InnlentHallgrímur Helgason gagnrýndur fyrir markaðsókn í Rússlandi21. maí 2023 „Íslendinga hlýtur því að reka í rogastans þegar fréttir berast af markaðssókn eins okkar kunnasta rithöfundar, Hallgríms Helgasonar, inn á Rússland. Fyrir nokkrum dögum var greint frá bókakynningu í Moskvu, í bókabúðinni „Háa C-ið“ við Trubnayagötu 21,“ svo skrifar Sigurður Már Jónsson pistlahöfundur í pistli sem birtist á mbl.is. Sigurður greinir frá að þar höfðu Elena Dorofeeva frá Gorodets forlaginu...
InnlentMikil fækkun lunda: „Það var svolítið sjokk að átta sig á því að þetta er mun verra heldur en áður“21. maí 2023 Á tæplega 30 ára tímabili hefur stærð íslenska lundastofnsins dregist saman um 70 prósent. Erpur Snær Hansen líffræðingur segir í samtali við RÚV að áður hafi verið búist við um 40 prósent: „En við höfum ekki greint stofnþróunina svona langt aftur áður og það var svolítið sjokk að átta sig á því að þetta er mun verra heldur en áður.“...
InnlentFjóla er alvarlega veik og vantar ilmefnalaust fósturheimili21. maí 2023 „Er einhver hér sem getur tekið að sér að hjúkra alvarlega veikum ketti til heilsu og býr í ilmefnalausu heimili með engum þekktum rakaskemmdum, helst nýlegu heimili?“ svo hljóðar ákall sem birtist inni á hópi á Facebook sem nefnist Kattarsamfélagið. Óskað er eftir fósturheimili fyrir Fjólu sem er heimilisköttur fimm manna fjölskyldu. Fjóla sem og öll fjölskyldan eru á hrakhólum...
SkoðunAðsend greinFarsældarlögin á ekki að misnota gegn foreldrum21. maí 2023 Í fræðsluerindi Samtaka 78, sem haldið var í Hlöðunni í Gufunesbæ 16. maí á vegum Reykjavíkurborgar, kom fram að kennari sem telur barn vera trans geti búið til „mál“ samkvæmt Farsældarlögunum ef foreldrar styður ekki barnið. Að mati kennara. Slíkt gerist víða í útlöndum. Foreldrar hafa fengið góð ráð, taka barnið úr þeim skóla. Auðvitað geta íslenskir foreldrar gert það....
InnlentEldur í Skipholti21. maí 2023 Eldur kviknaði í íbúðarhúsnæði í Skipholti snemma í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu tók um það bil klukkustund að ráða niðurlögum eldsins. Miklar skemmdir urðu á íbúðinni og innbúi. Samkvæmt mbl.is var einn staddur í íbúðinni og var hann fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. Ekki er vitað um eldupptökin að svo stöddu.
InnlentLandhelgisgæslan sótti slasaðan skipverja21. maí 2023 Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-GNA sótti slasan skipverja og flutti á Landspítalannn á sjötta tímanum í morgun. Guðmundur Rúnar Jónsson vaktstjóri hjá Landhelgisgæslunni staðfesti upplýsingarnar við fréttastofu RÚV. Togarinn sem var staðsettur út af Snæfellsnesi fékk á sig brotsjó. Skipverjinn fótbrotnaði í kjölfarið. Þyrlan lenti með manninn við Landspítalann um klukkan átta í morgun.
MenningLukkulegur laugardagur með Kleina og Hafdísi – MYNDIR21. maí 2023 Kristján Einar Sigurbjörnsson, áhrifavaldur og fyrrum sjómaður, og kærasta hans, fitnessdrottningin Hafdís Björg Kristjánsdóttir höfðu í mörgu að snúast í gær. Parið birti hvort um sig myndir og mynskeið á samfélagsmiðlinum Instagram og leyfðu fylgjendum sínum að skyggjast inn í líf þeirra. Parið virðist hafa átt hinn lukkulegasta laugardag og sinntu sambandinu. Þau enduðu daginn á að fara fínt út...
MenningSvala Björgvins með glænýjan sumarsmell20. maí 2023 Söngdívan og tónlistardrottningin Svala Björgvins hefur gefið frá sér nýjan og sumarlegan smell. Lagið heitir Ein í nótt. Svala og danstónlistarkóngurinn Ingi Bauer standa að baka flutningi lagsins. Stefna þess er í anda tíunda áratugarins og smellpassar rödd Svölu þar inn – jafnt nú sem þá! Hér má heyra og njóta. Munið að hækka vel viðtækjunum.
InnlentHugmyndir Kristrúnar um vinstri stjórn- „Þær eru ekki bara gagnslausar heldur beinlínis skaðlegar“20. maí 2023 „Skattahækkanir og útgjaldasukk verður forgangsmál sem veikir atvinnulífið og stöðu ríkissjóðs. Allt lendir það óhjákvæmilega á almenningi,“ segir Brynjar Níelsson fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins í pistli á fésbókarsíðu sinni eftir lestur á viðtali við Kristrúnu Frostadóttir. „Athyglisvert viðtal í Morgunblaðinu við formann Samfylkingarinnar. Viðtalið er heil opna í blaðinu en ég er engu nær um stefnu eða áherslur nema að hækka...
InnlentHulda Ósk frétti af framúrskarandi árangri sínum í gegnum fjölmiðla20. maí 2023 Hulda Ósk Bergsteinsdóttir körfuboltaleikmaður var valin í úrvalslið 1. deilar kvenna. Körfuknattleiksdeild KR sinnti ekki viðundandi upplýsingaskyldu þegar Huldu var ekki gert viðvart af valinu með þeim afleiðingum að hún missti af lokahófi KKÍ og var því ekki viðstödd athöfnina. Unnusti Huldu Óskar birti færslu um málið á samfélagsmiðlinum Twitter. Þar segir: „Stoltur af árangrinum hjá minni konu að vera...
InnlentHéraðsdómur birti dóminn yfir Magnúsi Aroni: Myrti nágranna sinn með hrottalegum hætti í Barðavogi20. maí 2023 Magnús Aron Magnússon var dæmdur í 16 ára fangelsi auk þess að vera gert að greiða 31,5 milljónir krónur í miskabætur fyrir morð á nágranna sínum að heimili þeirra í Barðavogi í Reykjavík. Í frétt á RÚV.is kemur fram að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi birt dóminn í gær og þar hafi komið fram að árás Magnúsar Arons hafi jafnt verið ofsafengin...
InnlentHarðyrtur Glúmur er kominn með upp í kok20. maí 2023 Eftir langan vetur er Glúmur Baldvinsson orðinn langeygður eftir sólskini og heimtar að höfuðborgin verði færð: „Ég er kominn með uppí kok á þessu helvíti og geri skýlausa kröfu um að höfuðborgarsvæðið verði flutt á einu bretti og í einni svipan lóðbeint norður.“ Ætla má að Glúmi finnist nær að færa höfuðborgina á Blönduós eða Akureyri þegar hann birtir með...