Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Venom skemmtilegust til þessa

Elmar Bragi Ein­ars­son lét gamlan draum ræt­ast og lærði tækni­brellu­gerð á Englandi. Í dag vinnur hann að stórum og spenn­andi verk­efnum, eins og Venom, Avengers og Dark Crystal.

Venom skemmtilegust til þessa
|Elmar var einn margra sem tók þátt í gerð Avengers: Endgame og er ekki eini Íslend­ing­ur­inn
Elmar var einn margra sem tók þátt í gerð Avengers: Endgame og er ekki eini Íslend­ing­ur­inn, því Heba Þórs­dóttir förð­un­ar­meist­ari vann bæði að henni og for­ver­anum Avengers: Infinity War.

Þótt nafnið Elmar Bragi Ein­ars­son klingi kannski ekki bjöllum hjá mörgum þá hefur hann á síð­ustu árum skapað sér nafn innan kvik­mynda­brans­ans úti í heimi eftir að hafa unnið að gerð stórra mynda, á borð við Venom og Avengers: Endgame. Blaða­maður sló á þráð­inn til Elmars sem býr í Ósló og spurði út í fer­il­inn og þátt hans í þessum stór­virkjum. „Ég var sem sagt einn þeirra mörgu sem kom að tölvu­brell­unum. Bjó til ein­hverja neista, slef og já, svarta slímið í and­lit­inu á Venom, en ég var í ein­hverja þrjá mán­uði að vinna að þeirri mynd. Ætli hún sé ekki bara eitt skemmti­leg­asta og mest krefj­andi verk­efni sem ég hef komið að,“ segir hann hugsi, „og kannski svo­lítið drauma­verk­efni líka þar sem maður las um þennan karakter í Spiderman-blöð­unum þegar maður var krakki.“

Þannig að þú hefur þá verið svo­lít­ill nörd í þér alveg frá því að þú manst eftir þér? „Já, ætli ég geti ekki sagt það, sér­stak­lega þegar kemur að bíó­myndum. Maður horfði nátt­úr­lega mikið á myndir, eins og Star Wars, Indiana Jones, Jurassic Park og E.T. og svona, í æsku og þegar ég fór úr húsi kvaddi pabbi mig oft með Star Wars-lín­unni: Megi mátt­ur­inn vera með þér eða May the force be with you,“ segir hann kím­inn.

Lærði í einum besta brellu­skóla í heimi
Elmar segir að áhug­inn á kvik­mynda­gerð­inni hafi sömu­leiðis kviknað snemma. Þannig hafi hann ungur að aldri sótt nokkur nám­skeið í stutt­mynda­gerð á Lunga á Seyð­is­firði og eftir það ákveðið að skrá sig í nám við Marg­miðl­un­ar­skól­ann en það hafi svo orðið til þess að hann ákvað end­an­lega að leggja tækni­brellu­gerð fyrir sig.

„Fyrst vissi ég nú reyndar ekki hvert það myndi leiða,“ við­ur­kennir hann fús­lega, „en eftir að aðilar frá Bournemouth-háskóla heim­sóttu skól­ann og kynntu meist­ar­nám í staf­rænni brellu­gerð vissi ég strax að það væri eitt­hvað sem ég vildi læra, enda skól­inn einn sá besti á því sviði. Þannig að eftir Marg­miðl­un­ar­skól­ann fór ég út til Bournemouth í meist­ar­nám og svo beint út á atvinnu­mark­að­inn. Vann lengi hjá DNEG (dneg.com) í London en síðan ákváðum við kærastan mín, Katla Mist, að flytja til Ósló þar sem við réðum okkur til starfa hjá StormStudios (stormstudios.no), fyr­ir­tæki sem á meðal ann­ars heið­ur­inn að „intró­inu“ í Black Panther og Pixels,“ útskýrir hann glaður og er auð­heyri­lega búinn njóta sín fram í fing­ur­góma, bæði í námi og starfi.

Elmar vann nýverið að þáttum sem byggja á hinni sígildu mynd Dark Crystal.

Hrika­lega gaman í vinn­unni
Er ekki fer­lega gaman að flakka svona á milli landa og vera í þeirri aðstöðu að geta unnið að sínu helsta áhuga­máli? „Jú, hrika­lega gaman,“ svarar hann hik­laust. „Enda hef ég ekk­ert út á þetta starf að setja. Ef ég þyrfti að segja eitt­hvað þá væri það kannski helst það að stundum getur þetta skemmt fyrir manni sögu­þráð­inn í mynd­unum sem maður er að vinna að. En ann­ars er þetta alveg frá­bært í alla staði.“

„… maður er búinn að vera að horfa á þessar myndir í mörg ár og svo er maður bara allt í einu orð­inn hluti af þessu stóra batt­eríi.“

Spurður hvað sé svo næst á döf­inni seg­ist Elmar vera með nokkur verk­efni í gangi í augna­blik­inu. Hann hafi til að mynda verið að vinna að nýjum þáttum fyrir Netflix sem kall­ast Dark Crystal. Þeir séu lík­leg­ast næsta verk­efni sem komi fyrir sjónir almenn­ings en því miður geti hann ekki rætt þá að neinu ráði þar sem þeir séu enn í vinnslu. „Eina sem ég get sagt er að þeir byggja á sam­nefndri mynd úr smiðju Jims Henson, skap­ara Prúðu­leik­ar­anna, en ég var einmitt mik­ill aðdá­andi hennar þegar ég var krakki og dauð­hræddur við hana líka,“ segir hann hlæj­andi og bætir við að það sé svo­lítið skrítið að vera að vinna að verk­efni sem teng­ist æsk­unni. „Eins með Avengers, maður er búinn að vera að horfa á þessar myndir í mörg ár og svo er maður bara allt í einu orð­inn hluti af þessu stóra batt­eríi. Sem er alveg grá­magnað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ