InnlentTæplega fimmtíu stútar undir stýri stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina4. júní 2019 Fjörutíu og fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þrjátíu og fjórir voru stöðvaðir í Reykjavík, fimm í Kópavogi, þrír í Mosfellsbæ og tveir í Hafnarfirði. Lögreglan segir þrjá stöðvaða á föstudag en tuttugu og sex á laugardaginn. Fjórtán á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. „Þetta...
InnlentKlausturmáliðKlaustursupptökur á Bárubrennu að skipan Persónuverndar: „Ég hef svosem ekkert við upptökurnar að gera.”4. júní 2019 „Lögfræðingurinn minn verður þarna með skörp augu á símanum og tekur eyðinguna upp” segir Bára Halldórsdóttir, uppljóstrari í Klaustursmálinu, sem boðað hefur til Báramótabrennu í tilefni úrskurðar Persónuverndar um að hún hafi brotið persónuverndarlög í klaustursmálinu. „Myndbandið verður svo sent til persónuverndar.”
InnlentKristján vann áfangasigur gegn Björgólfi í Hæstarétti4. júní 2019 Hæstiréttur Íslands ómerkti í morgun tvo dóma í málum sem félög Kristjáns Loftssonar höfðuðu gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni. Bæði héraðsdómur og Landsréttur höfðu áður vísað málunum frá dómi. Málin varða hlutabréfakaup í Landsbanka Íslands upp á rúmar 600 milljónir króna.
InnlentBönd sem fjötra eða sameina3. júní 2019 Bókin Það er alltaf eitthvað er samstarfsverkefni tólf ritlistarnema og fimm ritstjórnarnema við Háskóla Íslands unnið undir leiðsögn Sigþrúðar Gunnarsdóttur, ritstjóra hjá Forlaginu. Karítas Hrundar Pálsdóttir sem er að ljúka meistaranámi í ritlist í júní næstkomandi á þrjár sögur í bókinni.
InnlentSegir endurreisn WOW nauðsyn annars „verður hér einfaldlega einokun aftur næstu tuttugu ár“3. júní 2019 „Ef okkur tekst ekki að grípa þetta tækifæri núna verður hér einfaldlega einokun aftur næstu tuttugu ár,“ sagði Skúli Mogensen fyrrverandi eigandi WOW air á Startup Iceland í morgun.
InnlentSkúli Mogensen vill að endurreist flugfélag heiti WOW3. júní 2019 Skúli Mogensen , fyrrverandi eigandi WOW air , sagði í fyrirlestri á Startup Iceland í morgun að nýtt og endurreist flugfélag ætti „ absolutely “ að heita WOW air aftur. Sjálfur sagðist hann gjarnan vilja taka þátt í WOW ævintýri á nýjan leik.
Innlent2400 ungmenni hér á landi ekki í vinnu, námi eða starfsþjálfun3. júní 2019 Hagstofan telur 2400 ungmenni hér á landi ekki í vinnu, námi eða starfsþjálfun. Það samsvarar 6% ungmenna á aldrinum 16 – 24 ára. Hópurinn er í áhættu vegna félagslegrar einangrunar og skort á efnislegum gæðum.
InnlentSviðslistasamband Íslands ekki til skattrannsóknar þvert á ásakanir Þjóðleikhússtjóra3. júní 2019 Stjórn Sviðslistasamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Ara Matthíassonar Þjóðleikhússtjóra um sambandið. Ari hefur ítrekað haldið því fram að sambandið sé til skattrannsóknar.
InnlentHeimsótti vinkonu sína og stal fatnaði frá nágrönnum3. júní 2019 Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna þjófnaðar á fatnaði, úr þvottahúsi í sameign fjölbýlishúss, í Austurbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Sakborningur, þrítug kona, var stöðvuð utandyra og afhenti fatnaðinn til baka. Hún viðurkenndi brotið og kvaðst hafa verið að koma úr heimsókn frá vinkonu sinni.
InnlentDómsmálaráðuneytið skoðar kvartanir sérsveitarmanna gegn ríkislögreglustjóra3. júní 2019 Dómsmálaráðuneytið er með kvartanir nokkurra sérsveitarmanna gegn Haraldi Jóhannessyni ríkislögreglustjóra til skoðunar. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í morgun.
InnlentRefsað fyrir að velja að lifa1. júní 2019 Nara Walker sem var dæmd til fangelsisvistar fyrir að hafa bitið hluta af tungu þáverandi eiginmanns síns eftir langvarandi ofbeldi sem hún lýsir í nýjasta tölublaði Mannlífs ætlar ekki að játa sig sigraða fyrir óréttlætinu heldur fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.
InnlentDatt á allan leikarahópinn úr hæstu lyftunni1. júní 2019 Leik- og söngkonan Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir leikur Báru hafmeyju í glænýju verki Leikhópsins Lottu sem sýnt verður um land allt í sumar. Sýningunni er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um allt ruslið sem það hendir út í náttúruna.