Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Andlegt heilbrigði er málefni sem varðar okkur öll – veljum að smita hinu góða og uppbyggilega“

„Andlegt heilbrigði er málefni sem varðar okkur öll – veljum að smita hinu góða og uppbyggilega“
Anna Jóna Guð­munds­dóttir. Ljós­mynd­ari Silla Páls

„Það vantar upp­byggj­andi for­varn­ar­starf sem ýtir undir heil­brigði ein­stak­lings­ins. Besta for­varn­ar­starfið liggur í sjálfs­þekk­ingu og umburð­ar­lyndi gagn­vart sjálfum sér og öðrum. Einnig er mik­il­vægt að fólk geti leitað sér stuðn­ings án þess að ein­hver grein­ing liggi til grund­vallar og mik­il­vægt er að sjúk­dómsvæða ekki eðli­legar til­finn­ingar.

Gott geð­heil­brigði þýðir ekki að þú sért alltaf ham­ingju­samur, heldur frekar að þú sért með­vit­aður um þína til­finn­inga­legu fjöl­breytni sem mann­eskja og kunnir á bjarg­ráð þín. Það er ekki bara heil­brigð­is­kerf­is­ins að stuðla að and­legu heil­brigði, það er líka skóla­kerf­is­ins, vinnu­mark­að­ar­ins og hinna ýmsu stoðstofn­ana. T.d. er mark­viss vinna að fyr­ir­byggj­andi lofts­lags­að­gerðum líka geð­heil­brigð­is­mál því að hún eykur öryggi og hefur aug­ljósan til­gang.“ Þetta segir Anna Jóna Guð­munds­dóttir, ráð­gjafi og sér­fræð­ingur í upp­bygg­ingu teyma (e. Organisational Team Consultant) hjá Auðna ráð­gjöf.

Jákvæð sálfræði

Ljós­mynd­ari: Silla Páls.

Auðna ráð­gjöf er teymi sem heldur úti fyr­ir­lestrum, vinnu­stofum og styrk­leika­þjálfun með jákvæða sál­fræði að leið­ar­ljósi.

„Jákvæð sál­fræði er frá­bær fræði­grein, því hún kemur inn á svo margt, stóri part­ur­inn er vellíðan og flestir tengja sál­fræði við vellíðan og jákvæðni, en annar jafn stór þáttur er árangur og vel­gengni. Í mörgum til­fellum fer þetta vel saman bæði á vinnu­stöðum og í per­sónu­legu lífi.“

Anna segir í sam­tali við Mannlíf að þau séu: „hluti af sívax­andi gigg­ara­hagerfi og erum við núna í sam­starfi við Hoobla klas­ann sem er með yfir 50 gigg­ara á skrá. Vinnu­stofan sem við bjóðum er sér­sniðin fyrir teymi. Í vinnu­stof­unni er á mark­vissan hátt unnið að árangri út frá styrk­leikum og mark­miðum teym­is­ins auk þess sem unnið er með verk­færi sem styrkja sam­vinnu og stuðla að jákvæðni.

Í fram­haldi af nám­skeiðum býðst þátt­tak­endum sem vilja, að vinna áfram eigin styrk­leika­grein­ingu í mark­þjálfun. Mark­þjálfun er alltaf á for­sendum mark­þjálf­un­ar­þeg­ans en við erum sér­stak­lega að höfða til fólks sem vill leggja áherslu á styrk­leika, til­finn­inga­greind og sköpun. Mark­hóp­ur­inn hentar öllum, óháð vinnu­stofum, sem dæmi má nefna til­felli þar sem starfs­fólk vill vinna með jákvæða þætti, starfs­fólk sem vill líta inn á við t.d. í kjöl­far breyt­inga og þá sem hafa farið í kulnun.“

Ný verkfæri og betri samskipti

Auðna Tækni­torg – fyr­ir­lestur.

Anna Jóna hefur verið með vinnu­stofur og nám­skeið í nokkur ár, meðal ann­ars hjá End­ur­menntun Háskóla Íslands. Sam­starfs­kona hennar, Þór­hildur Sveins­dóttir, er lærður mark­þjálfi með áherslu á til­finn­inga­greind og hefur í nokkur ár boðið upp á mark­þjálfun bæði á Íslandi og erlendis, með mjög góðum árangri. Það sem drífur þær áfram er áhugi á að miðla því sem er jákvætt og að efla fólk. Ánægðir við­skipta­vinir, sem hafa til­einkað sér ný verk­færi og betri sam­skipti, eru það sem gleður þær mest, en nán­ari upp­lýs­ingar um starf­sem­ina má sjá inn á Hoobla-vef­síð­unni.

Nálgun jákvæðrar sál­fræði nýtir eig­in­leika og auð­lindir ein­stak­linga, teyma og sam­fé­laga til þess að ná árangri og vellíðan. Jákvæð sál­fræði horfir til þess, að til þess að árangur náist þurfi að huga að grunn­þörfum eins og tengsla­myndun og stuðla að því að fólk geti nýtt styrk­leika sína og notið virð­ingar.

Stefnu­mótun á grund­velli jákvæðrar sál­fræði felur í sér að jafn­vægi sé til staðar þannig að var­an­legur og sjálf­bær árangur náist til lengri tíma. Auð­lindir og styrk­leikar eru nýttir til að auka vellíðan og einnig til að takast á við hindr­anir og veik­leika sem geta staðið í vegi fyrir því að árangur náist.

Þór­hildur Sveins­dóttir. Ljós­mynd­ari Silla Páls.

Uppbyggjandi samskipti

Grunn­stoðir jákvæðrar sál­fræði eru: „að halda á lofti umræðu um þessa þætti, ásamt því að hugað að því að grunn­þörfum fólks sé mætt í þjóð­fé­lag­inu, það skiptir máli. Einnig er mik­il­vægt að sam­tal eigi sér stað um and­lega heilsu og allir njóti virð­ingar. Upp­byggj­andi sam­skipti og sam­tal er grunnur þess að hver og einn ein­stak­lingur nái að blómstra og nýta styrk­leika sína. Í mörgum til­fellum er fólk ekki með­vitað um styrk­leika sína og þá sér­stak­lega van­nýtta styrk­leika. Mark­þjálfun og jákvæð sál­fræði fara ein­stak­lega vel saman vegna þess að mark­þjálfun er í sjálfu sér vald­efl­andi og ýtir undir fram­kvæmda­gleði ein­stak­lings­ins.

Með jákvæðu sam­tali og opinni umræðu kemur meiri sjálfs­þekk­ing og til­finn­inga­greind eykst. Að þekkja sjálfan sig betur og vinna að betri til­finn­inga­greind hefur góð áhrif á okkur sjálf og umhverfi okkar. Jákvæðar til­finn­ingar eru smit­andi og hafa marg­feld­is­á­hrif. Hér getum við öll lagt okkar af mörkum,“ segir Anna.

Anna segir að lokum: „Andlegt heil­brigði er mál­efni sem varðar okkur öll. Oft er fyrst horft til heil­brigð­is­kerf­is­ins en það þarf að vinna að heil­brigði á heim­ilum, í skólum og á vinnu­stöðum. Jákvæð sam­skipti og and­rúms­loft stuðla að and­legu heil­brigði.

Við erum öll ábyrg og getum lagt okkar af mörkum. Til­finn­ingar eru smit­andi. Veljum að smita hinu góða og upp­byggi­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina