Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fáðu já slær í gegn í Slóveníu

Fáðu já slær í gegn í Slóveníu
Fáðu já

Fræðslu­stutt­myndin Fáðu já- stutt­mynd um kyn­líf og ofbeldi var frum­sýnd á Íslandi í jan­úar árið 2013 og vakti mikla athygli og umræður. Myndin var frum­sýnd sama dag í öllum grunn­skólum lands­ins og mörgum fram­halds­skólum að auki og í fram­hald­inu skap­að­ist mikil og góð sam­fé­lags­um­ræða um mik­il­vægi sam­þykkis í sam­skiptum, ekki síst kyn­ferð­is­legum. Myndin og kennslu­efni henni tengt hefur verið nýtt til kennslu í skólum á Íslandi síðan enda sýndu kann­anir sem voru gerðar stuttu eftir að myndin kom út að hún hafði jákvæð áhrif á við­horf mark­hóps­ins sem voru ung­lingar á fimmt­ánda og sext­ánda ári til kyn­lífs og þess að setja mörk. Myndin var textuð á fimm tungu­mál og vakti athygli út fyrir land­stein­ana.

Hún hefur farið víða og verið nýtt við ýmis tæki­færi og fyrir stuttu barst aðstand­endum mynd­ar­innar tölvu­póstur frá Slóveníu þar sem Fáðu já og ítar­efni sem teng­ist henni hefur verið nýtt til að mennta ung­lings­drengi um kyn­líf, sam­þykki og klám, eins og kemur fram í til­kynn­ingu frá aðstand­endum mynd­ar­innar.

Nið­ur­stöð­urnar voru væg­ast sagt magn­aðar!! 806 drengir í sjö skólum í Slóveníu hlutu fræðsl­una. Í upp­hafi hennar voru þeir spurðir um við­horf sín og þá sögðu 49% drengj­anna að það væri skylda stúlkna og kvenna að standa undir vænt­ingum karla, óháð því hvað þær sjálfar vilja. Eftir að hafa horft á Fáðu já og tekið þátt í umræðum um efni mynd­ar­innar varð við­snún­ingur á við­horfi drengj­anna og 96% sögð­ust ósam­mála því að konur og stúlkur þyrftu að standa undir vænt­ingum karla. Í upp­hafi fræðslu­tím­ans lýstu margir drengj­anna því við­horfi að stúlka sem væri drukkin, eða klædd á kyn­þokka­fullan hátt, væri að leit­ast eftir kyn­lífi og það væri ekki ofbeldi að mis­nota sér ástand stúlku sem þannig væri ástatt um. Eftir að hafa hlotið fræðsl­una sögðu hins vegar 98% af drengj­unum að það væri mik­il­vægt að virða mörk þeirra sem þeir stund­uðu kyn­líf með, og sín eigin mörk. Auk þess sögðu 96% að ef þeir væru óvissir um hvort hin mann­eskjan vildi stunda kyn­líf væri best að spyrja við­kom­andi og fá sam­þykki.

Aðstand­endur mynd­ar­innar eru stolt af sló­venskum strákum sem ætla sér að virða stúlkur og mörk þeirra í fram­tíð­inni, auk þess að bera virð­ingu fyrir sjálfum sér og sínum eigin mörkum. Tölurnar að ofan (sem eru not­aðar með góð­fús­legu leyfi frá fræðslu­sam­tök­unum Ključ Society í Slóveníu) sýni hvers vegna það skiptir máli að fjár­festa í heil­brigðum við­horfum ungs fólks. Hver ein­asta króna borgar sig marg­falt. Áram veg­inn til betri heims – og FÁÐU JÁ!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina