MannlífiðMæðradagsblómið 2020 – Vel valin skilaboð sem koma í ljós þegar kertin eru brennd5. maí 2020 Annan sunnudag í maí er mæðradagurinn haldinn hátíðlegur á Íslandi og víðar og ber hann upp á 10. maí þetta árið. Sala á Mæðradagsblóminu 2020 er hafin en Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður hannaði kerti sem er mæðradagsblómið í ár.
MannlífiðEldhúsáhöld sem færa þér vorið3. maí 2020 Danska hönnunarfyrirtækið Spring Copenhagen er þekkt fyrir skemmtilega hönnun sína á alls kyns skrautmunum fyrir heimilið ásamt líflegum áhöldum og aukahlutum fyrir eldhúsið þar sem leikgleði og húmor eru í aðalhlutverki.
MannlífiðKomdu skipulagi á heimilið með Kristina Dam Studio2. maí 2020 Danski hönnuðurinn Kristina Dam er mörgum kunn. Einfaldleiki, fágun og notagildi eru einkunnarorð hennar og samstarfsfólksins hjá Kristina Dam Studio. Geymsluboxin frá hönnunarstofunni eru tilvalin til þess að koma góðu skipulagi á heimilið en þau eru í senn falleg og nýtast afskaplega vel.
MannlífiðCarl Hansen & Søn í samstarfi við Ilse Crawford29. apríl 2020 Í tilefni afmælis Hans J. Wegner hefur danski húsgagnaframleiðandann Carl Hansen & Søn sett á markað sérstaka afmælisútgáfu af Wishbone-stólnum til þess að heiðra minningu hans. Nú fer hver að verða síðastur að ná sér í þennan glæsilega stól.
MannlífiðSkúlptúr sem skírskotun til framtíðar27. apríl 2020 Verner Panton þekkja flestir en hann var fæddur í Danmörku árið 1926 og er hans oft minnst sem eins áhrifamesta hönnuðar tuttugustu aldarinnar. Panton var menntaður arkitekt og útskrifaðist hann frá konunglegu listaakademíunni í Kaupmannahöfn árið 1951.
MannlífiðNáttúrulegt og notalegt26. apríl 2020 Náttúran er rauði þráðurinn í gegnum tískustrauma í ár, líka þegar kemur að litum. Allt frá dempuðum grænum og gráum tónum yfir í djúpan bláan lit. Jarðlitatónar á borð við gulbrúnan, brúnan, rústrauðan yfir í muskutóna verða einnig áberandi. Þessi litapalletta minnir okkur á veðurfarið og þróun litaumhverfis okkar hvort sem það er í innanhússhönnun, arkitektúr eða á tískupöllunum. Í...
MannlífiðDrifin áfram af innri þrá23. apríl 2020 María Þorleifsdóttir er menntaður félagsráðgjafi frá Óslóarháskóla og útskrifaðist þaðan árið 1981 og hefur starfað sem slíkur síðan en þó með nokkrum hléum. Samhliða því starfi hefur hún sótt fjöldann allan af myndlistarnámskeiðum, bæði hér heima og erlendis. Veturinn 2004-2005 stundaði hún nám við hönnunarbraut Iðnskólans í Reykjavík. Árið 2007 fékk hún inngöngu í Kunsthøjskolen í Sønderborg í Danmörku þar sem hún lærði í eitt ár.
MannlífiðUppskriftir að fallegu heimili22. apríl 2020 Farrow & Ball er málningarfyrirtæki sem stofnað var árið 1946 í Dorset á Englandi en forsprakkar fyrirtækisins voru John Farrow og Richard Ball. Fyrirtækið á sér langa sögu og hefur meðal annars gefið út skemmtilegar bækur sem innihalda ýmsan fróðleik um liti og val á þeim.
MannlífiðHandgerð ilmkerti í keramikglösum20. apríl 2020 Ilmkertin frá Night Space eru handunninn, vegan og gerð úr náttúrulegu soya og kókosvaxi. Eitt þeirra er unnið út frá innblæstri sem hönnuðirnir fengu á ferð sinni um Ísland. Þar er blandað saman steinefnum, dalalilju og ilmi af söltuðu vatni. Kertin koma í keramikglösum með loki og eru þau handgerð í Portúgal en tilvalið er að endurnýta glösin þegar kertin...
MannlífiðLitur getur gjörbreytt rými19. apríl 2020 Nú er um að gera að nýta tækifærið í allri þessari inniveru og dytta að heimilinu. Margir hafa nýtt samkomubannið til góðra verka, eins og að þrífa, taka til, já, og mála en þeim sem vilja vera með puttann á púlsinum í þeim efnum er bent á að heitasti liturinn um þessar mundir er klassískur blár. Litur ársins samkvæmt litafyrirtækinu...
MannlífiðBrostu með Fritz Hansen13. apríl 2020 Nýr snagi frá Fritz Hansen sem nefnist „Happy Hook“ er væntanlegur í verslanir þann 4. maí nk.
MannlífiðLeiðir til að einfalda lífið og endurskipuleggja heimilið12. apríl 2020 Í samkomubanninu felast svo sannarlega tækifæri en á tímum sem þessum er tilvalið að líta inn á við. Endurskipulagning heimilisins er eitthvað sem margir hafa látið sitja á hakanum en nú er tíminn!