SlúðurFurðuleg ráðstöfun með Jón29. nóvember 2021 Fæstir botna í þeirri ráðstöfun Barna Benediktssonar að gera Jón Gunnarsson að dómsmálaráðherra og sniðganga Guðrúnu Hafsteinsdóttur, oddvita flokksins í Suðurkjördæmi. Að vísu fylgir sá böggull skammrifi að áætlað er að Jón víki eftir 18 mánuði og Guðrún komi þá inn. Þess utan er Njáll Trausti Friðbertsson, leiðtogi í Norðausturkjördæmi sniðgenginn við ráðherraval. Landsbyggðarmenn eru grautfúlir vegna framgöngu formannsins. Víst...
SlúðurMegas á heiðurslaunum28. nóvember 2021 Tónlistarmaðurinn Megas er í miklum vanda eftir að Stundin birti viðtal við Bergþóru Einarsdóttur, sem lýsti þvði hvernig Megas og Gunnar Þór Jónsson, kenndur við Súkkat, misnotuðu hana báðir gróflega. Megas jók á harm Bergþóru þegar hann samdi lag og texta um atvikið og kallaði hana Litlu ljót. Lagið fluttu meintir gerendur með hljómsveitinni Megasukk. Bergþóra leitaði til lögreglunnar á...
SlúðurSælands-sextettinn28. nóvember 2021 Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, má svo sannarlega una glöð við sitt eftir að hafa tekið með sér fimm galvaska þingmenn á Alþingi. Flestir sáu fyrir sér eyðimerkurgöngu eftir að hún rak helming þingflokksins, Karl Gauta Hjaltason og Ólaf Ísleifsson, eftir uppistandið á Klausturbarnum. Hinir brottreknu gengu til liðs við drykkjufélaga sína en þurftu báðir að mæta þeim örlögum sínum...
Slúður„Vafasamur heiður“ Þorgerðar27. nóvember 2021 Alþingi er loks komið saman eftir langa og stranga mæðu. Aldursforseti þingsins er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sem svo sannarlega hefur markað sín spor í stjórnmálasögu Íslands. Það sem ræður upphefð hennar er ekki lífaldurinn heldur sá tími sem hún hefur starfað á Alþingi. Höskuldur Kári Schram, fréttamaður Ríkisútvarpsins, átti afar sérkennilega innkomu í sjónvarpsfréttum þegar hann lýsti stöðu...
SlúðurHitnaði undir Loga27. nóvember 2021 Golfheimurinn bókstaflega logaði í vikunni vegna meints svindls við bókanir á golfvelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður og félagar hans höfðu dottið niður á lausn sem gaf þeim forgang á bókanir á golfvelli. Eftir að allt fór í bál og brand steig fram maður sem axlaði ábyrgð á málinu. „Jæja… ég bjóst aldrei við því að verða fyrir...
Slúður„Svartur fössari” á hlutabréfamarkaði … nema hjá Sýn26. nóvember 2021 Hlutabréfamarkaðir í Evrópu opnuðu allir rauðir í morgunsárið á hinum svokallaða Black Friday og útlit fyrir að markaðir vestanhafs myndi einnig opna á „útsölu“. Kauphöllin á Íslandi var engin undantekning og viðskipti hófust með skörpum lækkunum og þá sérstaklega í flugfélögum. Á því var þó ein undantekning en fjarskiptafyrirtækið Sýn hækkaði fljótlega í hundruðum milljóna króna viðskiptum um ríflega 3...
SlúðurKolbeinn sáttur á Siglufirði26. nóvember 2021 Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrverandi alþingismaður Vinstri grænna, hefur söðlað algjörlega um eftir að hann hætti við að bjóða sig fram til þings aftur í kjölfar ásakana um að hann hefði farið út fyrir mörk í samskiptum við konur. Hann er fluttur til Siglufjarðar og sinnir meðal annars blaðamennsku fyrir Skessuhorn. Kappinn er þaulreyndur blaðamaður og fengur fyrir héraðsblaðið að fá...
SlúðurBlautur draumur og tvístígandi Stefán25. nóvember 2021 Nokkur upplausn ríkir innan Ríkisútvarpsins vegna atgervisflótta úr fréttaskýringaþættinum Kveik og af fréttastofu. Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri hefur upplýst að hún sé á förum og fréttastofan því í raun orðin að höfuðlausum her. Enginn botnar í þeirri ákvörðun Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra að hafa ekki auglýst strax eftir nýjum manni í stöðuna. Það er rakið til kjarkleysis og að hann bíði eftir...
SlúðurÓli Björn og sonur ekkjunnar24. nóvember 2021 Mikið er um það talað að Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, sé á förum frá blaðinu um áramót þegar hann verður 74 ára. Guðbjörg Matthíasdóttir, ekkja Sigurðar Einarssonar útgerðarmanns í Vestmannaeyjum, er aðaleigandi Moggans og það mun kom í hennar hlut að skipa arftaka Davíðs. Hún hefur mörg undanfarin ár veitt gamla stjórnmálaforingjanum skjól og lifibrauð í amstri lífsins. Þannig hefur...
SlúðurUpplausn í Eilífðarnefnd Birgis23. nóvember 2021 Tveggja mánaða þref innan Eilífðarnefndarinnar, sem áttu að skila tillögu um lausn á kjörgagnahneykslinu í Norðvesturkjördæmi hefur ekki skilað neinu öðru en þríklofinni nefnd. Einn hluti vill uppkosningu, annar vill að fyrsta talning ráði og sá þriðji að seinni talning ráði. Birgi Ármannssyni, formanni nefnarinnar, hefur gjörsamlega mistekist að ná fram samhljómi um leiðina út úr klúðri Inga Tryggvasonar og...
SlúðurGuðlaugur ræður ráðherravali21. nóvember 2021 Titringur innan ráðherraliðs ríkisstjórnarinnar vex með hverjum deginum sem líður. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á það erfiða verkefni fyrir höndum að velja í ráðherrastól Kristjáns Þórs Júlíussonar sem glataði sínu pólitíska lífi og sveif á brott á englavængjum Samherja. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra er þyrnir í augum Bjarna sem myndi væntanlega færa hann skör neðar í virðingarstiganum ef sá möguleiki...
SlúðurDagur svarar í véfréttastíl20. nóvember 2021 Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er með þaulsætnari borgarstjórum. Hann heldur sínu fólki enn í óvissu og kvíða um það hvort hann sé á förum. Í hátíðarviðtali í Fréttablaðinu er hann spurður þeirrar sömu spurningar en svarar sem fyrr í véfréttastíl. Vandinn hjá meirihlutanum er sá að það er enginn í sjónmáli sem getur fyllt upp í skarð hans. Brotthvarf Dags...