InnlentFlóttinn mikli af RÚV heldur áfram: „Stutt í heykvíslar og ýmiss konar árásir og áreitni“4. janúar 2022 Líkt og Mannlíf greindi frá í gær þá hefur Einar Þorsteinsson, stjórnandi Kastljóssins á RÚV, látið af störfum og að framundan væru ný verkefni á nýjum vinnustað hjá kappanum. Einar hefur þótt harður í horn að taka og alls ófeiminn að spyrja erfiðra spurninga og ekki verður auðvelt að fylla hans skarð. Fréttastofa RÚV hefur orðið fyrir ansi miklum skakkaföllum...
SlúðurÁsmundur og börn í smithættu4. janúar 2022 Ásmundur Einar Daðason menntamálaráðherra var lykilmaður í stórsigri Framsóknarflokksins í liðnum kosningum. Ásmundur sigraði ekki síst vegna öflugs framlags í þágu barna og þeirrar umhyggju sem hann bar fyrir velferð þeirra. En nú er öldin önnur og ráðherrann er sakaður um að stofna börnum í smithættu með því að galopna skólana á sama tíma Covid-faraldurinn er í hámarki. Þetta gerir...
SlúðurHarðnar á dal Davíðs3. janúar 2022 Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, verður 74 ára þann 17 janúar næstkomandi. Hann hefur mörg undanfarin ár verið á framfæri Morgunblaðsins og Guðbjargar Matthíasdóttur, auðkonu í Vestmannaeyjum sem hefur lagt blaðinu til líflínu í gegnum kvótaauð sinn. Því hefur lengi verið spáð að Davíð sér á förum frá blaðinu en hann er þaulsætinn. En nú kann að harðna á dalnum hjá...
SlúðurÞórólfur kærði hótanir3. janúar 2022 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er einn dáðasti Íslendingurinn nú um stundir. Hann lenti ofarlega í kjöri Mannlífs um Hetju ársins og var kosinn Manneskja ársins á Ras 2. Líf Þórólfs er þó ekki aðeins dans á rósum. Hann er umdeildur og jafnvel hataður í hópi þeirra sem eru andvígir bólusetningum. Þórólfur, sem er annálað góðmenni, upplýsti í þættinum Okkar í milli...
SlúðurSigur Jóns Bjarka1. janúar 2022 Heimildamyndin Hálfur álfur hefur svo sannarlega slegið í gegn. Í myndinni fylgist Jón Bjarki Magnússon blaðamaður með lokakaflanum í lífi afa síns, Trausta Breiðfjörð Magnússonar fyrrverandi vitavarðar á Sauðanesvita. Myndin hefur hlotið mikið lof en þar er að finna óborganlega kafla eins og þegar Trausti er að skoða líkkistu sína sem hann hafði valið sér af alúð. Gamli maðurinn átti...
SlúðurHorft til Elliða31. desember 2021 Spennan vegna kjörs leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fer vaxandi. Eyþór Arnalds hvarf sem kunnugt er frá .því að gefa kost á sér til endurkjörs svo eftir stendur Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi sem skoraði hann á hólm. Hildur kemur úr þeim armi Sjálfstæðisflokksins sem fylgir Bjarna Benediktssyni formanni að málum. Stuðningsmenn höfuðandstæðings hans Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, leita nú logandi ljósi að frambjóðanda...
SlúðurHildur eyddi færslu30. desember 2021 Hildur Björnsdóttir, leiðtogaefni Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, er undir smásjá marga þessa dagana og sýnist sitt hverjum um stefnu hennar og hæfileika sem leiðtoga. Meðal þeirra sem efast er Þorkell Á. Jóhannsson flugmaður og eindreginn stuðningsmaður þess að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýriunni. Hann skrifar grein í Moggann í dag þar sem hann skammar Hildi fyrir að vera ekki öll þar...
SlúðurÖgmundur reiðir til höggs29. desember 2021 Margir bíða þess í nokkru ofvæni að lífsbók Ögmundar Jónassonar, fyrrverandi ráðherra, komi út um áramótin. Ögmundur var lengi vopnabróðir og náinn samherji Steingríms J. Sigfússonar, stofnanda Vinstri-grænna. En svo varð vik milli vina. Á meðan ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms var við völd komst Ögmundur í uppreisnarham og vék loks sem ráðherra. Þetta var þegar villikettirnir voru upp á sitt...
SlúðurÁsmundur og nektardansinn28. desember 2021 Ásmundur Friðriksson, alþingismaður Sjálfstæðisflokks, var harðorður eftir sýningu á fyrsta þættinum úr sjónvarpsseríunni Verbúðin sem hlotið hefur lof langflestra. Taldi hann að Ríkisútvarpið væri með sýningu þáttanna að afhjúpa fordóma sína gagnvart landsbyggðinni með umfjöllun um nekt og taumlaust fyllerí. Meðal annars kom fyrir nektardansmær sem baðaði sig í bala. Margir hafa orðið til þess að svara honum fullum hálsi....
SlúðurVerbúð Kristjáns Þórs27. desember 2021 Óhætt er að segja að sjónvarpsþáttaröðin Verbúðin hlaut góðar móttökur hjá áhorfendum í gærkvöld. Fyrirmynd þáttanna ser íslenska kvótakerfið með öllu sem því fylgir. Serían á að gerast á Vestfjörðum þars em einn dramatískasti viðburðurinn var sá þegar aflaskipið Guðbjörg ÍS var yfirtekið af Samherja með góðri hjálp þáverandi bæjarstjóra Ísfirðinga, Kristjáns Þórs Júlíussonar. Bæjarstjóranum í þáttunum, sem Gísli Örn...
SlúðurGunni Þórðar semur um Tyrkjaránið24. desember 2021 Tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðarson situr ekki auðum höndum þótt hann glími við afbrigði af parkinsonsveiki og geti ekki lengur með góðu móti spilað á gítarinn af alkunnri snilld. Gunnar sagði sögu sína af einlægni í Mannlífinu með Reyni Traustasyni þar sem ekkert var dregið undan. Undanfarin ár hefur meistarinn lagt fyrir sig klassíska tónlist og samið stórvirki á borð við Ragnheiði....
SlúðurLogi vekur furðu23. desember 2021 Friðlýsing Dranga á Ströndum gleður margan þann sem vill standa vörð um náttúru og fornar minjar. Þetta seinasta verk Guðmundar Inga Guðbrandssonar í embætti umhverfisráðherra gladdi þó ekki alla. Harðlínuöfl innan Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins lögðust af umtalsverðum þunga gegn afgreiðslunni. Og mönnum til mikillar furðu reis Samfylkingarfólk, með Loga Einarsson formann í stafni, gegn þessu máli. Fæstir botna í þessari...