InnlentÚtiloka ekki að Íslendingarnir séu fleiri: „Þessa stundina eru tuttugu manns á lista“22. febrúar 2022 „Þessa stundina eru tuttugu manns á lista borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins yfir fólk sem statt er í Úkraínu. Þar af eru tólf íslenskir ríkisborgarar. Hinir hafa náin tengsl við íslenska ríkisborgara (t.d. makar og börn),“ segir í svari frá Utanríkisráðuneytinu við spurningum Mannlífs í morgun. Spurt var hversu margir Íslendingar væru nú staddir í Úkraínu en sagði Sveinn H. Guðmarsson, deildarstjóri upplýsinga-...
InnlentMeiri kvíði hjá stúlkum og kynsegin nemendum heldur en hjá drengjum22. febrúar 2022 Niðurstaða úr könnun frá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands sýnir að einn af hverjum tíu nemendum í 8., 9., og 10. bekk segir að lesblinda hafi mikil eða mjög mikil áhrif á frammistöðu sína í námi. Alls tóku 10.895 nemendur á unglingastigi þátt í könnuninni en spurningarnar voru um líðan og nám auk annarra atriða. Fréttablaðið fjallaði um málið í morgun. Sýnir...
InnlentAlelda bifreið í Kópavogi og allt á floti – Óveðrið heldur áfram22. febrúar 2022 Appelsínugul viðvörun tók gildi um allt land í gærkvöld og nótt og gildir enn víða um landið. Hafsteinn Halldórsson, aðstoðarvarstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við Vísi að gærkvöldið hafi verið með þeim annasamari á hans starfsferli. Þá má búast við því að veðurviðvaranir verði gular þegar nær dregur hádegi en er appelsínugul viðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu...
InnlentLýst er eftir Sigurði Kort á höfuðborgarsvæðinu – Þyrla Gæslunnar leitar hans meðfram ströndinni21. febrúar 2022 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sigurði Kort Hafsteinssyni sem er 65 ára. Hann er 184 sentimetrar á hæð, grannvaxinn og með grásprengt hár. Sigurður er klæddur í bláar gallabuxur, dökkbláan jakka og með húfu, sem er hugsanlega rauð. Fram í tilkynningu frá lögreglu að síðast sé vitað um ferðir Sigurðar í vesturbæ Kópavogs snemma á fimmtudagsmorgun, 17. febrúar. Lögreglan hefur...
InnlentUPPRIFJUN – Hvað var í síma Páls Steingrímssonar? „Ég vil stinga, snúa og strá salti í sárið“21. febrúar 2022 Eins og alþjóð veit hafa fjórir blaðamenn nú stöðu sakbornings í máli er tengist umfjöllun um „Skæruliðadeild Samherja“. Blaðamennirnir hafa verið sakaðir um að hafa nýtt sér stolið efni úr síma Páls Steingrímssonar, skipstjóra hjá Samherja og eins meðlima „Skæruliðadeildarinnar“, við skrif á fréttum um Samherja. En hvað var í síma Páls? Hvaða gögn var þar að finna sem mögulega...
InnlentStarfsfólk vetrarþjónustu lýsir framkomu í sinn garð. „Virðingarleysi við öryggi starfsmanna“21. febrúar 2022 Starfsfólk í vetrarþjónustu Reykjavíkur hefur fengið nóg af skilningsleysi í sinn garð. Sendi starfsfólkið frá sér bréf í lok janúarmánaðar til yfirmanna þar sem þau segja mörgu ábótavant. Eftirlitsbílum hafi bannað að vera á nagladekkjum þrátt fyrir að keyra um í hálku og ófærð með mörg hundruð kíló á pallinum en Morgunblaðið fjallaði um málið í morgun. „Þetta er óskiljanleg...
InnlentAppelsínugult land í nótt og fljúgandi hálka21. febrúar 2022 Enn ein veðurviðvörunin tekur gildi á landinu í kvöld og í nótt. Þá er greint frá því á vef Veðurstofu Íslands að gul viðvörun taki gildi víða á landinu um miðjan daginn í dag. Veðrið mun versna talsvert þegar líður á kvöldið og búist er við að gular viðvaranir breytist í appelsínugular. Búast má við að vindhviður nái allt að...
InnlentBjarni er áhyggufullur: „Ekki rétt að gera neitt annað en að búast við hinu versta“21. febrúar 2022 „Það er mikið áhyggjuefni og ekki rétt að gera neitt annað en að búast við hinu versta,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra um yfirvofandi innrás Rússa í Úkraínu í viðtali við Morgunblaðið. Tekur Þórdís Kolbrún undir áhyggjur Bjarna og segir að þyngra sé hljóðið í þeim ráðamönnum sem hún hafi fundað með síðustu daga. Þá hefur verið greint frá...
Innlent„Andlegt heilbrigði er málefni sem varðar okkur öll – veljum að smita hinu góða og uppbyggilega“20. febrúar 2022 „Það vantar uppbyggjandi forvarnarstarf sem ýtir undir heilbrigði einstaklingsins. Besta forvarnarstarfið liggur í sjálfsþekkingu og umburðarlyndi gagnvart sjálfum sér og öðrum. Einnig er mikilvægt að fólk geti leitað sér stuðnings án þess að einhver greining liggi til grundvallar og mikilvægt er að sjúkdómsvæða ekki eðlilegar tilfinningar. Gott geðheilbrigði þýðir ekki að þú sért alltaf hamingjusamur, heldur frekar að þú sért...
InnlentRíkissaksóknari Namibíu leitar aðstoðar Interpol við að hafa upp á þremur Íslendingum20. febrúar 2022 Saksóknari lagði fram ósk um aðstoð Interpol í Hæstarétti í Windhoek, höfuðborg Namibíu í vikunni. Málið snýr að þeim Ingvari Júlíussyni, Agli Helga Árnasyni og Aðalsteini Helgasyni en saksóknari vill að þeir beri vitni um atriði rannsóknarinnar, samkvæmt frétt Allgemeine Zeitung í Namibíu. Mennirnir stýrðu allir eða komu að stjórnun fyrirtækja Samherja í Namibíu. Aðalsteinn og Egill Helgi voru framkvæmdastjórar...
InnlentTannleysi falið vandamál hjá ungu fólki: „Síðan verður barnið 18 ára – og hver grípur það þá?“20. febrúar 2022 Greinin hefur verið uppfærð. Blaðamaður Mannlífs ræddi við Oddnýju Jakobs Kristínardóttur, yfirráðgjafa á tannlæknastofunni Íslenska Klíníkin í Búdapest. Þetta er partur af öðrum hluta umfjöllunar um Íslensku Klíníkina og tannlækningar í Búdapest. Fyrsti hluti þessarar umfjöllunar birtist á mannlif.is nýverið og fleiri pistlar munu birtast þar á næstunni. Oddný segir að mikill meirihluti þeirra sem koma út á stofuna frá...
LandiðSameining sveitarfélaga felld – Íbúar Eyja- og Miklaholtshrepps ekki hlynntir sameiningu20. febrúar 2022 Tillaga um sameiningu Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar var felld í gærkvöldi eftir íbúakosningu sem fram fór í gær. Í Eyja- og Miklaholtshreppi var kjörsókn tæp 75%. Alls greiddu 62 atkvæði, þá voru 20 þeirra með sameiningu en meirihlutinn var á móti, eða 41. Einn kjörseðill var merktur ógildur. Atkvæði í Snæfellsbæ skiptust nánast í tvennt, en þar greiddu 412...