InnlentLítill Hatari kom í heiminn í gærkvöldi25. júní 2019 Klemens Hannigan og Ronja Mogensen eignuðust dóttur í gærkvöldi. Þetta er annað barn parsins en fyrir eiga þau dótturina Valkyrju sem fagnar tveggja ára afmæli á árinu.
InnlentÆr, lamb og tvær endur eftirlýst á Suðurnesjum25. júní 2019 Lögreglustjórnn á Suðurnesjum lýsir eftir ær, lambi og tveimur öndum. „ Við leitum að móður og barni sem eru í stroki,” segir á Facebook Lögreglustjórans á Suðurnesjum. „Þau struku frá Grófinni og sáust síðast við Heiðarholt þar sem þau voru á beit og voru alsæl á ferðinni þar.”
InnlentÖryggisvörður matvöruverslunar í Kópavogi bitinn eftir afskipti af þjóf25. júní 2019 Þrír voru handteknir grunaðir um líkamsárás í gærkvöldi. Áverkar á þolenda voru misalvarlegir. Gerendur voru allir vistaðir í fangageymslu samkvæmt tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
InnlentMatvöruverð á Íslandi helmingi hærra en meðaltal Evrópu24. júní 2019 Verðlag á mat og drykkjarvöru á Íslandi var það þriðja hæsta í Evrópu árið 2018. Verðlagið var 48% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna sem eru 28 talsins. Þetta kemur fram í Facebook færslu Hagstofu Íslands.
InnlentPabbi greindist með alzheimer 53 ára24. júní 2019 Hildigunnur Jónasdóttir ætlar að hlaupa 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu og styrkja um leið Alzheimersamtökin en faðir hennar var aðeins 53 ára þegar hann greindist með sjúkdóminn í fyrra. Með hlaupinu vill hún ekki síst vekja athygli á úrræðaleysi fyrir fólk sem greinist svona ungt með sjúkdóminn.
InnlentÁrétting vegna fréttar á man.is 23. júní24. júní 2019 Í gærkvöld greindi Mannlíf frá því að ríkislögreglustjóri hefði getað vikið lögreglumanni, sem var kærður fyrir barnaníð, tímabundið frá störfum að mati nefndar um eftirlit með lögreglu, en þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV í gær. Halldóra Baldursdóttir, móðir stúlku sem kærði manninn, vill afsögn Haralds Johannessen ríkislögreglustjóra vegna málsins. Samhliða því rifjaði Mannlíf upp ýmsa þætti í málinu. Embætti ríkislögreglustjóra gerir athugasemdir við fréttaflutning Mannlífs.
SkoðunAðsend skoðunVísindi, vopn gegn lýðskrumi24. júní 2019 Skoðun Eftir / Jóhönnu Vigdísi Guðmundsdóttur Lýðskrum (e.populism) vísar til þeirrar tilhneigingar stjórnmálamanna nútímans að skipta íbúum þjóðar í tvo einsleita hópa, annars vegar spillta valdaklíku og hins vegar saklausan almenning, andstæðar fylkingar þar sem almenningi er talin trú um að hann þurfi að rísa gegn valdaklíkunni. Valdaklíkuna skilgreina þessir stjórnmálamenn oft sem samansafn menntamanna, blaðamanna og fjármálafólks. Þessir lýðskrumarar...
InnlentÖllum flugferðum SAS aflýst á Keflavíkurflugvelli24. júní 2019 Farþegar skandinavíska flugfélagsins strandaglópar.
InnlentUmgengni sögð til fyrirmyndar á Secret Solstice24. júní 2019 María Gestsdóttir varaformaður Íbúasamtaka Laugardals segir að umgengni á tónlistarhátíðinni Secret Solstice hafi verið til fyrirmyndar.
Innlent40% nýrra starfa undanfarin ár urðu til í ferðaþjónustu24. júní 2019 Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands er fjölgun starfa milli 2010-2018 að mestu leiti í ferðaþjónustu. Starfsfólki í greininni hefur fjölgað um rúmlega 16 þúsund sé tekið mið af meðaltölum áranna. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.
InnlentSkiptar skoðanir um formannsslag24. júní 2019 Bjarni Benediktsson náði þeim áfanga að hafa verið formaður Sjálfstæðisflokksins í áratug fyrr á þessu ári. Í sögu flokksins hafa einungis tveir formenn setið lengur, Ólafur Thors, sem var formaður Sjálfstæðisflokksins frá 1934 til 1961, og Davíð Oddsson, sem var formaður hans frá 1991 til 2005. Í ljósi þess sem gengið hefur á í stjórnmálum síðastliðinn áratug má það teljast pólitískt afrek.
InnlentFjölskylduhjálp lokar í sumar vegna fjárskorts24. júní 2019 Fjölskylduhjálp Íslands neyðist til að loka í sumar vegna fjárskorts. Þetta er í fyrsta skipti á 16 ára ferli samtakanna þar sem engin aðstoð verður yfir sumarið. Lokað verður frá 1. júlí til 1. september. Morgunblaðið greinir frá.