SlúðurRangfærslur Sögu7. maí 2021 Lögmaðurinn Saga Ýrr Jónsdóttir ver hagsmuni Sölva Tryggvasonar í málum hans. Samtal þeirra í hlaðvarpsþætti Sölva, sem ber yfirskriftina Slúðursaga, var með miklum endemum. Lögmaðurinn hamraði stöðugt á sakleysi hans og sekt áhrifavalda, álitsgjafa og Mannlífs. Eitt það merkilegasta sem fram kom var skýring Sögu á því að þau birtu einungs málaskrá Sölva hjá lögreglu í rúman mánuð. Gaf hún...
SlúðurÁslaug í stríðsham6. maí 2021 Ein skærasta stjarna íslenskra stjórnmála, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, er komin í stríðsham og hefur tilkynnt að hún sækist eftir að verða í 1. sætinu í Reykjavík. Eins og spáð hafði verið á þessum vettvangi þá skorar hún þá Guðlaug Þór Þórðarsson utanríkisráðherra á hólm og mun væntanlega ýta honum úr 1. sætinu. Áslaug Arna nýtur víðtæks stuðning innan Sjálfstæðisflokksins...
SlúðurKolbeinn verður fyrir aðkasti5. maí 2021 Harka er að færast í kosningabaráttuna. Þingmenn Vinstri grænna eiga undir högg að sækja vegna meintrar þjónkunnar sinnar við auðvaldið í landinu. Félagsskapurinn Fólkið í landinu stendur fyrir auglýsingaherferð þar sem þingmenn VG eru myndbirtir og sagt að þeir ætli að selja Íslandsbanka. Kolbeinn Óttarsson Proppé, sem brotlenti framboði sínu í Suðurkjördæmi, er einn þeirra sem sagður er vilja selja...
SlúðurStórleikur Sigríðar4. maí 2021 Sigríður Dögg Auðunsdóttir, nýkjörinn formaður Blaðamannafélags Íslands, átti stórleik á fyrstu dögum í embætti sínu þegar húyn snupraði eigendur Árvakurs fyrir liðsinni Morgunblaðsins í aðför Samherja að Helga Seljan, fréttamanni Ríkisútvarpsins. Sigríður Dögg og stjórn Blaðamannafélagsins fordæmdu aðförina og fóru fram á fund með eigendum Árvakurs. Samstaðan með Helga og hinum ofsóttu á RÚV var algjör Viðbrögðin í höfuðstöðvum Moggans...
SlúðurEnn eitt áfall Samherja3. maí 2021 Sjávarútvegsfyrirtækið alræmda, Samherji, varð fyrir enn einu áfallinu þegar norska fjármálaeftirlitið sektaði norska bankann DNB um sex milljarða íslenskra króna, fyrir lélegt eftirlit með peningaþvætti. Hluta af þessu má rekja til fyrirtækja Samherja sem eru til rannsóknar fyrir meintar mútugreiðslur og fleiri lögbrot í Namibíu og Færeyjum. Bankinn unir hinni himinháu sekt. Þorsteinn Már Baldvinsson , forstjóri Samherja, hafði þáður...
SlúðurKvótadrottning og Samherji1. maí 2021 Morgunblað Guðbjargar Matthíasdóttur, kvótadrottningar í Vestmannaeyjum, hefur nú lagst á árarnar með Samherja og dreifir auglýsingaáróðri gegn Helga Seljan fréttamanni og RÚV. Samherji hefur verið nánast fordæmdur fyrir auglýsingarnar sem fela í sér einelti á starfsmenn RÚV og þá sérstaklega Helga. Það heldur ekki Mogganum frá því að hella sér í slormennskuna með fyrirtækinu. Einhverjir telja að Mogginn hafi ekki...
SlúðurHrollur í Svartstökkum vegna Reykholts30. apríl 2021 Svartstakkar innan Þjóðkirkjunnar eru ekki ánægðir með nýjast útspil Agnesar Sigurðardóttur biskups sem hefur ráðið Hildi Hörpudóttur sem sóknarprest í Reykholti í Borgarfirði. Hildur varð þekkt þegar hún stóð í grimmri forræðisdeilu og tálmaði samskiptum við börn sín. Hún fór í meiðyrðamál við fyrrverandi mág sinn sem kallaði hana tálmunarmóður en tapaði því. Harpa er talin vera dyggur stuðningsmaður biskups...
SlúðurEkki sparka í Gísla Martein29. apríl 2021 Einn seinheppnasti stjórnmálamaður Íslands er Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem skrifaði hrokafulla grein um Gísla Martein Baldursson, sjónvarpsmann og umhverfissinna. Marta uppnefndi Gísla Martein sem pjakk og prinsessu og talaði niður til hans. Greinin vakti bæði furðu og fordæmingu innan Sjálfstæðisflokksins sem utan. Samherjar Mörtu innan borgarstjórnar snupruðu hana. Gísli Marteinn er einn helsti talsmaður heilbrigðs lífsmáta innan flokksins og...
SlúðurBlóðugur slagur við bændahöfðingja28. apríl 2021 Spennan vegna örlaga oddvita stjórnmálaflokkanna heldur áfram. Í Norðausturkjördæmi er Kristján Þór Júlíusson, leiðtogi Sjálfstæðismanna og sjávarútvegsráðherra, búinn að lýsa yfir uppgjöf og mun hætta. Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður og næsti maður á lista vill taka við keflinu. Í Norðvesturkjördæmi er bændahöfðinginn Haraldur Benediktsson, oddviti Sjálfstæðismanna og vill vera það áfram. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ferðamálaráðherra, er...
SlúðurGötustrákur í drengjakór27. apríl 2021 Í aðdraganda kosninganna er mest áberandi að gömlum og grónum þingmönnum er hafnað, þvert á flokka. Sumir sjá sjálfir sinn vitjunartíma eins og Páll Magnússon, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem lagði upp laupana af ótta við kjörísdrottninguna, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, sem skoraði hann á hólm. Páll lýsti sjálfur yfir endalokum ferils síns. Síðast féll Lilja Rafney Magnúsdóttir, leiðtogi VG í Norðvesturkjördæmi...
SlúðurRáðherrasonurinn lagði Lilju26. apríl 2021 Skuggalegt ástand er innan óbreyttra þingmanna VG sem leiddir hafa verið eins og lömb til slátrunar í hverju forvalinu á fætur öðru. Nýjasta fórnarlamb bylgjunnar er Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður og oddviti í Norðvesturkjördæmi, sem laut í gras fyrir ráðherrasyninum Bjarna Jónssyni, fiskifræðingi og sveitarstjórnarmanni. Bjarni er af mikilli valdaætt, sonur Jóns Bjarnasonar fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og bróðir Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra....
SlúðurSeðlabankastjóri lúskrar á Þorsteini Má24. apríl 2021 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri var ómyrkur í máli þegar hann fjallaði í viðtali við Stundina um Samherja og framgöngu Þorsteins Más Baldvinssonar forstjóra. Ásgeir nefndi lögreglukærur Samherjamanna á hendur starfsmönnum Seðlabankans sem höfðu komið að rannsókn á því hvort félagið hefði haft rangt við í viðskiptum með karfa milli landa. Taldi Ásgeir nauðsynlegt að setja lög sem verndi opinbera starfsmenn fyrir...