InnlentGera kvennaútgáfu af Síðustu veiðiferðinni17. júní 2020 Leikstjórinn Gagga Jónsdóttir mun í júlí hefja tökur á nýrri gamanmynd sem hlotið hefur nafnið Síðasti saumaklúbburinn og sögð er kvennaútgáfan af hinni geysivinsælu kvikmynd Síðasta veiðiferðin. Framleiðendur myndanna eru þeir sömu og nýverið hlaut Síðasti saumaklúbburinn hæsta styrkinn í aukafjárveitingu Kvikmyndasjóðs Íslands vegna kórónaveirufaraldursins, alls þrjátíu og fimm milljónir króna. Í spjalli við kvikmyndir.is upplýsir Þorkell Harðarson, einn mannanna...
MenningNý íslensk gamanmynd um uppistand9. júní 2020 Mentor, ný kvikmynd leikstjórans Sigurðar Antons Friðþjófssonar, verður frumsýnd í Senubíóunum þann 24. júní. Myndin er gamanmynd og fjallar um unga stúlku sem skráir sig í uppistandskeppni þótt hún hafi aldrei stigið á svið og leitar til uppistandarans sem vann keppnina tíu árum fyrr um aðstoð. Myndband
InnlentFáðu já slær í gegn í Slóveníu25. maí 2020 Fræðslustuttmyndin Fáðu já- stuttmynd um kynlíf og ofbeldi var frumsýnd á Íslandi í janúar árið 2013 og vakti mikla athygli og umræður. Myndin var frumsýnd sama dag í öllum grunnskólum landsins og mörgum framhaldsskólum að auki og í framhaldinu skapaðist mikil og góð samfélagsumræða um mikilvægi samþykkis í samskiptum, ekki síst kynferðislegum. Myndin og kennsluefni henni tengt hefur verið nýtt...
InnlentSmárabíó opnar 4. maí – Fólk er farið að þyrsta í að komast í bíó segir framkvæmdastjórinn29. apríl 2020 Smárabíó mun opna á ný þann 4. maí eftir að tilslakanir á samkomubanni taka gildi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Smárabíó. Þar segir að tryggt verði að gestir hafi möguleika á að halda tveimur metrum á milli sín og annarrs bíógesta. „Aldrei verða fleiri en 50 manns í hverjum sal,“ segir í tilkynningunni. Í henni er haft eftir forstjóra...
InnlentLeikstýrir fyrstu sjónvarpsmyndinni 74 ára gömul12. apríl 2020 Sjónvarpsmyndin Sveinsstykki verður frumsýnd á RÚV að kvöldi annars páskadags. Myndin byggir á samnefndu leikriti Þorvalds Þorsteinssonar, Arnar Jónsson leikur eina hlutverkið, Svein, og Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir. Þetta er í fyrsta sinn sem Þórhildur leikstýrir sjónvarpsmynd og hún hefur ekki leikstýrt kvikmynd síðan hún leikstýrði hinni geysivinsælu mynd Stella í orlofi árið 1986. Er hún að hasla sér völl á...
InnlentCovid-19Áhrif COVID-19 á innlenda dagskrárgerð3. apríl 2020 Íslensku sjónvarpsstöðvarnar hyggjast að mestu leyti halda sínu striki við framleiðslu íslensks dagskrárefnis næstu mánuði, en einhverju seinkar. Forsvarsmenn tveggja þeirra segja að engar áætlanir séu um að þáttagerð verði aflýst vegna COVID-19 faraldursins, þó að vissulega setji hann það strik í áætlunina að einhverri vinnslu verði seinkað um einhverjar vikur. Sú þriðja, RÚV, segir of snemmt að segja til...
InnlentCovid-19Áhrif COVID-19 á íslenskan kvikmyndaiðnað gríðarleg samkvæmt könnun Félags kvikmyndagerðarmanna30. mars 2020 Í niðurstöðum könnunar sem Félag kvikmyndagerðarmanna á Íslandi stóð fyrir meðal félagsmanna sinna dagana 25. til 27. mars kemur fram að áhrif COVID-19 faraldursins á kvikmyndaiðnaðinn og afkomu kvikmyndagerðarfólks eru þegar orðin gríðarleg. Af þeim 130 manns sem þátt tóku í könnuninni hafa nánast allir lent í því að verkefnum hefur verið frestað eða hætt við þau og 60 prósent...
InnlentÍsold og Bong Joon-ho deila verðlaunum fyrir bestu leikstjórnina27. mars 2020 Ísold Uggadóttir og Halldóra Geirharðsdóttir hlutu Chlotrudis-verðlaun í vikunni. Verðlaunahátíðin átti að fara fram í þessari viku er hátíðinni var aflýst vegna útbreiðslu COVID-19. Sigurvegarar hafa þó verið kynntir í tilkynningu á vefsíðu Chlotrudis Society for Independent Film. Í tilkynningu um hátíðina segir að suðurkóreska kvikmyndin Parasite og Íslenskar konur standi uppi sem sigurvegarar. Íslensku myndirnar Andið eðlilega og Kona... Myndband
InnlentDaniel Radcliffe: „Harry Potter gerði mig að alkóhólista“17. mars 2020 Daniel Radcliffe kennir hlutverki sínu sem Harry Potter í kvikmyndunum sem byggðu á bókunum um það að hann hafi orðið alkóhólisti. Leikarinn lét þessi orð falla í nýjasta þætti af Desert Island Discs hjá einni útvarpsstöð BBC, Radio 4. Sagði hann í samtali við Lauren Laverne, stjórnanda þáttarins, að hann hefði fljótt áttað sig á því að það þætti fréttnæmt...
InnlentCovid-19Afhendingu BAFTA-verðlaunanna frestað17. mars 2020 Hinni árlegu afhendingarhátíð BAFTA-sjónvarpsverðlaunanna, verðlaunum bresku kvikmyndaakademíunnar fyrir sjónvarpsefni, sem átti að fara fram 17. maí, hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna kórónuveirufaraldursins. Skipuleggjendur hátíðarinnar sendu frá sér tilkynningu í dag þar sem fram kemur að verðlaunahátíðinni hafi verið frestað þangað til síðar á árinu, en ekki sé búið að ákveða dagetningu. Í tilkynningunni kemur fram að vel sé...
Innlent„Kannski er ég bara svolítill gluggagægir“13. mars 2020 Kvikmynda- og ráðstefnuhátíðin Stockfish fer nú fram í Reykjavík í sjötta sinn og stendur yfir til 22. mars. Fjöldi erlendra gesta hefur boðað komu sína á hátíðina, þar á meðal finnski leikstjórinn Dome Karukoski sem verður viðstaddur sýningu á mynd sinni Tolkien, um hin ástsæla rithöfund, og ætlar að henni lokinni að spjalla við áhorfendur í sal. „Ég er mjög...
HeimurMax von Sydow látinn9. mars 2020 Sænski leikarinn Max von Sydow er látinn, 90 ára að aldri. Hann var einn þekktasti leikari Norðurlandanna í áratugi og lék meðal annars í The Seventh Seal (1957), The Exorcist (1973) og Star Wars: The Force Awakens (2015), Three Days of the Condor (1975) , Dune (1984), Minority Report (2002) og Shutter Island (2010), til að nefna örfá af hlutverkum...