SlúðurÖrlög Bjarna ráðast5. desember 2024 Framtíð Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, er í uppnámi ef svo fer sem horfir að Kristrúnu Frostadóttur takist að mynda ríkisstjórn með Viðreisn og Flokki fólksins svo sem felst bendir til. Mikill samstarfsvilji einkennir viðræður Kristrúnar, Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, og ný ríkisstjórn er við sjónarrönd. Þar með verður Sjálfstæðisflokkurinn utan ríkisstjórnar og Bjarni...
SlúðurReiði vegna Sigurðar4. desember 2024 Framsóknarflokkurinn er í leiðtogakreppu eftir kosningarnar. Sigurður Ingi Jóhannsson formaður komst haltrandi inn á þing sem uppbótarþingmaður á kostnað Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem þar með hvarf af hinu pólitíska sviði. Willum fór þar með sömu leið og Lilja Alfreðsdóttir varaformaður og Ásmundur Einar Daðason barnamálaráðherra sem bæði þóttu hæf til þess að taka við flokknum. Ólíklegt er að nokkurt...
SlúðurLjótt af Einari4. desember 2024 Einar Kárason, rithöfundur og álitsgjafi, lætur sjaldnast neinn eiga inni hjá sér. Guðmundur Andri Thorsson, félagi hans í stétt rithöfunda, gerði grín að Einari eftir að sá síðarnefndi hafði kvartað opinberlkega undan því að hafa ekki fengið dúsu frá ríkinu í formi rithöfundalauna. Þá kom á daginn að Einar hafði ekki klárað umsókn sína með því að senda tölvupóst með...
SlúðurFortíð Guðmundar Ara3. desember 2024 Margir innanbúðarmenn Samfylkingarinnar eru spenntir að sjá hvað Guðmundur Ari Sigurjónsson, tilvonandi þingmaður flokksins, tekst að gera á sínu fyrsta kjörtímabili. Guðmundur hefur sem oddviti í undanförnum sveitarstjórnarkosningum náð að saxa verulega á fylgi Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi og fékk Samfylkingin yfir 40% atkvæða yfir stjórn Guðmundar árið 2022. Eitt sem ekki margir utan Seltjarnarness vita um fortíð Guðmundar er að...
SlúðurÞórður Snær fær vinnu3. desember 2024 Dagur B. Eggertsson, alþingismaður Samfylkingar, fer ekki með gott veganesti inn á þing. Hann var yfirstrikaður af tæplega 1500 manns og féll niður um sæti. Þetta gerðist í framhaldi þess að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, benti væntanlegum kjósanda á þann möguleika í einkaskilaboðum að strika Dag út. Það verður þó borgarstjóranum fyrrverandi til bjargar að Þórður Snær Júlíusson, frambjóðandi í...
SlúðurVistaskipti Snorra2. desember 2024 Fáir hafa verið jafn mikið tannanna á fólki í kosningabaráttunni og Snorri Másson, tilvonandi þingmaður Miðflokksins, en hann fékk mikið pláss í fjölmiðlum og hefur tengslanet hans sem fyrrverandi fréttamaður eflaust hjálpað honum í þeim efnum. Orðræða hans hefur þótt umdeild á köflum og jafnvel hatursfull að mati sumra hópa en stuðningsmenn Miðflokksins telja fréttamanninn fyrrverandi vonarstjörnu íslenskra stjórnmála. Stuðningsmennirnir...
SlúðurSigurður axli ábyrgð2. desember 2024 Ekki eru allir sáttir við þá niðurstöðu að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, skaust inn á þing á elleftu stundu á kostnað Willums Þórs Willumssonar heilbrigðisráðherra sem þar með féll. Innan úr flokknum heyrist að réttast sé að krefjast endurtalningar atkvæða í Suðurkjördæmi þar sem afar mjótt var á munum og örfá atkvæði skildu milli lífs og dauða hjá formanninum....
SlúðurVill einvígi við Kára1. desember 2024 Snorrri Másson, þingmaður Miðflokksins, er eitt af undarbörnum kosninganna. Á skömmum tíma hefur hann losð sig frá harkinu á Stöð 2 og er orðinn þingmaður. Snorri kann þá list að vekja á sér athygli. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, skammaði hann eins og hund fyrir að kunna ekki mannasiði eftir að hann breiddi úr sér og lagði einn undir sig...
SlúðurSkuggahliðar Stefáns E.30. nóvember 2024 Stefán E. Stefánsson, spyrill Morgunblaðsins, hefur átt stórleik í aðdraganda kosninganna og flett ofan af syndum kvenhatara sem og annarra sem ekki falla í kram hægri aflanna. Stefán þykir um margt vera geðþekkur og á marga góða spretti opinberlega. En hann á sér þær skuggahliðar að vera afar vanstilltur og stríðsglaður á netinu, gjarnan þegar líður á kvöld. Hann þolir...
SlúðurTilhlökkun Katrínar29. nóvember 2024 Það hefur farið lítið fyrir Katrínu Jakobsdóttur á Íslandi síðan hún sagði af sér sem forsætisráðherra fyrr á þessu ári til að bjóða sig fram til forseta Íslands en Katrín lenti þar eftirminnilega í 2. sæti á eftir Höllu Tómasdóttur. Þó var tilkynnt í nóvember að Katrín muni verða formaður nefndar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um loftlagsbreytingar og heilsu og tekur við því...
SlúðurMyndin af Söru Lind29. nóvember 2024 Guðlaugur Þór Þórðarsson, ráðherra umhverfismála, er á meðal duglegustu ráðamanna þar sem kemur að því að koma sér og góðum málum á framfæri. Mogginn birtir frétt í dag þar sem í öndvegi er samsett mynd er af ráðherranum og þeirri umdeildu Söru Lind Guðbergsdóttur, eiginkonu blaðamannsins geðþekka, Stefáns E. Stefánssonar, og fyrrverandi skjólstæðingi Sjálfstæðisflokksins. Fréttin fjallar um fyrirbærið Ráðhildi, forrit...
SlúðurHjónabandsmál Sigurðar Inga28. nóvember 2024 Það gerist ekki oft að sami stjórnmálaflokkurinn búi til verstu og bestu auglýsingarnar fyrir alþingiskosningar en Framsóknarflokkurinn hefur unnið það afrek. Það þarf svo sem ekki að segja meira um þá verstu en nóg hefur verið sagt um hana áður. Ekki nóg með að sama flokknum hafi tekist svo furðulega til þá er leikarinn sá sami, Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður...