InnlentAnna Kristjáns: „Náðum að komast í jólamatinn, skítug og illa þefjandi á aðfangadagskvöld“23. desember 2022 Anna Kristjánsdóttir býr á Tenerife og er þekkt fyrir afar skemmtilega pistla sína frá því sem er stundum kallað „litla-Ísland.“ „Ég man eitt sinn er við vorum að lesta í Halifax í Nova Scotia í Kanada í snarvitlausu veðri á Þorláksmessu og það þurfti tvo dráttarbáta til að halda við skipið á meðan lestunin fór fram og síðan beint á...
Innlent„Megi þessi dómur verða lexía þeim sem ónáða dómstóla með óþarfa málarekstri af þessu tagi“23. desember 2022 Brynjólfur Guðmundsson fréttamaður á RÚV ritar pistil í hópnum Fjölmiðlanördar á Facebook. Segir: „Fjölmiðlanördar gætu haft áhuga á að lesa þennan dóm, sérstaklega niðurstöðukaflann. Sex árum eftir að Kastljóss fletti ofan af viðskiptaháttum Brúneggja kemur dómur í skaðabótamáli sem forsvarsmenn þess höfðuðu gegn RÚV og MAST.“ Brynjólfur segir að „fréttamennskan á sínum tíma var fyrsta flokks og það er í...
InnlentEftirför lögreglu endaði ofan í húsagrunni – Myndband23. desember 2022 TikTok notandi náði afar spennandi myndbandi af eftirför lögreglu í Vestubæ Reykjavíkur en ekki er vitað hvenær það var tekið. Endaði sá sem lögreglan elti með bifreiðina ofan í húsagrunni. Myndskeið af æsilegri eftirför lögreglu hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum TikTok en það var tekið af vegfaranda sem varð vitni að látunum. Í myndbandinu sést hvar einstaklingur sést flýja...
InnlentBrottrekni barnaníðingurinn var í framboði í vor: „Heldurðu að þú verðir harður?“23. desember 2022 Eins og Mannlíf greindi frá í gær þá var karlmanni vikið frá störfum í Húsasmiðjunni vegna meintrar kynferðislegrar áreitni í garð 12 ára drengs. Maðurinn starfaði sem yfirmaður í einni af verslunum Húsasmiðjunnar, áður en hann fékk sparkið. Meinti barnaníðingurinn var á lista stjórnmálaflokks fyrir kosningarnar í vor í sveitarfélagi nálægt höfuðborgarsvæðinu. Það var Tálbeitan á TikTok sem fletti á...
InnlentTelur jafnrétti til náms tryggt þrátt fyrir mikla hækkun skrásetningargjalds: „Það myndi ég telja“23. desember 2022 Rektorar opinberu háskólanna fjögurra hafa ákveðið að biðja ráðherra háskólamála um að lögum verði breytt til að skólunum fjórum verði gert kleift að hækka skrásetningargjald úr 75 þúsund krónum í 95 þúsund krónur. Fram kemur á ruv.is að gjaldið hafi verið óbreytt frá árinu 2014. Skólarnir fjórir áðurnefndu eru Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Hólaskóli og Landbúnaðarháskóli Íslands. „Ég er...
InnlentHugleiðingar Camillu: „Þau vilja mig, þau vilja gæðastundir með mér“23. desember 2022 Athafnakonan og áhrifavaldurinn, Camilla Rut Rúnarsdóttir, hvetur fólk til að hugsa sinn gang um jólin; hugsa um um það sem skiptir mestu máli: Að eiga gæðastundir með fjölskyldunni. Camilla þekkir jólastressið vel verandi tveggja barna móðir; hún rabbaði við fylgjendur sína á Instagram og beindi orðum sínum sérstaklega til foreldra: „Smá hugleiðingar til foreldra, oftast eru það mömmur, sem eru...
InnlentSósíalisti reiður vegna orða Einars Þorsteinssonar: „Hið kapítalíska niðurrif heldur bara áfram“23. desember 2022 Sósíalistar sem og ýmsir aðrir, eru afar ósáttir við orð Einars Þorsteinssonar, formann borgarráðs og tilvonandi borgarstjóra um starfsemi Vinjar. Sara nokkur skrifar færslu í hóp Sósíalista á Facebook en hún hlekkjar frétt Fréttablaðsins um gagnrýni á orð Einars. Færsla Söru er harðorð enda kallar hún hana „rant“ eða reiðilestur. Orð Einars féllu í viðtali við Hringbraut en þar sagði...
InnlentGísli Marteinn um jólaumferðina: „Óska þess að þau sjái á nýju ári hvað þetta er galið kerfi “23. desember 2022 Japanski sendiherrann á Íslandi tók fallega ljósmynd af Esjunni og jólaumferðinni í borginni og sagði Gísla Martein sjálfsagt hafa ýmislegt um málið að segja. Það var rétt hjá honum. Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsþáttastjórnanda og aðal talsmaður bíllauss lífsstíls, svaraði í gærkvöldi Twitter-færslu Suzuky Ryotaro, sendiherra Japans á Íslandi. Suzuky birti fallega ljósmynda af Esjunni og Grand hótel og langri röð...
InnlentMeintum barnaníðingi sagt upp hjá Húsasmiðjunni: „Ég veit þér er sama, en ég gæti farið í fangelsi“22. desember 2022 Tálbeitan á TikTok fletti á dögunum ofan af meintum barnaníðingi sem hugðist hitta 12 ára strák. Fylgjendur aðgangsins á TikTok könnuðust við manninn og í athugasemdum við færsluna kom ábending um að maðurinn ynni sem yfirmaður í einni af verslunum Húsasmiðjunnar. Margir fylgjendur tálbeitunnar merktu Húsasmiðjuna í athugasemdum. Einhverjum dögum seinna kom athugasemd frá umsjónarmanni TikTok aðgangsins að manninum hafi...
InnlentLilja Dögg Alfreðsdóttir: „Slík notkun samræmdist að mínum dómi á engan hátt íslenskum hagsmunum“22. desember 2022 Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra segir sigri hrósandi: „Iceland er Íslands!“ Skýrir mál sitt: „Mér þótti það fjarstæðukennt á sínum tíma að einhver verslunarkeðja út í heimi tæki heiti landsins sem sitt eigið í viðskiptum og reyndi að þrengja að íslenskum fyrirtækjum sem vildu nota nafn landsins sér til framdráttar.“ Lilja Dögg er klár á því að „það var því rökrétt...
InnlentKatrín Jakobsdóttir biður Erlu Bolladóttur afsökunar: Erla fær 32 milljónir króna í miskabætur22. desember 2022 Nú er það ljóst að samkomulag hefur náðst milli ríkisins og Erlu Bolladóttur vegna gæsluvarðhalds sem hún sætti fyrir meinta aðild að hvarfi Geirfinns Einarssonar. Hún var sýknuð af þeim ákærum í Hæstarétti árið 1980, en mátti sæta frelsissviptingu í átta mánuði vegna málsins. Fram kemur að samkvæmt samkomulaginu greiðir ríkið Erlu miskabætur fyrir gæsluvarðhaldið, á nákvæmlega sama grundvelli og...
InnlentVerðbólga komin upp í 9,6%22. desember 2022 Verðbólga hér á landi mælist nú 9,6% – hækkar úr 9,3% sem hún mældist í síðasta mánuði. Þá hækkar vísitala neysluverðs um 0,66% frá fyrra mánuði og mælist nú 564,6 stig; vísitala án húsnæðisverðs hækkar um 0,76% milli mánaða; er nú 466,8 stig, en ársverðbólga án húsnæðisliðarins mælist 7,5%. Þessar upplýsingar er að finna í tilkynningu frá Hagstofunni. Og þar...