MannlífiðGengið með Guðjóni Samúelssyni – tilvalin afþreying um páskana fyrir alla fjölskylduna12. apríl 2020 Margir kjósa að nýta páskafríið til útivistar. Á dögunum var settur á laggirnar ratleikur þar sem þátttakendum gefst kostur á að njóta útiveru og íslensks menningararfs á sama tíma. Nemendur í Hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands bjuggu til leikinn í haust í námskeiðinu leikjavæðing og menningararfur. Leikurinn er tilvalin afþreying fyrir alla fjölskylduna. Hallgrímskirkja er eitt þekktasta verk Guðjóns og...
MannlífiðLjósaskúlptúrar Isamu Noguchi fyrir Vitra slá öllu við10. apríl 2020 Svið listamannsins og hönnuðarins Isamu Noguchi (1904-1988) er óvenju margþætt. Auk skúlptúra hefur hann einnig hannað húsgögn, lýsingu, innréttingar, sviðsmynd, útihús og garða. Sem myndhöggvari var áhugi hans ekki eingöngu bundinn við efni og form heldur náði hann einnig til rýmis- og innanhússhönnunar. Myndband
MannlífiðTom Dixon hannar vörulínu úr korki10. apríl 2020 Breski hönnuðurinn Tom Dixon hefur sett á markað röð húsgagna úr korki. Línan inniheldur hillur, stól og þrjú borð. Húsgögnin hafa ávalar línur og fær korkurinn að njóta sín en húsgögnin koma í djúpbrúnum lit.
MannlífiðMálverk með fallega sögu í miklu uppáhaldi7. apríl 2020 Á fallegu heimili í Bryggjuhverfinu í Reykjavík býr Karólína Porter innanhússarkitekt. Í nýjasta Hús og híbýli kíkjum við í heimsókn til Karólínu. Hún segir lesendum söguna um af hverju hún seldi öll málverkin sín sem hún hafði safnað frá því hún var ung. Öll málverkin voru seld, líka uppáhaldsverkið hennar sem hún keypti af Tolla aðeins 23 ára gömul eftir...
MannlífiðFágað frá Menu30. mars 2020 Androgyne-sófaborðið er nýtt úr smiðju danska fyrirtækisins Menu, hannað af norska arkitektinum og hönnuðinum Danielle Siggerud. Borðið var upphaflega gert fyrir Menu Space-kaffihúsið en fór fljótlega á almennan markað.
MannlífiðRitstjórn Húsa og híbýla mælir með…28. mars 2020 Fimm fallegar Instagramsíður sem stytta stundir og veita innblástur.
MannlífiðSymphony-lína Bjørns Wiinblad26. mars 2020 Bjørn Wiinblad var listamaður með mörg járn í eldinum, hann var afar afkastamikill og starfaði einnig sem leikmyndahönnuður. Þegar Bjørn Wiinblad lést árið 2006 skildi hann eftir sig yfirgripsmikið safn teikninga sem unnið er eftir í dag.
MannlífiðFimm leiðir til að auka vellíðan heimavið25. mars 2020 Nú þegar flestir dvelja heima við eru margir farnir að huga að því hvernig hægt er að breyta og bæta heimilið og gera það huggulegra en áður. Ekki er alltaf nauðsynlegt að fara í stórvægilegar breytingar en hér eru nokkur lítil atriði sem geta skipt sköpum.
Mannlífið„Mönnunum sem komu að teppaleggja fannst í upphafi verks stórskrítið að teppaleggja vegginn“24. mars 2020 Hjónin og arkitektarnir Ellert Hreinsson og Rebekka Pétursdóttir taka vel á móti okkur á fallegu heimili í Kópavogi en þar búa þau ásamt börnum sínum þremur, tvíburunum Bergi og Eik og eldri systur þeirra, Agnesi Ösp. Húsið er byggt árið 1965, er 214 fermetrar að stærð og teiknað af Sigvalda Thordarson arkitekt. Það fyrsta sem grípur auga blaðamanns þegar inn...
MannlífiðÝmsar einfaldar og sniðugar leiðir til að bæta heimilið21. mars 2020 Sandra Dís Sigurðardóttir er menntaður innanhússarkitekt og lýsingarhönnuður. Síðustu ár hefur hún aðallega starfað við lýsingarhönnun en á síðasta ári fór hún út í sjálfstæðan rekstur og starfar nú bæði sem innanhússarkitekt og lýsingarhönnuður. Hér gefur hún lesenum nokkur góð ráð.
MannlífiðDZEK – samspil handverks og iðnaðar13. mars 2020 Hönnunarfyrirtækið Dzek var stofnað af Brent Dzekciorius árið 2013. Markmið Dzek er að hanna vörur með listræna þýðingu og sameinar fyrirtækið næmni handverks og iðnaðar.
MannlífiðVatnslitaheimur Mats Gustafsonar til sýnis í Listasafni Íslands9. mars 2020 Mats Gustafson er sænskur listamaður, búsettur í New York. Vatnslitamyndir eru hans aðalsmerki og á áttunda áratugnum hóf hann að vinna myndir fyrir tískuheiminn. Verk hans eru fáguð og fíngerð þar sem hver pensilstroka hefur sérstaka merkingu. Listamaðurinn fer á milli tískuheimsins og náttúrunnar og fangar myndefnið með einstökum hætti. Listasafn Íslands sýnir nú öll þekktustu verk Mats sem hann...