Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Börnum á landsbyggðinni hafnað á grunni búsetu

Börn á lands­byggð­inni með fjöl­þættan vanda, eins og þroska- og geð­rask­anir, ein­hverfu­rófsein­kenni eða ADHD, þurfa í mörgum til­fellum að reiða sig á þjón­ustu hjá einka­stofum með til­heyr­andi kostn­aði. Ástæðan er ein­föld: Opinbera heil­brigð­is­kerfið hefur ekki fjár­magn eða mann­afla til að veita börnum á lands­byggð­inni sömu þjón­ustu og börnum sem búa nær þjón­ustu­kjörn­unum.

Börnum á landsbyggðinni hafnað á grunni búsetu
Ingunn Bylgja Ein­ars­dóttir

Ingunn Bylgja Ein­ars­dóttir, búsett á Egils­stöðum, hefur lengi barist við kerfið til þess að fá við­eig­andi úrræði fyrir tvö börn sín. Hún skrif­aði nýlega pistil og birti á Facebook þar sem hún gagn­rýnir opin­bera kerfið harð­lega og lýsir þrauta­göngu sinni við að koma barn­inu í grein­ing­ar­ferli hjá BUG á Akureyri. Henni var ítrekað synjað í 6-7 ár.

Konan leit­aði að lokum til sál­fræði- og lækn­is­þjón­ust­unnar Sólar í Reykja­vík þar sem hún borg­aði háar fjár­hæðir fyrir. Þar hafi hún fengið skjóta og góða þjón­ustu og við­eig­andi grein­ingar en tekur fram að ekki allir for­eldrar séu í þeirri aðstöðu að geta greitt fyrir slíka þjón­ustu.

„Ég hringdi í yfir­sál­fræð­ing BUG í dag og þakk­aði henni fyrir ítrek­aða höfnun í sex eða sjö ár.“

„Ég hringdi í yfir­sál­fræð­ing BUG í dag og þakk­aði henni fyrir ítrek­aða höfnun í sex eða sjö ár. Sagði henni frá grein­ingum frá SÓL og spurði hana hvað henni fynd­ist um að loks­ins hefðum við fengið hjálp, loks­ins löngu seinna gætu drengirnir okkar notið lífs­ins, staðið sig vel í skóla og í raun væri lífi þeirra mögu­lega loks­ins borgið og þeir gætu náð góðum árangri félags­lega og náms­lega,“ skrifar Ingunn.

Hún segir jafn­framt frá því að skýr­ing­arnar sem hún hafi fengið hefðu verið á þá leið að börnum á Aust­ur­landi sé frekar hafnað um þjón­ustu en börnum í nágrenni Akur­eyrar vegna þess að ekki sé til fjár­magn til að senda sér­fræð­inga austur til að fylgj­ast með börnum í leik og starfi, en slíkt sé for­senda fyrir nákvæmu grein­ing­ar­ferli.

Ingunn leggur þó áherslu á að félags­þjón­ustan á staðnum og starfs­fólk skól­ans sem börnin sækja hafi staðið sig óað­finn­an­lega þrátt fyrir að fá ekki auka­fjár­magn til að takast á við vand­ann og hafi lagt á sig ómæl­an­lega vinnu.

Enginn barnageðlæknir á Austurlandi

Ruth Magn­ús­dóttir, skóla­stjóri Egils­staða­skóla, segir í sam­tali við Mannlíf að þörf sé á betri úrræðum í heil­brigð­is­kerf­inu fyrir börn á lands­byggð­inni með fjöl­þættan vanda. „Við erum með skóla­þjón­ustu þar sem börn fara í frum­grein­ingu ef við teljum að um sé að ræða ein­hverjar rask­anir og í kjöl­farið er for­eldrum bent á að fara með málið áfram þó að það sé alls ekki ein­falt,“ segir hún og leggur áherslu á að sár­lega vanti barna­geð­lækni sem þjón­usti Aust­ur­land.

„Hjá okkur er um 12 mán­aða bið eftir frum­grein­ingu, þar sem barn fær m.a. þroska­mat. Ef talið er að um ein­hverfu­rófs­röskun sé að ræða er barn­inu vísað á Grein­ing­ar­stöð og þá tekur aftur við 12-14 mán­aða bið. Þannig að við erum að tala um allt að tveggja ára bið eftir að óskað hefur verið eftir þjón­ust­unni,“ útskýrir hún.

Ef grunur er um ADHD er for­eldrum bent á að fá tíma hjá barna­geð­lækni. „Það sár­vantar betra aðgengi að þeirri þjón­ustu hér.“

Mannlíf hefur haft af því spurnir að þegar barna­geð­læknir lét af störfum á Sjúkra­hús­inu á Akureyri hafi orðið miklar rask­anir á þjón­ustu.

Ruth tekur fram að dæmi séu um að börn hafi farið á BUGL eða BUG á Akureyri og verið undir hand­leiðslu geð­læknis þar. „Þá höfum við yfir­leitt fengið sam­starf og eft­ir­fylgni, sem hefur hjálpað og sem þarf að vera.“

Sál­fræð­ingur sem Mannlíf ræddi við og starfar á Norð­aust­ur­landi tekur undir að oft sé mjög erfitt að koma börnum á land­byggð­inni að í sér­úr­ræði. Sama gildi um full­orðna ein­stak­linga sem þurfi mikla aðstoð og tók dæmi um skjól­stæð­ing sem hann mat þannig að þyrfti mun meiri aðstoð en hann gat sjálfur veitt skjól­stæð­ingnum. Hann reyndi að vísa honum inn í teymi á geð­deild­inni á Akureyri en fékk höfnun. Vandinn þótti ekki nægi­lega mik­ill. Eins nefnir hann að það geti verið heil­mikið „vesen“ fyrir fólk að ná í end­ur­greiðslur vegna akst­urs og ferða. „Þeir eru ekki með nein útibú á lands­byggð­inni, við þurfum alltaf að fara til þeirra,“ segir hann.

BUG-teymið á Akureyri tók á móti fyr­ir­spurn frá Mannlífi um málið en svar hafði ekki borist áður en blaðið fór í prentun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ