InnlentCovid-19Lítill slaki hjá World Class vegna COVID-1920. mars 2020 Íslensk fyrirtæki koma misjafnlega til móts við neytendur á tímum kórónuveirunnar. Farbannið sem gildir á Íslandi hefur í för með sér ýmsar aðgangstakmarkanir á fjölförnum stöðum. Líkamsræktarstöðvarnar hafa brugðist við ástandinu með ólíkum hætti. Stjórnendur Reebok Fitness tilkynntu á föstudag að öllum stöðvum yrði lokað tímabundið á meðan ástandið gengi yfir. Fyrirtækið hefur dregið þetta til baka. Á mánudag var...
InnlentHika við að ráðleggja fólki að þiggja inneignarnótur19. mars 2020 Undanfarið hafa einhverjar ferðaskrifstofur boðið viðskiptavinum sínum inneignarnótu í stað endurgreiðslu þegar þeir afpanta pakkaferðir vegna þeirra aðstæðna sem eru nú uppi vegna útbreiðslu COVID-19. Þetta kemur fram á vef Neytendasamtakanna. Þar segir að nú séu uppi óvenjulegar og óviðráðanlegar aðstæður sem hafa verulega áhrif á framkvæmd pakkaferðar og því eigi farþegar rétt á að afpanta ferðir og fá að...
InnlentBílarnir teljast ekki lengur á útsölu eftir sex vikur5. febrúar 2020 Neytendastofa tók til meðferðar mál vegna útsöluauglýsinga BL ehf. og Brimborgar ehf. og komst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækin hefðu brotið ákvæði laga um viðskiptahætti og markaðssetningu auk útsölureglna með því að auglýsa afslátt í meira en sex vikur. Samkvæmt útsölureglum er litið svo á að þegar vara hefur verið auglýst á lækkuðu verði í sex vikur sé lækkaða verðið...
InnlentNeytendastofa varar við skarti frá Primark3. febrúar 2020 Neytendastofa hefur birt færslu á Facebook þar sem varað er við armböndum frá írsku fatakeðjunni Primark. Ástæðan er sú að armöndin innihalda of mikið kadmín. „Kadmín getur reynst skaðlegt mönnum þar sem að það safnast upp í líkamanum og getur skemmt líffæri og er jafnframt talið krabbameinsvaldandi,“ segir í færslu Neytendastofu. Í færslunni eru þeir sem kunna að eiga svona...
InnlentNova efst farsímafyrirtækja í ánægjuvoginni ellefta árið í röð24. janúar 2020 Viðskiptavinir Nova mælast þeir ánægðustu þegar kemur að farsímaþjónustu samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar, sem veitt var á við hátíðlega athöfn á Grand Hótel í morgun. Er þetta ellefta árið í röð sem Nova hlýtur þessa viðurkenningu. Niðurstöður rannsóknar Zenter sýna einnig að Nova er með besta appið á fjarskiptamarkaði að mati notenda. Að auki kom fram í niðurstöðum rannsóknanna að...
InnlentAðalsteinn tók mynd af ruslagámi Nettó: „Til hvaða ráða getum við gripið svo stórverslanir láti af svona ósóma“23. janúar 2020 Aðalsteinn Svan Hjelm tók í gær mynd af ruslagámi við versluna Nettó á Akureyri. Blöskraði honum innihald hans, en eins og sjá má á mynd sem hann birti á Facebook-síðu sinni þá er öllu hrúgað saman í gáminn: matvöru, plasti, pappakössum og fleira. „Ætla að leyfa myndinni að tala sínu máli en hér er öllu grautað saman; matvælum sem sjáanlega...
InnlentAð skila og skipta30. desember 2019 Verklagsreglur viðskiptaráðuneytisins mæla fyrir um að gjafabréf og inneignarnótur gildi í fjögur ár en verslanir eru oft með skemmri gildistíma. Þá er réttur neytenda takmarkaður ef til þess kemur að verslunin fari í þrot eða skipti um kennitölu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í aðsendri grein Breka Karlssonar, formanns Neytendasamtakanna, sem birtist í Mannlífi sl. föstudag. Þar fjallar...
SkoðunAðsend skoðunSkildagatíð30. desember 2019 Höfundur / Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna Nú um þessar mundir, þegar hátíðarmatarafgangar fylla ísskápa landsins, er víða venja að staldra við og fara yfir hvað hefur borið á fjörur okkar í gjafaflóði jólanna. Þó að gjafir séu jafnan gefnar af góðum hug, falla þær ekki alltaf að smekk, hið gefna hefur þegar verið til á heimilinu eða fjöldi samskonar gjafa...
InnlentHvar eru ódýrustu jólabækurnar? – Oft 40-60% munur á hæsta og lægsta verði18. desember 2019 Góð bók er alltaf klassísk jólagjöf en áður en hafist er handa við að finna réttu bókina handa vinum og vandamönnum er ágætt að vita hvar besta verðið er. Í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ á jólabókum sem gerð var 10. desember var Bónus oftast með lægsta verðið en Penninn.is oftast með hæsta verðið. Í mörgum tilfellum var verð á bókum Mál...
SkoðunAðsend skoðunSkýrari stefna, sterkari saman!4. nóvember 2019 Höfundur / Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Á kraftmiklum aðalfundi Neytendasamtakanna síðastliðinn laugardag var einróma samþykkt ný grunnstefna þeirra. Stefnan endurspeglar raunverulegt starf samtakanna og byggir á breiðum grunni. Í grunnstefnunni er ekki tekið á, eða farið ofan í, einstök málefni, en hana er þess í stað hægt að nota sem mælistiku á þau öll mál sem Neytendasamtökin glíma við hverju...
InnlentIKEA innkallar barnasmekki vegna köfnunarhættu30. september 2019 IKEA innkallar bláa og rauða MATVRÅ smekki vegna mögulegrar köfnunarhættu.
InnlentFA birtir myndrænt dæmi sem sýnir hlut ríkisins í verði áfengra drykkja18. september 2019 Félag atvinnurekenda hefur nú sett nokkur dæmi upp myndrænt til að útskýra hver hlutur ríkisins í verði áfengra drykkja er.