
Happy Hook er eftir Jaime Hayon. Mynd/Fritz Hansen
Snaginn er hannaður af spænska hönnuðinum Jaime Hayon og er tilvalinn í hvaða rými sem er fyrir yfirhafnir, annan fatnað, svuntuna í eldhúsinu eða hvað sem fólki dettur í hug. Hugmyndin að baki hönnuninni er sú að færa gleði og húmor inn á heimilið og hentar snaginn fyrir alla aldurshópa, börn jafnt sem fullorðna.

Snaginn er fáanlegur í fölbleikum lit. Mynd/Fritz Hansen

Snaginn fæst í grágrænum litatóni. Mynd/Fritz Hansen
Snaginn er svo sannarlega upplífgandi og því sérstaklega hentugur á tímum sem þessum. Hann kemur í þremur litum, bleikum, grængráum og dökkum túrkíslit og er hann framleiddur úr duftlökkuðu stáli. Epal er söluaðili Fritz Hansen á Íslandi.

Hér sjást mál snagans. Mynd/Fritz Hansen































Athugasemdir