, og Elínu Perlu, 6 ára. Emilía er 3 ára í dag.  Móðir hennar segir það sjást á skap­gerð hennar að hún hafi mátt berj­ast fyrir lífi sínu. Emiliía sé lífs­glöð og ákveðin.

Emilía Rós er í dag ham­ingju­söm og heil­brigð.

„Glöð og ánægð með lífið“

Inga sendi myndir af Emilíu Rós á fjöl­miðla lands­ins síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. „Vegna fóst­ur­eyð­ing­ar­frum­varps­ins sem nú býður atkvæða­greiðslu Alþingis, sendi ég ykkur þessar myndir með vit­und og vilja for­eldra þess­arar litlu stúlku,“ sagði í tölvu­pósti for­manns flokks­ins. Nánari skýr­ingu var ekki að finna á send­ing­unni. Í bréf­inu mátti þó sjá skila­boð Guðrúnar til Ingu. „Í dag er hún full­kom­lega heil­brigð og bráðum 4 ára. Hún á heima á Hlíð­ar­vegi á Ólafs­firði og er glöð og ánægð með lífið,“ skrif­aði Guðrún.

„Emilía er yngsti fyr­ir­buri á Íslandi sem hefur lifað af. Mín reynsla, ég er ekki líf­fræð­ingur, læknir eða neitt slíkt, ég er bara mamma fyr­ir­bura. Ég hef séð svona lítið barn. Barnið er orðið mann­eskja. Hún gat lifað þetta af og lifir góðu lífi í dag. Mér finnst ekki rétt að leyfa fóst­ur­eyð­ingar út 22. viku,“ segir Guðrún um hvers vegna hún vill að fólk viti um Emilíu.

Emilía Rós fædd­ist á 23. viku með­göngu og lifði af.

Verðum að horfast í augu við siðferðisspurningar

Guðrún vill að fólk viti af til­vist Emilíu og að mynd­irnar séu birtar. Hún segir ein­fald­lega verða að ræða mörk þess hvort um sé að ræða fóstur eða barn sem getur lifað utan móð­ur­kvið. „Ég vil að fólk sjái Emilíu og að mynd­irnar séu birtar.“ Fæðinga- og kven­sjúk­dóma­læknir á Land­spít­al­anum sagði á fimmtu­dag, í sam­tali við Vísi, að útspil Ingu sé ósmekk­legt.

Guðrún seg­ist hissa á því að eng­inn stærri fjöl­mið­ill hafi birt mynd­irnar og er ósam­mála um að þetta komi umræðu um frum­varpið ekki við. „Það er svo mikið í tísku að styðja fóst­ur­eyð­ing­ar­frum­varpið. Það á að kýla þetta í gegn og gera þetta að lögum. Það er umræðan ein­hvern veg­inn og allar sið­ferð­is­legar umræður um rétt­indi barns­ins eru afgreiddar sem íhalds­semi. Það vilja allir þetta fari í gegn,“ segir Guðrún. „Fólk þorir ekki að ræða þetta út frá trú­málum. Maður heyrir það alveg. Sama á við um sið­ferð­is­legar spurn­ingar eins og hvenær verður fóstur að barni.“

Emilía Rós fædd­ist á 23. viku með­göngu og lifði af.

– Telur þú rétt að þung­un­ar­rof sé val móð­ur­innar? „Já, það velja allir bara fyrir sig. Ég ætla ekki að vera dóm­ari í málum ann­arra kvenna. Ég er að koma samt fram með Emilíu. Hún er fædd 23. viku. Mér finnst það voða­lega skrítið að það megi fóst­ur­eyða á 22. viku.“

Kemur mál­inu við að mati Guðrúnar
„Auðvitað kemur yngsti fyr­ir­buri sem lifað hefur af á Íslandi umræð­unni við. Hún fæð­ist nokkrum dögum eftir að heim­ild til fóst­ur­eyð­ingar stoppar sam­kvæmt þessu nýja frum­varpi. Frum­varpið kemur öllum börnum við. Emilía var með allt þegar hún fædd­ist; heila, fingur, tær. Hún þurfti bara færi á að vaxa. Mér finnst það bara alveg koma mál­inu við hvernig barn lítur út á þessum tíma sem verið er að ræða. Það er ekki í tísku að ræða málið út frá sið­ferð­is­spurn­ingum. Það er víst svo íhalds­samt.“

Emilía Rós fædd­ist á 23. viku með­göngu og lifði af.

Gildandi lög skilyrða eyðingu fósturs

Þung­un­ar­rof heim­ilt fram að 22. viku í dag en skil­yrðum háð
Gildandi lög­gjöf heim­ilar þung­un­ar­rof á 22. viku en með ákveðnum tak­mörk­unum. Samkvæmt gild­andi lögum má ekki eyða fóstri eftir 16. viku þung­unar „nema fyrir hendi séu ótví­ræðar lækn­is­fræði­legar ástæður og lífi og heilsu kon­unnar stefnt í því meiri hættu með lengri með­göngu og/eða fæð­ingu.“ Und­an­þágur á sam­kvæmt lögum að sækja til nefndar land­læknis sem skipa skal lækni, lög­fræð­ing og félags­ráð­gjafa. „Fóst­ur­eyð­ing skal aldrei fram­kvæmd eftir 16. viku með­göngu­tím­ans, nema fyrir hendi séu ótví­ræðar lækn­is­fræði­legar ástæður og lífi og heilsu kon­unnar stefnt í því meiri hættu með lengri með­göngu og/eða fæð­ingu. Einnig skal fóst­ur­eyð­ing leyfi­leg eftir 16 vikur, séu miklar líkur á van­sköpun, erfða­göllum eða sköddun fóst­urs,“ segir í lög­unum.

Emilía Rós fædd­ist á 23. viku með­göngu og lifði af.

– Getur verið að ástæða þess að umræðan er ekki á þeim stað sem þú óskar sé sú að í raun er aðeins verið að færa ákvarð­ana­rétt­inn til kon­unnar? Í raun er ekki verið að lengja tím­ann sem eyð­ing fóst­urs er heimil. „Í núver­andi lögum er samt ákveð­inn sið­ferð­is­þrösk­uldur. Það er aðgrein­ing á því að eyða fóstri fyrstu 16 vik­urnar og svo síðar. Skila­boðin eru að við eigum að halda okkur innan ákveð­ins ramma en svo koma til­vik þar sem rétt­mætt er að fara yfir þann ramma. Það er ákveð­inn ‘filter’ og við­ur­kenn­ing á stigs­mun­inum að þurfa að ræða við félags­ráð­gjafa um þessa stóru ákvörðun. Heimild er alltaf veitt. Mér finnst samt að við eigum að halda í þennan ramma og stuðn­ing­inn sem kemur á síð­ari vikum. Ég veit alveg að það er alltaf sagt já við eyð­ingu. Hvers vegna ekki að halda í þann ramma?“ spyr Guðrún.

Barnið eigi tals­mann í gild­andi lögum
„Með núgild­andi lögum er verið að segja að barnið eigi kannski ein­hvern smá rétt sem er ræddur við kon­una,“ segir Guðrún og bendir á að hér sem um að ræða tíma­bil þar sem lífslíkur aukast hratt. Það þurfi því að velta því fyrir sér hvort um sé að ræða barn eða fóstur. – Áttu við að núver­andi kerfi sé þannig að hið ófædda barn eigi tals­mann? „Já, í raun­inni. Fólk er alls­konar og með þessu er verið að útskýra fyrir móð­ur­inn hvað fellst í þess­ari ákvörðun. Það er félags­ráð­gjafi, læknir og lög­fræð­ingur þarna. Þetta er bara við­ur­kenn­ing á því að munur sé á lífslíkum fóst­urs­ins fyrir 16 viku og eftir.“ – Hvað áttu við? „Ég hef eign­ast barn á 23. viku. Ef hún hefði fæðst sól­ar­hring áður hefði hún fæðst á 22. viku. Þetta er spurn­ing um nokkra klukku­tíma og þá hefði mátt eyða henni. Það þarf líka að ræða hvenær barn eigi rétt á að lifa. Hvenær um er að ræða full­burða ein­stak­ling sem hugað er líf utan móð­ur­kvið. Þegar við erum á þeim mörkum þá finnst mér svo­lítið mikið að fara í fóst­ur­eyð­ingu. Auðvitað miðar þessi skoðun við mína lífs­reynslu en þess vegna er mik­il­vægt að við ræðum þessa hluti líka.“

End­ur­skoðun staðið yfir frá 2016
Kristján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, skip­aði í mars 2016 nefnd sem ætlað var að vinna að heild­ar­end­ur­skoðun laga nr. 25/1995, um ráð­gjöf og fræðslu varð­andi kyn­líf og barn­eignir og um fóst­ur­eyð­ingar og ófrjó­sem­is­að­gerðir. Nefndin skil­aði ráð­herra skýrslu í nóv­em­ber 2016 og lagði m.a. til að lög­unum yrði skipt upp.

Meg­in­til­laga nefnd­ar­innar var að gera ætti breyt­ingar á lög­gjöf­inni þannig að lög tryggðu sjálfs­for­ræði og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt kvenna yfir eigin lík­ama. Með það að leið­ar­ljósi lagði nefndin til að þung­un­ar­rof yrði gert frjálst að beiðni konu fram að lokum 22. viku þung­unar. Nefndin lagði einnig til að orða­notkun yrði breytt og orðið þung­un­ar­rof yrði notað í nýrri lög­gjöf. „Þung­un­ar­rof er heiti yfir það þegar rof er gert á þungun konu að hennar beiðni, ann­að­hvort með lækn­is­að­gerð eða lyfja­gjöf. Hingað til hefur umrædd lækn­is­að­gerð verið kölluð fóst­ur­eyð­ing í lögum, en nú er lagt til að þeirri orða­notkun verði hætt og hug­takið þung­un­ar­rof komi í þess stað. Hugtakið fóst­ur­eyð­ing hefur verið talið gild­is­hlaðið og sam­bæri­leg orða­notkun þekk­ist ekki í nágranna­löndum okkar,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra og þing­kona VG, við kynn­ingu frum­varps­ins.

Fóst­ur­eyð­ingar voru fyrst heim­ilar með lögum árið 1935. Áður giltu ákvæði hegn­ing­ar­laga frá 1869 sem bönn­uðu fóst­ur­eyð­ingar alfarið. Við­ur­lögin voru allt að átta ár í hegn­ing­ar­vinnu. „Einu gilti þótt lífi eða heilsu konu væri stefnt í hættu með áfram­hald­andi með­göngu eða fæð­ingu og sam­kvæmt lögum voru hendur lækna bundnar. Þeim var óheim­ilt að hjálpa konum við þessar aðstæður. Ljóst er að farið var í kringum lögin á þeim tíma og þau brotin,“ sagði heil­brigð­is­ráð­herra við kynn­ingu frum­varps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina