Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Aðalsteinn tók mynd af ruslagámi Nettó: „Til hvaða ráða getum við gripið svo stórverslanir láti af svona ósóma“

Aðalsteinn tók mynd af ruslagámi Nettó: „Til hvaða ráða getum við gripið svo stórverslanir láti af svona ósóma“
|Allt í einum graut

Aðal­steinn Svan Hjelm tók í gær mynd af ruslagámi við versl­una Nettó á Akureyri. Blöskr­aði honum inni­hald hans, en eins og sjá má á mynd sem hann birti á Facebook-síðu sinni þá er öllu hrúgað saman í gám­inn: mat­vöru, plasti, pappa­kössum og fleira.

„Ætla að leyfa mynd­inni að tala sínu máli en hér er öllu grautað saman; mat­vælum sem sjá­an­lega hefði mátt gefa, pappa­kössum og plasti sem ég hélt í sak­leysi mínu að væri nán­ast skylda að flokka frá. Vænt­an­lega allt á leið í urðun,“ skrifar Aðal­steinn og bætir við að versl­unin sem um ræðir standi þessa daga fyrir Heilsu- og lífs­stíl­dögum.

Allt í einum graut Mynd / Facebook

Í fyrstu þá til­tók Aðal­steinn ekki nafn versl­un­ar­innar, en eftir ábend­ingar og hvatn­ingu til þess þá nafn­greindi hann hana, en um er að ræða verslun Nettó á Gler­ár­torgi á Akureyri.

Aðal­steinn spyr einnig til hvaða ráða neyt­endur geti gripið „svo að stór­versl­anir á borð við þessa láti af svona ósóma? Ég hefði til dæmis haldið að sam­keppn­is­for­skot gæti falist í því að draga úr plast­notkun og hlífa nát­úr­unni eins vel og unnt er með því að flokka ruslið skil­merki­lega. Nokkuð sem fyr­ir­tækið gæti svo gert sér mark­aðs­legan mat úr og flaggað með stolti.“

Á vef Samkaupa sem reka Nettó versl­an­irnar segir: „Við hjá Sam­kaupum berum virð­ingu fyrir umhverf­inu og leitum stöðugt leiða til að lág­marka umhverf­is­á­hrif af starf­semi okkar. Við notum auð­lindir af ábyrgð og tökum til­lit til umhverf­is­ins í dag­legum rekstri okkar.“ Einnig segir þar aðð áhersla sé lögð á flokkun á sorpi. Það er því ljóst að stefnu fyr­ir­tæk­is­ins hefur ekki verið fylgt í þessu til­viki.

Færsla Aðal­steins birt­ist klukkan 17 í gær­dag og hefur hún þegar þetta er skrifað fengið fjölda athuga­semda og 234 deil­ingar.

Klukkan 20.48 skrifar Hallur Geir Heið­ars­son rekstr­ar­stjóri Nettó athuga­semd við færsl­una, þar sem hann biðst vel­virð­ingar á atvik­inu og segir að farið verði yfir verk­lag versl­un­ar­innar:

„Heill og sæll Aðal­steinn. Við erum alltaf að vinna að því að bæta okkur í þessum málum en þarna brugð­umst við. Við biðj­umst inni­legrar afsök­unar á því og munum fara yfir verk­lag í verslun okkar.
Nettó hefur verið leið­andi í að flokka og end­ur­vinna og í fyrra forð­uðum við 210 tonnum frá því að lenda í gámnum með því að bjóða stig hækk­andi afslætti þegar vörur eru að falla á tíma. En betur má ef duga skal.
Þakka þér kær­lega fyrir ábend­ing­una. Við munum bregð­ast við henni. Mbk. Nettó.“

Aðal­steinn upp­færir því færslu sína nokkru síðar með orð­unum: „Nettó hefur beðist afsök­unar á þessu fram­ferði og lofar betrun. Virð­ing­ar­vert og til fyr­ir­myndar ef þeir breyta um kúrs og flokka allt rusl héðan í frá eins og við hin hér á Akureyri. Upplagt t.d að sýna slík mynd­bönd á sam­fé­lags­miðlum Samkaupa. Það myndi auka traust á fyr­ir­tæk­inu og jafn­vel skapa því eft­ir­tekta­verða sér­stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við