InnlentSviðakjammi brann á Arnarhóli9. september 2021 Óvenjulegt atvik þetta átti sér stað við styttuna á Arnarhóli. Þar hafði svangur maður kveikt eld í ruslatunnu til að koma sér upp eldunaraðstöðu. Lögreglan var kölluð til og kom þá á daginn að tilgangur íkveikjunnar var sá að elda sviðakjamma. Eldamennskan hafði farið úr skorðum og sviðakjamminn brann og tunnan bráðnaði. Hinn hungraði var í annarlegu ástandi og var...
InnlentHannes Þór hættur með landsliðinu – Ferill eins besta markmanns Íslands í máli og myndum9. september 2021 „Ég var að spila minn síðasta landsleik hér í kvöld og þakka kærlega fyrir mig,“ sagði Hannes Þór Halldórsson sem spilaði í gærkvöldi sinn síðasta leik fyrir landsliðið en tilkynnti hann það í viðtali við Eddu Sif Pálsdóttur á RÚV að leik loknum. Hannes er er einnbesti markmaður allra tíma á Íslandi. „Þetta var mjög tilfinningaþrunginn gluggi en við urðum...
InnlentÞyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út – Íslenskt skip nappað við meintar ólöglegar veiðar8. september 2021 Íslenskt togskip var staðið að meintum ólöglegum veiðum innan lokaðs svæðis austur af Glettingi um hádegisbil í gær. Langhelgisgæslan sendi þyrlu á svæðið. Fram kemur á heimasíðu Landhelgisgæslu Íslands, að varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafi orðið varir við að skipið væri að veiðum innan reglugerðasvæðis 742/2021 en allar veiðar með fiskbotnvörpu hafa verið bannaðar þar frá 1. júlí til áramóta....
InnlentÞórólfur svarar Kára: „Kári er í jötunmóð“8. september 2021 Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir var í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag þar sem hann er spurður út í gagnrýni Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar Erfðagreiningar á þríeykinu og takmörkunum sem nú eru í gildi vegna Covid-19 faraldursins. „Kári er í jötunmóð og hefur sveiflað sverðinu til hægri og vinstri og meðal annars beint því að fóstbróður sínum í covid að þessu...
InnlentTugir Strætóstarfsmanna orðið fyrir einelti á árinu – Nærri helmingur finnur fyrir streitu í starfi8. september 2021 Í vinnustaðagreiningu innan Strætó sem gerð var á síðasta ári kemur fram töluverð óánægja meðal starfsmanna þegar litið er til eineltis og streitu í starfi. Tuttugu og tveir sögðust hafa orðið fyrir einelti síðastliðið ár. Fjöldi starfsmanna sem svöruðu spurningunum voru á bilinu 151 til 162. Könnunin sem gerð var innan Strætó samanstóð af 14 spurningum þar sem spurt var...
InnlentGuðmundur skólastjóri hjólar í áhrifavalda: „Ég á satt að segja ekkert einasta andskotans orð“8. september 2021 „Erum við virkilega á leiðinni inn í sams konar tíma og ríkti á dögum Rannsóknarréttarins?“ Í Morgunblaðinu í dag má finna grein sem Guðmundur Oddson sendi inn í blaðið. Þar fjallar hann um hvernig áhrifavaldar hafa tjáð sig um hita mál síðustu daga og furðar sig á því að þeim virðist ekkert óviðkomandi . Guðmundur tekur sem dæmi viðtal í...
InnlentHelgi Magnús tekur „lækin“ til baka: „Ég hef aldrei haft nein ummæli uppi“8. september 2021 Í samtali við mbl.is tekur Helgi Magnús Gunnarsson það skírt fram að hann hafi aldrei tjáð sig um mál Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur. „Ég hef aldrei haft nein ummæli uppi um nokkurn skapaðan hlut í sambandi við þetta mál, nema þá skýringu sem ég gaf fjölmiðlum um helgina,“ Sagði Helgi Magnús er hann var spurður út í „læk“ sem hann gaf...
InnlentMagnús Björn Ásgrímsson biður stjórn KSÍ afsökunar: „Ekki séð jafn mikið eftir neinni ákvörðun“8. september 2021 Formaður knattspyrnudeildar Leiknis Fáskrúðsfirði sendir stjórn KSÍ afsökunarbeiðni. Sér hann eftir að hafa skrifað undir áskorun um afsögn. Málefni KSÍ hafa verið mikið í fjölmiðlum undanfarnar vikur en stjórn KSÍ sagði af sér í kjölfar ásakana um þöggun um ofbeldis og kynferðisbrotamálum landsliðsmanna. Austurfrétt segir frá því í frétt í dag að Magnús Björn Ásgrímsson, formaður knattspyrnudeildar Leiknis Fáskrúðsfirði hafi...
InnlentStarfsmaður á Bessastöðum kærður fyrir kynferðisbrot: Forseti, áminnti, fyrirgaf og réð hann aftur8. september 2021 Kynferðisleg áreitni sem starfsmaður Bessastaða varð fyrir af hálfu samstarfsmanns hefur verið kærð til lögreglu. Maðurinn sem varð fyrir ofbeldinu vill nafnleynd en í samtali við Fréttablaðið segir hann nánar frá því sem átti sér stað. Málið hefur haft miklar afleiðingar og ollið manninum og fjölskyldu hans sársauka. Auk þess varð fjölskyldan fyrir töluverðu fjárhagstjóni en maðurinn sá enga aðra...
Menning„Heyrðu, Bubbi, þetta gæti verið tuttugu þúsundasti íbúinn.“8. september 2021 Íbúar Reykjanesbæjar eru nú orðnir 20.000 talsins og reyndist tuttugu þúsundasti íbúinn vera dóttursonur Guðbrands Einarssonar, forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Í viðtali við Vísi segir Guðbrandur frá því hvernig hann brá sér frá fundi þann 4. ágúst til þess að svara í símann, og fékk þá þær skemmtilegu fréttir að afastrákur væri kominn í heiminn. Fyrir á Guðbrandur tvær afastelpur. Eftir...
InnlentÓlöf fann leðurblöku í heimreiðinni: „Hvaða tegund ætli þetta sé?“7. september 2021 Leðurblaka fannst í heimreið hjóna uppi í Kjós í gærkvöldi. Náttúrustofnun Íslands fékk hana til rannsóknar. Fram kemur í Facebookhópnum Skordýr og nytjadýr á Íslandi, að Ólöf Ása Skúladóttir, íbúi í Kjós, nálægt Hvalfirði, hafi fundið óvenjulegan gest í heimreiðinni hjá sér. Á planinu lá þessi líka myndarlega leðurblaka en var hún ekki með lífsmarki. Ólöf spyr á síðunni „hvaða...
InnlentKristján sveitastjóri lætur ekki ná í sig7. september 2021 Kristján Þór Magnússon, sveitastjóri Norðurþings hefur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Mannlífs til að fá viðbrögð frá honum vegna fréttar Mannlífs, ekki svarað fyrirspurnum um málið. Kristján Þór MagnússonMynd: nordurthing.is Nýlega birti Mannlíf frétt þar sem sagt var frá máli kvenkyns háskólanema sem kvartaði til sveitastjórans vegna kynferðislegs áreitis sem hún sagðist hafa lent í en meintur gerandi var starfsmaður Húsavíkurbæjar....