InnlentGuðmundur Franklín sannfærður um sigur17. júní 2020 Þrátt fyrir að skoðanakannanir gefi til kynna að Guðni Th. Jóhannesson, sitjandi forseti, vinni stórsigur í komandi forsetakosningum er forsetframbjóðandinn Guðmundur Franklín Jónsson sannfærður um að hann muni sigra. „Ég fer aldrei aftur í forsetaframboð, en ef þjóðin vill sama mann þá segi ég bara guð blessi Ísland. Ég mun hins vegar vinna kosningarnar.“ Þetta segir Guðmundur Franklín Jónsson í...
InnlentCovid-19Alma, Víðir og Þórólfur fengu fálkaorðuna17. júní 2020 Alma D. Möller landlæknir, Víði Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fengu í dag afhentan riddarakross fyrir störf sín í þágu heilbrigðismála og framlag í baráttu við Covid-19 farasóttina. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sæmdi þríeykið, eins og Alma, Víðir og Þórólfur eru gjarnan kölluð í daglegu tali, heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðleg athöfn á Bessastöðum....
InnlentCovid-19Vildi ekki setja upp grímu á Keflavíkurflugvelli17. júní 2020 Lögregla þurfti að hafa afskipti af farþega sem neitaði að fara eftir settum reglum. Farþegi sem kom til landsins um klukkan hálf ellefu í morgun með SAS flugvél frá Kaupmannahöfn neitaði að bera andlitsgrímu eins og reglur kveða á um. Þurfti að kalla til lögreglu sem veitti farþeganum tiltal og í kjölfarið féllst hann á að setja upp andlitsgrímuna. RÚV...
InnlentForseti ÍslandsAfhentu Guðna og Þórdísi nýtt tímarit um nýsköpun17. júní 2020 Samtök iðnaðarins afhentu forseta Íslands og nýsköpunarráðherra nýtt tímarit um nýsköpun í gær. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, tóku á móti fyrstu eintökum nýs tímarits sem Samtök iðnaðarins hafa gefið út um nýsköpun. Með útgáfunni vilja samtökin leggja sitt af mörkum til að hvetja til nýsköpunar á öllum sviðum atvinnulífsins er fram kemur í...
InnlentBúa til gúmmímottur úr gömlum hjólbörðum17. júní 2020 Hvað verður um gömul dekk? Þeim er fargað eða, eins og við vonandi sjáum meira af í framtíðinni, þau eru endurunnin. Í samfélagsskýrslu N1 fyrir árið 2019 kemur fram að félagið sóli eldri dekk (nýtt slitlag sett á) og þannig má nýta þau lengur. Á Akureyri starfrækir N1 sólningarverksmiðju og þar voru á síðasta ári sólaðir/endurunnir 3.195 vörubíla- og vinnuvélahjólbarðar....
InnlentGera kvennaútgáfu af Síðustu veiðiferðinni17. júní 2020 Leikstjórinn Gagga Jónsdóttir mun í júlí hefja tökur á nýrri gamanmynd sem hlotið hefur nafnið Síðasti saumaklúbburinn og sögð er kvennaútgáfan af hinni geysivinsælu kvikmynd Síðasta veiðiferðin. Framleiðendur myndanna eru þeir sömu og nýverið hlaut Síðasti saumaklúbburinn hæsta styrkinn í aukafjárveitingu Kvikmyndasjóðs Íslands vegna kórónaveirufaraldursins, alls þrjátíu og fimm milljónir króna. Í spjalli við kvikmyndir.is upplýsir Þorkell Harðarson, einn mannanna...
InnlentTimbur úr sjálfbærri skógrækt17. júní 2020 BYKO selur eingöngu timbur úr sjálfbærri skógrækt. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri samfélagsskýrslu fyrirtækisins. Auk þess að koma úr sjálfbærri skógrækt fylgir timbrinu rekjanleikavottun. Helstu merki fyrir sjálfbæra skógrækt eru Forest Stewardship Council (FSC) og Programme for the Endorsement of Forest Certification (PEFC). Í skýrslunni kemur fram að fyrirtækið vinni markvisst að því að ná...
InnlentKarlkyns Fjallkona stoppuð af í miðju þjóðhátíðarávarpi17. júní 2020 Lögregla handtók karl í fjallkonubúningi sem truflaði hátíðarhöld á Austurvelli. Maðurinn hafði komið sér fyrir á svölum Pósthússtrætis 13 og flutti þar ræðu í heldur óvenjulegum fjallkonubúningi; með ljósa hárkollu á höfði, gyllt sundgleraugu og í gylltum bíkinitoppi, buxum og skikkkju. Þar mun hafa verið á ferð listamaðurinn Snorri Ásmundsson sem greindi fyrr í vikunni á Facebook frá þeirri fyrirætlan...
InnlentSaga og Katrín Halldóra ósammála um hvað má gera á 17. júní17. júní 2020 Leikkonurnar Saga Garðarsdóttir og Katrín Halldóra Sigurðardóttir geta engan veginn komið sér saman um hvað má og hvað má ekki gera til að halda upp á 17. júní í ár, samkvæmt myndbandi sem Borgin okkar birtir á Facebook-síðu sinni. Saga hvetur fólk til að mæta í bæinn þótt enginn viti hvað verði þar í boði til skemmtunar eða hvenær, þar...
InnlentHengja upp svarta ruslapoka í búðargluggum í mótmælaskyni17. júní 2020 Hópur kaupmanna hefur brugðið á það ráð að henga upp svarta ruslapoka í búðargluggum sínum í miðbænum til að mótmæla götulokunum. Gunnar Gunnarsson, talsmaður Miðbæjarfélagsins í Reykjavík, segir í Morgunblaðinu að þetta sé gert þar sem ekki þýði að ræða málin við meirihlutann í Reykjavík. „Með þessum gjörningi erum við fyrst og fremst að reyna að ná til almennings. Það...
InnlentSlagsmál í strætó – lögregla kölluð á vettvang17. júní 2020 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út á áttunda tímanum í gærkvöldi til að stilla til friðar í strætó, er til átaka kom milli bílstjóra og farþega. Samkvæmt dagbók lögreglu urðu minniháttar meiðsl í átökunum og ræddi lögregla bæði við bílstjóra og farþega með réttarstöðu sakbornings. Lögregla hafði annars í nógu að snúast í nótt. Flest brotin sem hún hafði afskipti...
InnlentOrlando Bloom á Íslandi16. júní 2020 Kvikmyndaleikarinn Orlando Bloom er staddur hér á landi. Hann fór um miðbæ Reykjavíkur í dag í fylgd vina sinna og borðaði meðal annars í hádeginu á veitingastaðnum Reykjavík Meat. „Já það er staðfest, hann var hjá okkur í dag að borða. Hann var þar með erlendum vinum sínum og fékk sér gott nautakjöt. Hann var alveg dásamlegum viðskiptavinur, mjög gaman...