InnlentLilja á krísufund hjá KSÍ í dag – Hart lagt að Klöru að segja af sér31. ágúst 2021 Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mun samkvæmt heimildum Mannlífs funda með stjórn KSÍ, sem sagði af sér í gærkvöld, í dag, enda telur hún afar brýnt að brugðist verði við nýliðnum atburðum innan samtakanna og tekið verði af festu á málefnum KSÍ. Lilja Dögg hefur látið eftir sér hafa að grundvallarbreyting verði að eiga sér stað innan KSÍ eftir...
InnlentSævar Pétursson um KSÍ: „Tími þöggunar og yfirhylmingar er liðinn“31. ágúst 2021 „Síðustu daga þá hefur barið á íþróttahreyfingunni og sumir segja að tími hafi verið til kominn. Ég er búinn að vera partur af þessari hreyfingu í þó nokkurn tíma og það er nauðsynlegt fyrir okkur öll sem störfum þar að staldra aðeins við, hlusta og vanda okkur með næstu skref,“ segir framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar KA og fyrrum knattspyrnukappinn Sævar Pétursson í...
InnlentGarðar Gunnlaugs: „Það þýðir ekki bara að snyrta toppinn af trénu, látum þetta byrja hjá okkur“31. ágúst 2021 Knattspyrnukappinn Garðar Gunnlaugsson er eins og flestir aðrir meðvitaðir um stöðu mála hjá KSÍ, og lét þessi orð falla á samfélagsmiðli: „Jæja strákar, núna er búið að segja upp minnsta hlutanum af vandamálinu, stjórn KSÍ. Vandamálið liggur þó ekki þar, vandamálið á stóran uppruna í þessari „toxic“ menningu sem við höfum allir alist upp í sem íþróttamenn, hvort sem áhuga-...
InnlentFlokkur fólksins eyðir langmest í auglýsingar – Sjálfstæðisflokkur öflugastur á samfélagsmiðlum31. ágúst 2021 Flokkur fólksins hefur eytt meiru fé í auglýsingar en allir aðrir flokkar. Píratar minnst. Þá hefur Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra flesta fylgjendur á samfélagsmiðlum. Nýverið birti auglýsingastofan Sahara upplýsingar um auglýsingakostnað og virkni auglýsinga stjórnmálaflokka á samfélagsmiðlum, frá 4 – 29 ágúst. Á því tímabili var Flokkur fólksins með flestar virkar auglýsingar á Instagram og Facebook eða 26 talsins. Næst kom...
InnlentÞingkonan Rósa: „Þurfum að horfast í augu við að hetjurnar okkar hafa ekki staðið undir aðdáuninni“31. ágúst 2021 Þingkonan og femínistinn Rósa Björk Brynjólfsdóttir segir að „nýafstaðnir atburðir innan knattspyrnuhreyfingarinnar hafa varla farið fram hjá neinum þar sem frásagnir af kynbundnu ofbeldi knattspyrnumanna í fremstu röð hefur komið upp á yfirborðið.“ Hún bætir við að „forysta knattspyrnusambandsins hefur því miður ekki játað opinberlega vitneskju um ofbeldið og hefur mistekist að miðla þeim sjálfsögðu skilaboðum að kynbundið ofbeldi verði...
InnlentSá leikjahæsti frá upphafi, Rúnar Kristinsson, sendir skýr skilaboð til KSÍ: „Fokk ofbeldi!“31. ágúst 2021 Þjálfari KR, Rúnar Kristinsson, sýndi með afgerandi hætti stuðning við þolendur ofbeldis í gær, fyrir, á meðan, og eftir leik KR og Leiknis í úrvalsdeildinni – var með húfu á höfðinu allan tímann sem á stendur FO, sem útleggst sem „Fokk Ofbeldi“ og er þekkt slagorð gegn ofbeldi af öllu tagi. Rúnar lék á sínum tíma 104 landsleiki fyrir Íslands...
InnlentÁsgeir um afsögn sína: „Vil þakka starfsfólki og stjórn KSÍ, Guðna og Klöru fyrir frábært samstarf“31. ágúst 2021 Ásgeir Ásgeirsson var stjórnarmaður KSÍ en hefur nú sagt af sér, eins og stjórnin öll og formaðurinn. Hann er ekki sáttur við niðurstöðu málsins og virðist kenna öðrum um hvernig komið er fyrir KSÍ í dag en sjálfri stjórninni eða bara KSÍ almennt. Skrifar harkalegan pistil á samfélagsmiðli sem lesa má hér: „Þetta eru búnir að vera erfiðir dagar hjá...
InnlentGuðmundur um Afgani: „Það á að taka af þeim íslensku vegabréfin – Höfum ekkert við afætur að gera!“30. ágúst 2021 „Nú hefur frést að tvær fjölskyldur „íslenskar“ séu í Afganistan. En þegar betur er að gáð eru þetta fólk sem hefur misnotað góðvild Íslendinga; komu hingað sem flóttamenn og hafa blóðmjólkað kerfið; fengu allt sem landið hafði upp á að bjóða, læknishjálp, lögfræðiaðstoð, húsnæði og svo mætti lengi telja,“ segir Guðmundur Karl Þorleifsson sem formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar. Og heldur áfram...
InnlentDagar Kolbeins hjá Gautaborg gætu senn verið taldir: „Viljum ítreka að við fordæmum þessa hegðun“30. ágúst 2021 Sænska knattspyrnuliðið Gautaborg, sem leikur í efstu deild, er með mál Kolbeins Sigurðssonar til skoðunar. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Mannlífs frá Svíþjóð er nú rætt um að rifta samningi Kolbeins í kjölfar þess að upp komst um kynferðisofbeldi hans gagnvart Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur, og að hann hafi greitt skaðabætur til hennar. Sjá einnig: Kolbeinn Sigþórsson iðraðist og greiddi bætur eftir kynferðisofbeldi...
InnlentStjórn KSÍ segir af sér vegna ofbeldismála landsliðsmanna30. ágúst 2021 Stjórn KSÍ hefur ákveðið að segja af sér í kjölfar hörmulegra vinnubragða sambandsins í tengslum við ofbeldismál landsliðsmanna. Tilkynning frá KSÍ: Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 30. ágúst að boða með fjögurra vikna fyrirvara til aukaþings í samræmi við 13. grein laga KSÍ. Fundarboð með upplýsingum um þingdag, dagskrá og fyrirkomulag þingsins verða sendar aðildarfélögum á næstu dögum....
InnlentIngó Veðurguð skemmti í afmæli Tómasar stjórnarmanns KSÍ: „Aðeins það besta hjá Tomma“30. ágúst 2021 Sjálfur Ingó Veðurguð skemmti af sinni alkunnu snilld í fimmtugsafmæli Tómasar Þóroddssonar, sem er stjórnarmaður KSÍ, fyrir rúmri viku síðan. Tómas er í hópi þeirra sem skrifaði undir yfirlýsingu stjórnar KSÍ um að staðið sé með þolendum ofbeldis, en eins og alþjóð veit hefur Ingó verið sakaður um mörg kynferðisbrot. Tómas er veitingamaður á Kaffi Krús á Selfossi auk þess...
InnlentHeimili Láru verið ítrekað eggjað og baunað í Langholtshverfi: „Þetta er hræðilegt“30. ágúst 2021 Hús nokkurt í Langholtshverfinu í Reykjavík hefur ítrekað orðið fyrir orrahríð eggja og bakaðra bauna. Lára, meðlimur í hópnum Langholtshverfi – 104 á Facebook, segir frá þessari óskemmtilegu aðkomu og lýsir eftir vitnum. Bæði eggjum og Heinzbaunum hefur verið kastað í hús Láru í tvígang í vikunni. Við skulum gefa henni orðið: „Við höfum orðið fyrir leiðinlegu aðkasti en tvisvar...