LandiðFjarðabyggð og Múlaþing ætla að fyrna óútekin orlof starfsmanna sinna – Verkalýðsfélög vara við því5. febrúar 2024 Fjarðabyggð og Múlaþing hyggjast fyrna ótekin orlöf starfsmanna sinna þann 30. apríl næstkomandi. Samkvæmt Austurfrétt mun allt ótekið orlof starfsmanna Fjarðabyggðar og Múlaþings, falla niður dautt þann 30. apríl næstkomandi, samkvæmt ákvörðun sveitarfélaganna, nema sterkar málefnalegar ástæður komi til. Þetta þýðir að það starfsfólk sem ekki hefur klárað orlof sitt fyrir 30. apríl, missir alla áunna frídaga sem eftir standa...
InnlentArion lækkar vexti5. febrúar 2024 Arion banki lækkaði óverðtryggða fasta þriggja ára íbúðalánavexti en þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Vextirnir voru lækkaðir um 0,15% og eru þeir því orðnir 9,45% en aðrir útlánavextir haldast óbreyttir. Auk þess hækka verðtryggðir vextir framtíðarreikninga um 0,6% og verðtryggðir vextir orlofsreikninga um 0,15%. Þá kemur fram að vaxtabreytinar útlána taki meðal annars mið af fjármögnunarkostnaði og útlánaáhættu...
InnlentGrindvíkingar sneru aftur í gær5. febrúar 2024 Rúmlega 1.200 manns fóru til Grindavíkur í gær en þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Flestir þeirra sem fóru eru sagðir vera íbúar en einnig voru viðbragðsaðilar sem fóru inn í bæinn. Vel gekk að koma íbúum inn í bæinn frá Nesvegi og Strandvegi og hafa viðbragðsaðilar yfirsýn yfir hversu margir dvelji í bænum. Í tilkynningunni segir einnig að...
InnlentHagaskóli mun ekki reyna stoppa verkfall nemenda: „Berjast fyrir frjálsri Palestínu“4. febrúar 2024 Nemendur Hagaskóla hafa boðað til verkfalls. Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla, segir í viðtali við mbl.is óljóst hversu margir nemendur skólans muni taka þátt í verkfalli sem boðað hefur verið til á þriðjudaginn. Stendur til að nemendur gangi út úr kennslustofum klukkan 10:30 og mótmæli við Austurvöll klukkan 11:00 en verkfallið er til stuðnings Palestínu. Þá segir Ómar að skólinn...
InnlentBílvelta á Sæbraut4. febrúar 2024 Betur fór en á horfðist þegar bílslys átti sér stað á gatnamótum Sæbrautar og Holtavegar fyrr í dag. Tveir bílar skullu saman og endaði annar bílinn á hvolfi. Að sögn vitna var mikill viðbúnaður á svæðinu og leit slysið alvarlega út en ekki þurfti að flytja neinn á slysadeild. Vitni á staðnum segja að ljóst sé að bíllinn sem lenti...
InnlentÞúsund Grindvíkingir halda heim að sækja eigur sínar4. febrúar 2024 Almannavarnir leyfa Grindvíkingum að sækja eignir. Um það bil þúsund Grindvíkingar fá í dag að sækja eignir og búslóð inn á svæði sem hingað til hefur verið lokað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum sem var send út í kringum miðnætti. „Á morgun, sunnudaginn 4. febrúar fara yfir 1000 manns inn til Grindavíkur að vitja eigna sinna og/eða aðstoða...
InnlentMislingamaður reyndist vera erlendur ferðamaður: „Óbólusettir eru í hættu“4. febrúar 2024 Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir hefur áhyggjur. Í gær fjölluðu fjölmiðlar um að komið hafi upp mislingatilfelli í manni sem hafði ferðast erlendis frá. Guðrún Aspelund hefur staðfest í samtali við mbl.is að um erlendan ferðmann sé að ræða. Hún sagðist þó ekki geta staðfest hvort maðurinn væri bólusettur eða ekki en sé fólk ekki bólusett gegn mislingum getur það orðið mjög...
InnlentSegir Sigmund Davíð og aðra þingmenn vera vanþakkláta: „Hagar sér eins og frekir krakkar“3. febrúar 2024 Teitur Atlason, fyrrverandi varaborgarfulltrúi í Reykjavík, segir þingmenn vera fulla af hroka. Í pistli sem Teitur Atlason skrifar um nýja skrifstofubyggingu Alþingis segir hann þá þingmenn sem hafa kvartað undan nýja húsinu vera vanþakkláta en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fer fremstur í flokki þeirra sem finnst húsið ekki gott. „Á dögunum var tekin í gagnið skrifstofubygging Alþingis. Þetta er hús á...
HeimurKeyrði Teslu óvart út í sjóinn: „Þau björguðu lífi okkar“ – MYNDBAND3. febrúar 2024 Ökumaður Teslu keyrði óvart í út í sjóinn í Osló. Bjarga þurfti ökumanni og farþega úr ísköldum sjó í Osló í vikunni eftir að ökmaður Teslu-bíls keyrði fyrir slysini út í sjóinn en samkvæmt sjónarvottum ætlaði bílstjórinn að leggja bílnum við höfnina, til að horfa á sólarlagið, en steig óvart á „bensíngjöfina“ Sem betur fer fyrir ökumanninn og farþegann þurftu...
InnlentGagnrýnir mikla hækkun á sorphirðugjaldi á Seltjarnarnesi: „Skortur á faglegum vinnubrögðum“2. febrúar 2024 Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi gagnrýnir bæjarstjórnina vegna mikillar hækkunar á sorphirðugjaldi í sveitarfélaginu. Bæjarstjórinn segir von á útboði. Mikil óánægja er í íbúum Seltjarnarness eftir að sorphirðugjald hækkaði mikið um áramótin. Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi og meðlimur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, er einn þeirra sem gagnrýnir málið. „Þjónustusamingurinn rann út og bæjarstjóri var ekki...
InnlentFljúgandi hálka í borginni2. febrúar 2024 „Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu en búist er við fljúgandi hálku og því mikilvægt að fara varlega,“ segir í færslu á vefsíðu Reykjavíkurborgar. „Eftir hlákuna í nótt mun kólna aftur í dag og það skapar varhugaverðar aðstæður í húsagötum, sérstaklega fyrir gangandi vegfarendur, sem ættu að nýta sér hálkuvarnir á skófatnað,“ segir jafnframt og að vetrarþjónusta borgarinnar sé nú í fullum...
InnlentRúmlega 20 milljónum verið úthlutað til 645 Grindvíkinga: „Ómetanlegt að eiga svona góða granna“2. febrúar 2024 Úthlutun úr neyðarsöfnun Færeyinga fyrir Grindavík heldur áfram en um helmingur fjárins hefur verið úthlutað. Rauði krossinn sendi frá sér fréttatilkynningu í morgun þar sem fram kemur að úthlutun úr neyðarsöfnun í Færeyjum fyrir Grindvíkinga er vel á veg komin en Rauði krossinn hefur fengið tæplega 10. milljón króna framlag frá Rauka krossinum í Færeyjum. Alls hefur Rauði krossinn á...