SlúðurÁfall fyrir Jón Baldvin16. janúar 2021 Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, er í miklum vanda eftir að þrjár nafngreindar konur, Ragna Björg Björnsdóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir og Elísabet Sif Helgadóttir stíga fram í Fréttablaðinu í dag og lýsa kynferðislegri áreytni hans. Konurnar eiga það sameiginlegt að vera óumdeildar. Sigurbjörg var 15 ára nemandi í Hagaskóla þegar hún segir að Jón Baldvin, kennari hennar, hafi áreytt sig gróflega...
SlúðurAllt brjálað í Samfylkingunni15. janúar 2021 Allt fór á annan endann í Samfylkingunni þegar kom á daginn að trúnaðarupplýsingum umm baktjaldaprófkjör var lekið í Fréttablaðið. Kom þá í ljós að þingmaðurinn Ágúst Ólafur Ágústsson og leiðtogi flokksins var ekki á blaði yfir efstu menn í hinu leynilega kjöri sem átti aldrei að fara fyrir au almennings. Ágúst Ólafur er þarna væntanlega að gjalda fjölþreifni sinnar en...
SlúðurHalla vill verða leiðtogi14. janúar 2021 Mörgum Framsóknarmanninum er brugðið við það að Þórunn Egilsdóttir, leiðtogi í Norðausturkjördæmi og vinsæll þingflokksformaður Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að láta af þingmennsku og einbeita sér að baráttunni við krabbamein. Þórunn var í Helgarviðtali Mannlífs og lýsti þar sviptingum í lífi sínu. Óljóst er hver tekur við af henni. En það eru fleiri breytingar. Barnamálaráðherrann vinsæli, Ásmundur Daði Einarsson, hefur ákveðið...
SlúðurGammar yfir Íslandsbanka13. janúar 2021 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur mikinn vilja til að selja Íslandsbanka. Hann nýtur í þeim efnum stuðnings Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Sigurðar Inga Jóhannsson samgönguráðherra. þar með er breið samstaða um söluna. Vitað er að gammar íslensks viðskiptalífs hafa mikinn áhuga á bankanum og margir þeirra eru í vinamengi Bjarna. Stærsta verkefnið við söluferlið verður því að tryggja að allt fari...
SlúðurSyndakvittun frá Katrínu12. janúar 2021 Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra hefur legið undir gagnrýni vegna vináttu sinnar við eigendur Samherja. Þetta hefur reynst honum nokkur fjötur um fót en Stundin hefur bent á nokkur atriði sem undirbyggja óeðlileg tengsl. Í mútumálinu í Namibíu hefur komið fram að Samherjamenn hafi sýnt Nígeríumönnum í heimsókn á Íslandi ráðherrann undir þeim formerkjum að hann væri þeirra maður. Katrín Jakobsdóttir...
SlúðurÁhyggjur á Fréttablaðinu12. janúar 2021 Helgi Magnússon. útgefandi Fréttablaðsins, Hringbrautar og DV, er væntanlega áhyggjufullur vegna lesturs á blöðum hans. Nýjustu mælingar sýna að Fréttablaðið er aðeins með 33 prósent lestur og hefur tapað fjórða hverjum lesanda á síðustu þremur árum. Frá 2010 hefur blaðið misst helming lesenda sinna. Þá er lestur DV innan við 5 prósent sem er langt frá því besta á þeim...
SlúðurSplundraði Spaugstofunni11. janúar 2021 Stöð 2 er að stíga stórt skref með því að læsa fréttatímanum fyrir öðrum en áskrifendum eftir að þeir hafa verið opnir frá upphafi sjónvarpsstöðvarinnar. Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla Sýnar, kynnti ákvörðun fyriirtækisins og lýsti því af sannfæringarkrafti að þetta yrði gæfuspor þar sem áskrifendum myndi fjölga. Einhver gæti sagt að hann fái þá sorg í sælu breytt. Þórhallur er...
SlúðurLekinn um Anton og lögguna11. janúar 2021 Lekinn á gögnum Héraðssaksóknara um samskipti Antons Þórarinssonar athafnamanns og uppljóstrara við lögregluna hefur vakið mikla athygli. Um er að ræða ítarlega rannsókn á meintri spillingu lögreglunnar sem hefði veitt uppljóstranum friðhelgi umfram það sem eðilegt geti talist. Mannlíf hefur fjallað ítarlega um gögnin líkt og fleiri fjölmiðlar sem sumir hafa þó verið í hráskinnaleik og ekki nafngreint persónur í...
SlúðurJón Þór til friðs11. janúar 2021 Ljóst er að Píratar vera í nokkrum vanda í komandi kosningum þegar þeir sjá á bak sínum reynslumestu þingmönnum. Helgi Hrafn Gunnarsson, nokkurskonar leiðtogi hreyfingarinnar, er á förum, saddur pólitískra lífdaga. Lengi hefur legið í loftinu að Jón Þór Ólafsson, þaulreyndur þingmaður, væri á förum eins og Mannlíf greindi frá síðast liðið haust. Hann staðfesti það loksins á dögunum og...
SlúðurRuddaskapur Bryndísar Schram9. janúar 2021 Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi sendiherra, á ekki sjö dagana sæla vegna ásakana um kynferðislegt ofbeldi og áreiti. Stundarfriður varð þegar undrréttur vísaði frá máli Carmenar Jóhannsdóttur á hendur Jóni Baldvin sem sakaður er um að hafa káfað á henni utanklæða niður rass. Þetta átti að hafa gerst á Spáni. Taldi undirréttur að spænsk lög gerðu athæfið ekki refsivert og vísað...
SlúðurSvavar gerist sýnilegur8. janúar 2021 Svavar Halldórsson, fyrrverandi fréttamaður og lambakjötssali, hefur undanfarið verið að gera sig gildandi og sýnilegan. Svavar er með aðsendar greinar í bæði Morgunblaðinu og Fréttablaðinu. Í Mogga er hann kynntur sem áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum. Áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri á vegum sauðfjárbænda en er hættur þar. Ef lesið er á milli lína er ljóst að hann elur með sér draum...
SlúðurDavíð ber enn blak af Trump8. janúar 2021 Morgunblaðið heldur áfram að bera blak af ofbeldismönnum tengdum Donald Trump í dag. Segir í Staksteinum dagsins, sem ætla má að Davíð Oddsson ritstjóri skrifi, að það hlakki í vinstrimönnum á Íslandi vegna atburðanna í þinghúsinu í Washington. „Íslenskir vinstrimenn fara nú sumir mikinn vegna atburða í þinghúsinu í Washington og reyna jafnvel að nýta þennan óskemmtilega atburð til að...