Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fimm leiðir til að auka vellíðan heimavið

Nú þegar flestir dvelja heima við eru margir farnir að huga að því hvernig hægt er að breyta og bæta heim­ilið og gera það huggu­legra en áður. Ekki er alltaf nauð­syn­legt að fara í stór­vægi­legar breyt­ingar en hér eru nokkur lítil atriði sem geta skipt sköpum.

Fimm leiðir til að auka vellíðan heimavið

Góður ilmur

Upplifun okkar á rýmum ein­skorð­ast ekki aðeins við hið sjón­ræna. Hljóð og lykt skiptir einnig miklu máli og eru minn­ingar okkar margar hverjar tengdar lykt. Ilmkerti og ilmol­íu­lampar með hreinum ilm­kjarna­ol­íum geta bætt and­lega heilsu og gert and­rúms­loftið á heim­il­inu betra.

Góður ilmur gefur réttu stemn­ing­una. Þessi fal­legu ilm­kerti frá Night Space fást í Stef­áns­búð/p3.

Litríkur textíll

Litir eru vel til þess fallnir að lífga upp á til­ver­una. Fallegir púðar og teppi í upp­á­halds­lit­unum þínum geta sann­ar­lega bætt and­ann. Efn­isvalið skiptir hér öllu máli en nátt­úr­leg efni geta gefið rým­inu meiri dýpt og gert stemn­ing­una enn betri.

Textíll úr nátt­úru­legum efnum gefur rým­inu meiri dýpt.

Blóm og pottaplöntur

Ef ein­hvern tím­ann er rétti tím­inn til að kaupa blóm og potta­plöntur inn á heim­ilið þá er það núna. Að færa nátt­úr­una inn á heim­ilið gefur góða raun en fjölda margar rann­sóknir benda til þess að blóm og plöntur hafi róandi áhrif og bæti loft­gæði. Prófaðu líka að setja afskorin blóm í lít­inn vasa á nátt­borðið. Það er gott og hressandi að byrja dag­inn á að sjá fal­leg blóm og nota­legt að enda hann á þeim nótum líka. Já, blóm geta svo sann­ar­lega gert krafta­verk!

Blóm á nátt­borðið lífga svo sann­ar­lega upp á til­ver­una. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Röð og regla

Reyndu eftir fremsta megni að hafa heim­ilið í röð og reglu. Þegar aðrir álags­þættir vega þungt líkt og á tímum sem þessum skiptir gríð­ar­legu máli að skipu­lag heim­il­is­ins sé gott. Nýttu tím­ann til að grisja og gefðu frá þér hluti sem þú notar ekki lengur. Ofhlaðin rými geta skapað streitu og látið okkur líða eins og við höfum litla sem enga stjórn á hlut­unum. Taktu líka til í skápum og skúffum og komdu skipu­lag­inu í lag þar og umgengnin á heim­il­inu verður auð­veld­ari. Síðast en ekki síst: Komdu þér upp góðri rútínu. Það skiptir máli að byrja dag­inn vel. Litlir hlutir eins og að búa alltaf um rúmið á morgn­ana setur tón­inn fyrir dag­inn. Röð og regla gerir verk­efni dags­ins auð­veld­ari að fást við.

Að búa um rúmið er góður vani sem setur tón­inn fyrir dag­inn.

Loftaðu út

Ein helsta ástæða myglu­vanda er of lítil loftun. Líkleg skýr­ing er að margir eru fjarri heim­ilum sínum stóran hluta dags­ins við vinnu og í skóla og loka gluggum áður en farið er út af heim­il­inu. Nú þegar flestir eru heima er gott að nýta tæk­færið og venja sig á að lofta vel út en nauð­syn­legt er að hreyf­ing kom­ist á loftið til að hindra óæski­lega raka­söfnun. Í húsum þar sem er gólf­hiti er sér­lega mik­il­vægt að reglu­leg hreyf­ing sé á loft­inu en einnig er gott fyrir and­lega og lík­am­lega líðan að opna reglu­lega út og hleypa fersku lofti inn en staðið loft getur aukið slen.

Það er fátt eins mik­il­vægt og góð loftun á heim­il­inu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni