SlúðurEnskukunnátta Guðlaugs3. júní 2021 Toppslagurinn í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins er að harðana. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra auglýsa hvort í kapp við annað. Áslaug leggur áherslu á að kjósendur velji framtíðina en Guðlaugur leggur áherslu á reynslu og laumar því inn hjá kjósendum að dómsmálaráðherrann sé nýliði í stjórnmálum. Guðlaugur hefur sumpart staðið sig ágætlega sem utanríkisráðherra. Framan af var hann...
SlúðurHrútalyktin minnkar2. júní 2021 Eftir að Guðrún Hafsteinsdóttir vann glæstan sigur í Suðurkjördæmi blasir við að konur eru í sókn í Sjálfstæðisflokknum sem lengi vel var stækasta karlaveldi með tilheyrandi hrútalykt. Líklegt er að Þórdís Kolbrún Reykjörð Gylfadóttir leggi bændahöfðingjann Harald Benediktsson í Norðvesturkjördæmi og að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fari nokkuð létt með Guðlaug Þór Þórðarson í Reykjavík. Guðlaugur mun þó væntanlega ná að...
SlúðurSniðganga Egils1. júní 2021 Egill Helgason, sá rótgróni spjallþáttastjórnandi og einn helsti gæðingur Ríkisútvarpsins, hefur á sér það orð að hleypa helst ekki öðrum að þáttum sínum en þeim sem njóta velþóknunar hans og nánustu klíku. Í síðasta Silfri vetrarins voru kallaðir til stjórnmálaleiðtogar þeirra flokka sem sitja á þingi til að halda einskonar framboðsræður. Fulltrúar þeirra flokka sem þegar hafa boðað framboð sitt...
SlúðurSkæruliðar Samherja á skilorði31. maí 2021 Skæruliðadeild Samherja varð fyrir áfalli í gær þegar yfirstjórn Samherja baðst afsökunar á bolabrögðum og vélráðum þeirra Þorbjörns Þórðarsonar, fyrrverandi fréttamanns og leynipenna,Örnu Bryndísi Baldvins McClure og Þorsteins Steingrímssonar skipstjóra. Þá má ekki gleyma þætti Jóns Óttars Ólafssonar leynilöggu sem í umboði Þorsteins Más Baldvinssonar sat um Helga Seljan og sendi honum ógnandi SMS-skilaboð úr leyninúmer. Allt hefur þetta hyski...
SlúðurAflakóngur flæktur í draugaskrif29. maí 2021 Nýjasti leikarinn í drama Samherja er aðalskipstjóri félagsins, Guðmundur Jónsson á Vilhelm Þorsteinsyni EA, sem setti nafn sitt við grein sem skæruliðarnir og undirróðursmennirnir, Páll Steingrímsson skipstjóri og Þorbjörn Þórðarson, fyrrverandi fréttamaður Stöðvar 2, skrifuðu. Guðmundur er annálaður aflakóngur og þekktur fyrir prúðmennsku. Þeir sem til hans þekkja eru í forundran yfir þessu leynimakki hans og því að hann sigli...
SlúðurBlóðtaka vegna Sigmars28. maí 2021 Brotthvarf Sigmars Guðmundssonar fréttamanns frá Ríkisútvarpinu er enn eitt dæmi um að lykilmenn í fréttum og fréttaskýringum eru á flótta frá stofnunni. Þau örlög mæta honum að hann er kominn í framboð fyrir Viðreisn sem logar í illdeilum vegna Benedikts Jóhannessonar, fyrrverandi fjármálaráðherra, sem var smáður og hrakinn á brott við uppstillingu á lista flokksins. Meðferðin á Benedikt er augljóslega...
SlúðurBrynjar fer á foraðið27. maí 2021 Brynjar Níelsson alþingismaður er í senn kjarkaður, ófyrirsjáanlegur og haldinn athyglisþörf á háu stigi. Hann er einn af örfáum sem fer gegn straumnum og tekur málstað Samherja að nokkru marki. Í gær mætti hann Þórði Snæ Júlíussyni, ritstjóra Kjarnans og fastagesti hjá RÚV. Þórður hefur birt ógrynni af gögnum úr síma Páls Steingrímssonar, skipstjóra og skæruliða Samherja. Meðal þess sem...
SlúðurSkæruliði Samherja rændur á sjúkrabeði26. maí 2021 Eitt einkennilegasta útspil Samherja í máli Skæruliðasveitar félagsins er frásögn Morgunblaðsins af því hvernig gögn Páls Steingrímssonar, skipstjóra og undirróðursmanns, sem sýna vélráð félagsins, bárust til fjölmiðla. Garðar Gíslason, lögmaður Samherja, segir frá því að Páll hafi veikst og þurft á öndunarvél að halda. Þá hafi síma hans verið stolið með þeim afleiðingum að nú veit öll þjóðin um fantaskap...
SlúðurÞegar Davíð hraunaði yfir Tryggva25. maí 2021 Tryggvi Gunnarsson, fyrrverandi umboðsmaður Alþingis, gerir upp feril sinn í viðtali við Stundina þar sem margt áhugavert kemur fram. Meðal annars rifjar hann upp símtal við fyrrverandi forsætisráðherra. Davíð Oddsson hringdi í hann, ævareiður og hraunaði yfr hann, vegna þess að Tryggvi hafði gert alvarlegar og rökstuddar athugasemdir við skipan Ólafs Barkar Þorvaldssonar, frænda Davíðs, sem hæstaréttardómara. Símtalið var ógnandi...
SlúðurNjáll í rógsvél Samherja24. maí 2021 Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, hefur staðið í skugga Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegsráðherra og oddvita í Norðausturkjördæmi. Kristján þór, sem hefur gjarnan verið skilgreindur sem ráðherra Samherja, er nú á förum úr pólitík og hefur Njáll Trausti óskað eftir sæti hans. Þetta líkar Samherjamönnum og þá sérstaklega Þorsteini Má Baldvinssyni forstjóra afar illa ef marka má leyniskjöl sem Kjarninn komst...
SlúðurKlausturkarl hrökklast af þingi23. maí 2021 Boðað brotthvarf Gunnars Braga Sveinssonar, þingmanns Miðflokksins, hefur vakið nokkra athygli en þó ekki undrun. Gunnar Bragi er einn þeirra þingmanna sem sýndi af sér óviðundandi framkomu á Klausturbarnum þegar hann þvældi ofurölvi og beraði kvenfyrirlitningu sína. Allt þetta lenti á upptöku hjá Báru sem sat á næsta borði. Gunnar Bragi var á sínum tíma í náðinni hjá Þórólfi Gíslasyni,...
SlúðurFyrirlitnasti fjölmiðlamaðurinn22. maí 2021 Gögnin, sem lekið var frá Páli Steingrímssyni skipstjóra, leiða í ljós að rætnar greinar Páls voru ekki aðeins skrifaðar með velþóknun yfirboðara hans hjá Samherja heldur beinlínis af leigupennum fyrirtækisins. Þorbjörn Þórðarsson, fyrrverandi fréttamaður á Stöð 2 og blaðamaður Morgunblaðsins, hefur skrifað stærstan hluta greina skipstjórans undirgefna. Þorbjörn átti sitt blómaskeið í fréttamennsku og naut nokkurrar virðingar fyrir að fara...