Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Efling í hart vegna „vanefnda“ á samningum sem SA undirritaði fyrir hönd atvinnurekenda

„Styðja Samtök atvinnu­lífs­ins van­efndir aðild­ar­fyr­ir­ækja sinna á samn­ingnum sem þau und­ir­rit­uðu sjálf, fyrir þeirra hönd?“ spyr Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, á Facebook vegna frétta um að Samtök atvinnu­lífs­ins telji hót­el­eig­anda sem skerti kjör eftir und­ir­ritun kjara­samn­inga í rétti.

Efling í hart vegna „vanefnda“ á samningum sem SA undirritaði fyrir hönd atvinnurekenda
| Mynd: / Hallur Karlsson

Útlit er fyrir harðar deilur vegna máls­ins sem snýr að upp­sögnum Hót­el­keðja ehf og Capital Hotels á launa­kjörum starfs­fólks skömmu eftir und­ir­ritun kjara­samn­inga sem miðuð að því að bæta kjör starfs­fólks en ekki tæra. Efling er ósátt við við­brögð SA sem for­maður Eflingar hefur líkt við með­virkni.

Hót­el­keðjan ehf. og Capital Hotels ehf., fyr­ir­tæki í eigu Árna Vals Sól­ons­sonar og Svan­laugar Idu Þrá­ins­dóttur, gripu til aðgerða gegn starfs­fólki „vænt­an­legs kostn­að­ar­auka“ skömmu eftir und­ir­ritun kjara­samn­inga. Aðgerð­irnar fólust í því að draga úr greiðslum til starfs­fólks. Starfs­fólki var sagt upp og boðið starf að nýju á verri starfs­kjörum.

Efling segir uppsagnir launakjöra ólöglegar og siðlausar

Viðbrögð Eflingar við aðgerð­unum voru hörð og lýsti félagið yfir að upp­sagn­irnar feli í sér van­efndir á nýund­ir­rit­uðum kjara­samn­ingi.  Í til­kynn­ingu frá Eflingu voru upp­sagn­irnar sagðir ólög­legar og sið­lausar. Þá  segir að Árni hafi í lok apríl, rétt eftir sam­þykkt nýrra kjara­samn­inga, sent erindi á allt starfs­fólk þar sem „þess var kraf­ist að það undir­rit­aði upp­sögn á starfs­kjörum sínum. Þau gætu valið að vera endur­ráðin á nýjum launa­kjörum, hönnuð „með það að mark­miði að lækka launa­kostnað“.“ Ef það sam­þykkti ekki á staðnum var það á­litið jafn­gilda upp­sögn.

„Þetta er að okkar mati full­kom­lega sið­laust at­hæfi,“ sagði Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, við Frétta­blaðið á þeim tíma sem til­kynn­ingin var send á fjöl­miðla. „Við erum ný­búin að undir­rita kjara­samn­inga við Sam­tök at­vinnu­lífs­ins, sem fyrir­tæki Árna eru aðilar að. Þeir samn­ingar byggja á því að hækka laun og bæta kjör fólks. Blekið er ekki þornað á samn­ingnum þegar hann reynir svo að svíkja starfs­fólk sitt um þær kjara­bætur. Þar að auki er á­kvæðum laga um hóp­upp­sagnir ekki fylgt.“

Þá kom fram að Efling hafi áður nokkrum sinnum áður hafa átt í stappi við Árna Val meðal annas vegna fram­kvæmda við City Park Hótel í Ármúla. Þær fram­kvæmdir hafi farið fram án leyfa og Vinnu­eft­ir­litið lokað vegna þess að „veru­lega hætta“ var talin fyrir „líf og heil­brigði starfs­manna.“

Fundur á mðvikudag

Stundin fjallar um stöðu mála í gær. Þar kemur fram að Efling hafi krafið Samtök atvinnu­lífs­ins um fund vegna máls­ins. Sá fundur fer fram á mið­viku­dag sam­kvæmt Stund­inni. Í þeirri umfjöllun kemur fram að Samtök atvinnu­lífs­ins telji Árna val í fullum rétti til að skerða kjör rétt eftir und­ir­ritun kjara­samn­inga.

„Efling mót­mælir því harð­lega að SA styðji fyr­ir­tæki í því að koma sér hjá greiðslu umsam­inna hækk­ana og þar með efndum Lífs­kjara­samn­ings,“ segir í bréfi sem Efling sendi SA þann 20. maí. „Sú spurn­ing vaknar hvort Samtökin telji efndir á Lífs­kjara­samn­ingnum val­kvæðar og háðar vilja eða hent­ug­leika, sem aftur vekur upp stórar og alvar­legar spurn­ingar um traust milli aðila og ásetn­ing að baki kjara­samn­ings­gerð.“ Þá hefur Alþýðu­sam­band íslands „harmað] við­brögð þeirra atvinnu­rek­enda sem í kjöl­far nýgerðra kjara­samn­inga hafa gripið til upp­sagna á launa­kjörum starfs­manna sinna að sögn vegna þess kostn­að­ar­auka sem kemur til vegna gild­is­töku samn­ing­anna“.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir í til­kynn­ing­unni að sam­tök atvinnu­rek­enda séu með aðgerð­ar­leysi sínu að „kóa með verstu sort af kap­ít­alista“.

„Bull og lygi“ segir hóteleigandinn

Árni Valur svar­aði Eflingar fullum hálsi. „Þetta er bara bull og lygi,“ sagði hann við Frétta­blaðið í byrjun maí um ásak­anir stétt­ar­fé­lags­ins. „Það hefur engum verið sagt upp hjá mér,“ segir Árni. „Ég er að borga lang­bestu launin fyrir þessi störf í bænum. Ég er bara að segja upp launa­liðnum, sem sagt því sem ég er að borga umfram taxta,“ sagði hann. „Þetta er eitt­hvað sem Eflingu kemur ekk­ert við. Ég er að borga meira en það sem þeir hafa samið um“ heldur Árni áfram. Hann sé að greiða starfs­fólki sínu 50.449 kr. umfram það sem kjara­samn­ing­arnir kveði á um. Hótelin sem um ræðir eru Capital-Inn, City Park Hotel og City Center Hotel.

Sagði Sólveigu Önnu hafa átt að hlusta á sig og sleppa verkfalli

Hót­el­eig­andi segir en fremur að engum hafi verið sagt upp vegna aðgerð­anna. Enn hafi hætt vegna breyt­inga á vakta­fyr­ir­komu­lagi. Þá telur hann að for­maður Eflingar hefði mátt hlusta á hann betur því slíkt hefði getað komið í veg fyrir verk­föll. „Ef hún hefði nennt að hlusta á mig áður en hún fór í verk­föllin þá hefði hún nú varla farið í verk­föll, vegna þess að ég er að yfir­borga launin hjá starfs­fólk­inu mínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina