Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Skúlptúr sem skírskotun til framtíðar

Verner Panton þekkja flestir en hann var fæddur í Danmörku árið 1926 og er hans oft minnst sem eins áhrifa­mesta hönn­uðar tutt­ug­ustu ald­ar­innar. Panton var mennt­aður arki­tekt og útskrif­að­ist hann frá kon­ung­legu lista­aka­dem­í­unni í Kaup­manna­höfn árið 1951.

Skúlptúr sem skírskotun til framtíðar

Honum þótti fátt skemmti­legra en að gera til­raunir og nýta áður óþekkt efni í hönnun sína. Panton sagði sjálfur að meg­in­til­gangur hönn­unar hans væri að hvetja fólk til að nota ímynd­un­ar­aflið í rík­ari mæli. Með því væri hægt að skynja heim­inn á nýjan hátt og hvers­dags­lífið yrði þar af leið­andi meira spenn­andi og not­aði hann mark­visst form og sterka liti til þess að ögra ímynd­un­ar­afl­inu.

Panton gerði margar merki­legar til­raunir yfir starfsævi sína. Mynd/Louis Poulsen
Globe-ljósið kom fyrst á markað árið 1969. Mynd/Louis Poulsen

Globe-ljósið eftir Panton kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið árið 1969. Ljósið þótti afar fram­úr­stefnu­legt, ekki ein­ungis hvað form varðar heldur einnig varð­andi efn­is­val og sam­setn­ingu. Á þeim tíma sem Panton hann­aði ljósið var áhugi almenn­ings á geimnum gríð­ar­legur sem hönn­uðir keppt­ust síðan við að fanga en sama ár og Globe-ljósið kom til sög­unnar lenti Apollo 11 á Tunglinu.

Notkun á plast­efnum þótti spenn­andi á sjö­unda ára­tugnum og voru alls kyns plast­hús­gögn vin­sæl. Upp­haf­lega var Globe-ljósið búið til úr gagn­sæju akrýl-plast­efni (PMMA) sem við þekkjum betur undir heit­inu plexí­gler.

Ljósið er fáan­legt í mis­mun­andi útgáfum. Hér er kjarn­inn gerður úr ópal­gleri. Mynd/Louis Poulsen

Kjarninn er gerður úr króm­uðu og lökk­uðu áli sem end­ur­kastar ljós­inu og dreifir því um rýmið sem það er stað­sett í. Þrjár stál­keðjur binda svo kjarn­ann saman. Form ljóss­ins minnir óneit­an­lega á hnött eða ein­hvers konar atóm með kjarna og er það skírskotun til fram­tíð­ar­innar og þeirrar sýnar sem almenn­ingur hafði á hinni tækni­legu fram­tíð sem við þeim blasti seint á sjö­unda ára­tugnum.

Ljósið er ekki ein­ungis birtu­gjafi heldur líka skúlp­túr sem nýtur sín jafn­vel þegar slökkt er á ljós­inu. Ljósið fæst enn þann dag í dag og er hvert og eitt hand­gert í Danmörku og kemur nú í hinum ýmsu lita­sam­setn­ingum en einnig með kjarna úr ópal­gleri eða brassi í stað áls.

Ljósið er nokk­urs konar skúlp­túr sem nýtur sín einnig vel þegar slökkt er á því. Mynd/Louis Poulsen
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni