SlúðurSamhengislaus Magnús20. nóvember 2024 Framsóknarflokkurinn er ekki eini flokkurinn sem ákvað að búa til furðulegar auglýsingar fyrir komandi alþingkosningar því Sjálfstæðisflokkurinn birti fyrir stuttu eina slíka á samfélagsmiðlum sem hefur vakið athygli. Þar kastar hinn stórkostlegi leikari Magnús Ragnarsson fram tölum um skólamál á Íslandi og tískuorðum eins og „þekkingarmiðuð“ námskrá algjörlega samhengislaust. Skiljanlegt er að leikari á borð við Magnús hafi verið fenginn...
SlúðurOfþyngd Sigmundar20. nóvember 2024 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fékk heimsókn Sindra Sindarsonar sjónvarpsmanns í vikunni. Formaðurinn sýndi á sér skemmtilega hlið og lét sér hvergi bregða við furðulegar og ágengar spurningar sjónvarpsmannsins. Sigmundur er fyrir löngu orðinn alræmdur fyrir megrunarátök sína og Sindri hjólaði strax í þyngdarvandamálið og spurði hvort hann væri eins og jójó. Sigmundur, sem er vel búttaður, viðurkenndi þá að...
SlúðurStefán Einar hataður19. nóvember 2024 Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður Moggans, er hataður af stórum hópi fólks í vinstrinu eftir að hann afgreiddi Þórð Snæ Júlíusson, frambjóðanda Samfylkingar og kvenhatara, út af borðinu og gerði út um stjórnmálaferil hans í eitt skipti fyrir öll. Stefán, sem hefur verið uppnefndur sem siðlausi siðfræðingurinn, hefur fengið yfir sig bylgju hatursfullra skrifa. Bent er á að siðfræðingurinn sitji um...
SlúðurTafir Eyþórs18. nóvember 2024 Það verður ekki tekið af Eyþóri Arnalds, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, að þegar hann skrifar tíst vekur það yfirleitt athygli en þó ekki fyrir þær ástæður sem flestir sækjast eftir. Fyrir stuttu virtist tónlistarmaðurinn geðþekki gleyma að hann ætti stóran hlut í Morgunblaðinu þegar hann óskaði eftir því að fjölmiðlamenn litu í spegilinn og sagði að hefðbundnir fjölmiðlar væru búnir að...
SlúðurTelma fokreið í beinni18. nóvember 2024 Telma Tómasson, fréttaþulur Stöðvar 2, fór mikinn í gær þegar hún krafði Magnús Þór Jónsson, formann Kennarasambandsins, skýringa vegna skæruverkfalls kennara. Magnús Þór mætti í beina útsendingu í fréttatímann. Athygli vakti hve ágeng Telma í spurningum sínum til formannsins. Hún krafðist þess af hörku að Magnús Þór útskýrði aðferðafræðina og árangursleysið gagnvart þolendum verkfallsins sem eru einungis brot af skólafólki...
SlúðurRósa kjaftfor17. nóvember 2024 Rósa Björk Brynjólfsdóttir, frambjóðandi VG í Reykjavík, mætti Gunnari Smára Egilssyni, stofnanda Sósíalista, í þættinum Pressunni á Heimildinni. Áberandi núningur var á milli frambjóðendanna sem berjast báðir fyrir pólitísku lífi sínu á jaðrinum í vinstrínu. Gunnar Smári gerði í því að minna Rósu á þau svik VG að stíga dansinn við Sjálfstæðisflokkinn í sjö ár og veita hugmyndum hægrisins brautargengi....
SlúðurNeyðarfundir vegna Þórðar16. nóvember 2024 Mál Þórðar Snæs Júlíussonar, frambjóðanda Samfylkingar, hefur tröllriðið allri stjórnmálumræðu og nánast slegið flokk hans kaldan. Hermt er að óformlegir neyðarfundir hafi verið haldnir innan forystu flokksins vegna málsins. Meðal þeirra lausna sem hafa verið reifaðar er að kvennaskelfirinn lýsi yfir því að hann muni ekki taka sæti á Alþingi og lágmarka þannig skaðann sem hann er að valda öðrum...
SlúðurÞórður og klámkarlinn15. nóvember 2024 Þórður Snær Júlíusson, fyrrverandi ritstjóri Kjarnans, er í aðalhlutverki í kosningabaráttunni um þessar mundir. Samfylking er að missa kjósendur vegna daðurs hans við barnaníð og kvenhatur í bloggfærslum þegar hann var á þrítugsaldri. Færslurnar lýsa sjúkum hugarheimi, siðferðisbresti og heimsku. Þær eru fleiri en svo að þær geti verið réttlætanlegar. Samfylkingunni blæðir vegna frambjóðanda síns. Fólk skiptist í þá hópa...
SlúðurYfirtaka Lindu Ben14. nóvember 2024 Það verður ekki tekið af Lindu Benediktsdóttur, eða Lindu Ben eins og hún er yfirleitt kölluð, að hún er einn duglegasti áhrifavaldur landsins. Henni hefur tekist á tæpum áratug að byggja upp öfundsvert veldi en í dag er varla hægt að labba inn í matvörubúð án þess að rekast á góðgæti frá henni enda eru vörurnar orðnar tíu talsins og...
SlúðurÞórði Snæ fyrirgefið14. nóvember 2024 Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, fordæmdi í gærkvöld og fyrirgaf skrif Þórðar Snæs Júlíussonar, frambjóðanda og fyrrververandi ritstjóra, sem komust í hámæli í þættinum Spursmál. Leynikrifin fólu í sér kvenhatur og barnaníð var haft í flimtingum. Þá veittist Þórður harkalega að Rannveigu Rist, forstjóra Alvcan, úr launsátri og og hrakyrti Kolbrúnu Bergþórsdóttur blaðamann. Þórður lét í ljós iðrun á Facebook og...
SlúðurKrísa Kristrúnar13. nóvember 2024 Uppljóstranir Moggans um meint kvenhatur Þórðar Snæs Júlíussonar, frambjóðanda Samfylkingar, eru áfall fyrir Kristrúnu Frostadóttur formann. Þórður Snær gengst við kvenfyrirlitningu undir nafnleysi. Hann laug á sínum tíma opinberlega og þrætti fyrir að hafa ýjað að því að Rannveig Rist álforstjóri væri þroskaheft en játaði í Spursmáli Moggans. Þórður er þriðji maður á lista Samfylkingar í Reykjavík suður þar sem...
SlúðurVælubíll Jóns12. nóvember 2024 Jón Gunnarsson, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, er í vanda eftir að sonur hans, Gunnar Bergmann Jónsson fasteignasali, upplýsti svissneska tálbeitu um þau hrossakaup sem áttu sér stað þegar Jón féllst á að taka fimmta sætið á lista Sjálfstæðismanna í Kraganum eftir að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir rasskellti hann úr öðru sæti listans.Gunnar sagði að faðir hans hefði samið við Bjarna formann...