SlúðurÁslaug spurð um óléttu29. janúar 2023 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra án staðsetningar, er í forsíðuviðtali við helgarblað Moggans þar sem hún fjallar um líf sitt og starf sem stjórnmálamaður. Þar lýsir hún þeim furðuspurningum sem hún fær um einkalíf sitt, sem hefur verið á milli tanna fólks undanfarin ár. Einhverjir hafa áhyggjur af því að hún sé ekki lögst í barneignir, 32 ára, með líkamsklukkuna tifandi....
Slúður„Ég var rekin frá RÚV“28. janúar 2023 Elsa María Jakobsdóttír leikstjóri er væntanlega á hátindi ferils síns eftir að hafa leikstýrt kvikmyndinni Villibráð sem slær öll met í aðsókn Elsa María mætti í þáttinn Vikuna til að Gísla Marteins Baldurssonar þar sem hún sagði frá leik og starfi. Þar kom fram að hún hafði unnið um nokkurt árabil á Ríkisútvarpinu og gengið þar í flest störf. Þetta...
SlúðurSólveig ræðst á sáttasemjara27. janúar 2023 Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er hamslaus af reiði vegna þess útspils Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara að spila út miðlunartillögu og láta ellt Eflingarfólk greiða atkvæði um sama samning og Starfsgreinasambandið gerði fyrir sitt félagsfólk í stað þess að félagið fengi að efna til verkfalls gegn einu fyrirtæki. Sólveig er í miklu stuði og hefur í framhaldi af þessu sakað Aðalstein...
SlúðurTærnar á Dóru26. janúar 2023 Leikstjórinn Dóra Jóhannsdóttir uppskar einróma lof fyrir Áramótaskaupið. Upptökunum fylgdi álag og þá ekki síst vegna þess að framleiðendur Skaupsins voru að sögn með Selfoss að einhverju leyti á heilanum og vildu mynda þar og þá væntanlega í þágu auðmannsins Kristjáns Vilhelmssonar, aðaleiganda Samherja, sem byggði upp nýja miðbæinn. Eftir nokkra orrahríð þar sem Sigurjón Kjartansson, meðeigandi Kristjáns, vóg að...
SlúðurAgnes og draugar fortíðar25. janúar 2023 Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, er í vanda þessa dagana. Draugar fortíðar herja á hana og sótt er að henni úr öllum áttum. Séra Skírnir Garðarsson hefur verið ötull við að benda á meintar misgjörðirf Agnesar gagnvart sér en honum var úthýst úr sókn sinni og hann sendur á einskonar vergang áður en hann komst á eftirlaun. Þá hefur biskup...
SlúðurFrosti fer í stríð24. janúar 2023 Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason hefur snúið aftur eftir að hann missti vinnuna hjá Sýn eftir ásakanir fyrrverandi kærustu sinnar. Aðgerðahópurinn Öfgar beitti sér meðal annars harkalega gegn honum og vildi halda honum úti í hafsauga. Frosti baðst afsökunar og brá sér á sjóinn eftir að hann hætti hjá Sýn. Nú snýr Frosti aftur tvíefldur inn á svið fjölmiðla með efnisveitu sína,...
SlúðurGummi í skotlínunni23. janúar 2023 Staða Guðmundar Guðmundssonar, þjálfara karlalandsliðsins í handbolta, er erfið eftir að fyrir liggur að liðið fari heim án þess að komast í átta liða úrslit. Í aðdraganda mótsins var mikil og móðursýkisleg umræða um það að liðið væri með öll skilyrði til þess að verða heimsmeistarar. Stórstjörnur skipuðu hvert sæti. Sérfræðingar, jafnt sem áhugafólk, voru sammála um að við færum...
SlúðurOfbeldismaður á stolnum leigubíl eltur uppi – Dularfullt ferðalag skrifborðsstóls á Miklubraut22. janúar 2023 Lögreglan leitaði að skrifborðastól sem hermt var að væri á Miklubraut við Réttarholtsveg. Stóllinn var horfinn á braut þegar laganna verði bar að og hefur ekki fundist. Ölvaður og hömlulaus maður í austurborginni trylltist þegar lögregla greip inn í málin þar sem hann var til vandræða. Lögreglan ætlaði upphaflega að koma manninum heim en hann brást illa við og hélt...
SlúðurAndri fékk 20 miljónir22. janúar 2023 Sósíalistinn og vefhönnuðurinn Andri Sigurðsson er grjótharður stuðningsmaður Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar. Andri komst í fréttir eftir að hann fékk verkefni við gerð vefsíðu hjá Eflingu og uppskar litlar 20 milljónir króna fyrir sem einhverjum þykir vera há upphæð. Aðrir benda á að það kosti sitt að endurnýja heimasíðu fyrir láglaunafólkið. Andri lenti í harkalegum útistöðum við Vilhjálm Birgisson,...
SlúðurBrokkgengur Ragnar í klípu21. janúar 2023 Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, var lengi vel einn öflugasti og stefnufastasti verkalýðsleiðtogi landsins. Á seinasta ári fór þó eitthvað úrskeiðis og hann lagði inn á undarlegar brautir ásamt Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, og Vilhjálmi Birgissyni, formanni Starfsgreinasambandsins. Ragnar og Sólveig Anna gerðu heiðarlega tilraun til að sprengja Alþýðusamband Íslands og gengu út af þingi með látum eftir að...
SlúðurFórnarlambið Sigmundur Davíð20. janúar 2023 Glærumálið í Verzlunarskólanum hefur fært Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, meiri athygli en hann hefur notið síðan hann lét mynda sig við að éta hrátt kjöthakk í kosningabaráttu fyrir síðustu alþingiskosningar. Eins og kunnugt er gekk Miðflokkurinn í gegnum fylgishrun og náði með herkjum að hanga inni á þingi með þrjá menn. Annað áfall dundi svo yfir þegar þriðjungur þingflokksins,...
SlúðurÓtímabær viðbjóður Trausta19. janúar 2023 Sóðaskrif Viðskiptablaðsins um Kristrúnu Frostadóttir, formann Samfylkingar, vöktu mikla athygli og undrun því blaðið er þekkt fyrir að vera vandað í framsetningu undir ritstjórn Trausta Hafliðasonar, sem er annálað prúðmenni. Fyrirsögnin „Ótímabært sáðlát“ átti að vera lýsandi fyrir það að Kristrún myndi ekki ná þeim árangri sem kannanir boðuðu. Eftir að lesendur gerðu harkalegar athugasemdir breyttist framsetning Vibbans í ótímabæran...