Innlent„Örin eru eitthvað sem við ættum aldrei að þurfa að fela“2. september 2019 Ljósmyndasýning Krafts verður uppi fram yfir miðjan september.
Innlent„Heppinn að vera ekki steindauður“23. ágúst 2019 Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, missti systur sína úr krabbameini fyrir einu og hálfu ári og skömmu síðar lenti hann í alvarlegu hjólreiðaslysi sem hefði getað kostað hann lífið. Hann segir þessa reynslu hafa breytt viðhorfi sínu til lífsins og kennt sér að meta betur það sem hann hefur. Hann ætlar að hlaupa hálft maraþon til styrktar Ljósinu í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun.
InnlentFanney Eiríksdóttir látin7. júlí 2019 Fanney Eiríksdóttir er látin eftir baráttu við krabbamein, 32 ára að aldri. Hún lætur eftir sig eiginmann og tvö börn.
Fólk„Þú varst einfaldlega toppurinn á tilverunni í mínu lífi“1. júlí 2019 Bjarki Már Sigvaldason lést þann 27. júní eftir sjö ára baráttu við krabbamein en eiginkona hans, Ástrós Rut Sigurðardóttir, greindi frá andlátinu á Facebook-síðu sinni. Ástrós hefur staðið þétt við bakið á manni sínum í gegnum veikindin og talað opinskátt um bæði góða og slæma tíma.
InnlentÆtlar að vinna í sjálfum sér16. júní 2019 Kristinn Þór Sigurjónsson er ekkill og fjögurra barna faðir eftir að eiginkona hans, Ingveldur Geirsdóttir, lést úr krabbameini í lok apríl. Hann ætlar að halda minningu Ingveldar á lofti fyrir börnunum og ekki reyna að grafa þetta niður til að einfalda lífið. Mikilvægt er að ræða málin opinskátt að hans mati og vinna skipulega í sjálfum sér, en það ætlar Kristinn að gera í fyrsta skipti á ævi sinni.
Innlent„Hún lifir í minningum okkar“14. júní 2019 Til að vera sáttur við lífið þarf að sættast við allt sem á undan er gengið, gott eða slæmt, segir Kristinn Þór Sigurjónsson sem nýverið missti eiginkonu sína úr krabbameini. Áralöng forræðisdeila hjálpaði honum að komast í gegnum erfiðustu tímana og undirbúa hann fyrir enn eina áskorunina, að vera ekkill og fjögurra barna faðir.
Innlent„Ég veit ekki hvernig þetta hefði farið ef ég hefði beðið“6. júní 2019 Það var ekkert sem gat undirbúið Agnesi Ferro undir áfallið sem fylgdi því að greinast með brjóstakrabbamein árið 2016. Þá var hún 28 ára, sonur hennar sex ára og hún í fullu starfi sem flugfreyja hjá Icelandair og í námi í tölvunarfræði í HR. Vegna þess hve ung hún var þurfti hún að hafa mikið fyrir því að fá tíma hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins strax. Þegar hún fékk greiningu fékk hún ómetanlegan stuðning í Ljósinu að hennar sögn.
InnlentHægt að fækka reykingafólki um þúsundir19. maí 2019 Rannsókn sem unnin var úr niðurstöðum frá krabbameinsskrám Norðurlandanna og birt var á síðasta ári sýna að hægt er að koma í veg fyrir þúsundir krabbameinstilfella ef færri reykja.
InnlentDýrt að veikjast á Íslandi29. mars 2019 Sláandi munur er á kostnaði vegna krabbameinsmeðferða á Íslandi og í Skotlandi.Tvær íslenskar konur sem hafa sótt læknismeðferð vegna krabbameins annars vegar í Reykjavík og hins vegar í Edinborg greina frá þessu. Á meðan konan á Íslandi hefur orðið að greiða yfir 800 þúsund krónur, hefur sú í Skotlandi ekki þurft að bera neinn beinan kostnað af meðferðinni.
InnlentEina spurningin sem ég fékk ekki svar við var: „Hvar er mamma núna?“18. mars 2019 Arnar Sveinn Geirsson hefur á síðustu misserum vakið athygli fyrir skrif um foreldramissi en sjálfur varð hann fyrir því að missa móður sína aðeins ellefu ára gamall.
InnlentÁfallið fer ekkert frá þótt tíminn líði17. mars 2019 Eiginmaður og barnsfaðir Önnu Ingólfsdóttur, Árni Margeirsson, lést af völdum krabbameins þrjátíu og níu ára gamall. Anna segir þurfa fleiri úrræði fyrir börn sem missa foreldri, en talið er að allt að 50 börn missi foreldri sitt á hverju ári á Íslandi.
Innlent„Það er enginn sem grípur mann“16. mars 2019 Eiginmaður Önnu Ingólfsdóttur, Árni Margeirsson, lést af völdum krabbameins þrjátíu og níu ára gamall. Anna segir tímabært að tala upphátt um stöðu ungs fólks sem missir maka og sérstaklega stöðu barna sem missa foreldri.