InnlentSkáru sporðinn af hákarli og slepptu honum svo lausum28. maí 2019 Myndband sem sýnir tvo íslenska karlmenn skera sporðinn af hákarli og sleppa honum svo lausum hefur farið sem eldur um sinu á Facebook í dag. Myndbandið hefur vakið mikla reiði og margt fólk hefur tilkynnt málið til MAST eftir að það birtist.
InnlentÞorsteinn Víglundsson segir innflytjendur styðja við aukin lífsgæði með myndarbrag28. maí 2019 Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, kvað sér orðs í þinginu nú í morgun og sagði fjölgun innflytjenda hér á landi mikið fagnaðarefni. Hann sagði fólk sem hingað flytur standa undir lífsgæðum samfélagsins af myndarbrag með þeim sem hér eru fæddir.
InnlentTæplega 37 þúsund innflytjendur starfandi á Íslandi28. maí 2019 Innflytjendur eru rétt tæpur fimmtungur af starfandi einstaklingum á Íslandi. Starfandi innflytjendur á aldrinum 16-74 ára voru að jafnaði 36.844 á fyrsta ársfjórðungi 2019. Hlutfall starfandi innflytjenda fer vaxandi á öllum landshlutum.
InnlentEfling í hart vegna „vanefnda“ á samningum sem SA undirritaði fyrir hönd atvinnurekenda28. maí 2019 „Styðja Samtök atvinnulífsins vanefndir aðildarfyrirækja sinna á samningnum sem þau undirrituðu sjálf, fyrir þeirra hönd?“ spyr Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, á Facebook vegna frétta um að Samtök atvinnulífsins telji hóteleiganda sem skerti kjör eftir undirritun kjarasamninga í rétti.
InnlentLögfræðingur í vinnurétti segir kæru Orkunnar okkar „ógeðslega fyndin“ misskilningur á EES tilskipun27. maí 2019 Fulltrúar Orkunnar okkar hafa kært fundarstjórn forseta til Vinnueftirlitsins. Dagný Ósk Aradóttir Pind, lögfræðingur hjá BSRB segir þingmenn ekki vera hefðbundna starfsmenn. „Þingmenn eru sérstaklega undanskildir starfsmannalögum.“
InnlentVenom skemmtilegust til þessa27. maí 2019 Elmar Bragi Einarsson lét gamlan draum rætast og lærði tæknibrellugerð á Englandi. Í dag vinnur hann að stórum og spennandi verkefnum, eins og Venom, Avengers og Dark Crystal.
InnlentLögregla ítrekar fyrir ökumönnum að virða lokanir vegna slysa27. maí 2019 Ökumenn gerðu viðbragsaðilum erfitt fyrir að athafna sig eftir bílslys á Bústaðarveginum. Þrátt fyrir að ökutæki lögreglumanna girtu af vettvanginn hunsuðu vegfarendur tilskipun lögreglu og tróðu sér að.
InnlentInga Sæland gagnrýnir heilbrigðisráðherra vegna koníaksdeyfingar sjúklings27. maí 2019 Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, gagnrýndi slæma stöðu heilbrigðisþjónustu í dreifðari byggðum í fyrrispurnartíma Alþingis í dag. Inga vitnaði til fréttar um erfiða stöðu í heilbrigðisþjónustu á Borgarfirði eystra þar sem sjúklingur var nýlega deyfður með koníaki. „Þó það sé gaman að fá sér stundum koníak er þetta eitthvað annað,“ sagði Inga.
InnlentGuðmundar- og GeirfinnsmálÍtrekar að sáttaviðræðum vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins er ekki lokið27. maí 2019 Forsætisráðuneytið telur ástæður tl að ítrekað að sáttanefnd vegna Guðmundar- og Geirfinsmálsins hefur ekki lokið störfum. Tilkynningin kemur í kjölfar frétta um að ólíklegt sé að nefndin nái árangri og sátt.
InnlentÞriðji orkupakkinnOrkan okkar vill inngrip lögreglu eða Vinnueftirlits í störf þingsins svo Miðflokkurinn fái nægan svefn27. maí 2019 Fulltrúar Orkunar okkar kærðu í morgun fundarstjórn forseta til Vinnueftirlitsins. Orkan okkar er baráttuhópur gegn samþykkt þriðja orkupakkans. Á spjallsvæði hópsins hafa nokkrir stuðningsmenn hópsins furðað sig á að vökulög verndi ekki Miðflokksmenn í málþófi.
InnlentReykvísk húsmóðir læsti sig úti, skrúfaði í sundur gluggafestingu og festist með rassinn út um glugga27. maí 2019 Kona á höfuðborgarsvæðinu sem læsti sig utan eigin heimilis. Mátti beita óvenjulegri leið til að komast inn á heimilið. Brösulega gekk og endaði konan með að sitja föst í glugga eigin heimilis í nokkra stund. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu deilir skilaboðum sem hún fékk. Konan vildi koma í veg fyrir að lögreglubíll yrði sendur á staðinn ef ske kynni að nágrannar hefðu orðið varir við uppátækið.
InnlentDrakk fyrst áfengi 28 ára27. maí 2019 Óskar Einarsson, tónlistarstjóri Lindakirkju og Fíladelfíu, hefur ætíð nóg á sinni könnu og má þar nefna gospeltónleika í Fíladelfíu 30. maí. Einnig verða kórtónleikar í Lindakirkju annan í hvítasunnu, 10. júní. Við fengum Óskar til að deila nokkrum staðreyndum um sjálfan sig.