InnlentSegja að um athugunarleysi hafi verið að ræða fremur en ásetning – Lögregla rannsakar málið25. júlí 2021 Stjórn Reycup og knattspyrnufélag Selfoss hafa í sameiningu sent frá sér yfirlýsingu vegna máls sem upp kom þar og Mannlíf fjallaði um í morgun. Myndavélar fundust í gistiaðstöðu stelpna sem keppa á Reycup. Í yfirlýsingunni segir að ekki hafi verið um ásetning að ræða heldur athugunarleysi. Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu sem sögð er byrjuð að rannsaka málið. Stjórn...
InnlentMyndavélar fundust í gistiaðstöðu stelpna sem keppa á Reycup25. júlí 2021 Fótboltastúlkur á unglingsaldri uppgötvuðu að eftirlitsmyndavélar væri í gistirými þeirra, á fótboltamótinu Reycup. Vísir greindi fyrst frá. 15 og 16 ára stúlkur úr fótboltaliði Selfoss er gistu í Laugardalshölllinni á meðan á móti stendur, urðu varar við að myndavélar væru í gangi í svefnrými þeirra. Þeim var ekki tilkynnt um að myndavélar væru á staðnum og létu þær foreldra sína...
InnlentDauði Litlu kaffistofunnar stórlega ýktur: Rís upp á nýjan leik í Ágúst25. júlí 2021 Margir verða eflaust glaðir nú því nýir rekstraraðilar hafa tekið við rekstri Litlu kaffistofunnar á Suðurlandsvegi. Í sumar bárust þær fréttir að Litla kaffistofan væri öll; hefur staðurinn verið tómur og harðlæstur síðan fjórtánda júlí, en þá lokuðu hjónin Katrín Hjaltadóttir og Svanur Gunnarsson staðnum eftir að hafa rekið hann um fimm ára skeið. Ekki var talið líklegt að Litla...
InnlentKirkjan opnar faðminn fyrir Ingu Sæland: Vöfflur og kaffi í húsi Guðs24. júlí 2021 Flokkur Fólksins með eldklára og eldspræka Ingu Sæland fremsta í flokki er bæði á ferð og flugi og býður flokksmönnum og öðrum þeim sem eru áhugasamir um málefni flokksins í vöfflukaffi, sem haldið er á hverjum sunnudegi. Staðsetning vöfflustundarinnar er nokkuð áhugaverð; jafnvel óvenjuleg: Í kirkju. Varla verri staður en hver annar fyrir vöfflur, kaffi og pólitík, en ekki mjög...
InnlentSyngjum veiruna burt hópurinn lifir enn góðu lífi – Tilvalin skemmtun um verslunarmannahelgina24. júlí 2021 Í ljósi þeirrar stöðu sem komin er upp á landinu vegna Covid-19 er ekki úr vegi að benda á skemmtilegan hóp á Facebook sem er greinilega að létta lund margra landsmanna. Hópurinn ber nafnið Syngjum veiruna burt og er öllu frjálst að birta myndbönd af sér syngja inn á hópnum. Syngjum veiruna burt Hópurinn er mjög stór en það eru...
InnlentEignasafn Kjartans Gunnarssonar fyrrum framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins stækkar hressilega24. júlí 2021 Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík hefur samþykkt ósk eiganda hússins að Skipholt 1 um að innrétta þar 36 íbúðir. Fyrir liggur leyfi til að innrétta hótel í húsinu, en nú hefur verið fallið frá þeim áformum. Myndlista- og handíðaskólinn var hér áður fyrr til húsa í Skipholti 1 og síðar Listaháskóli Íslands sem og Kvikmyndaskóli Íslands. Skipholt 1 samanstendur af tveimur húsum...
InnlentHópurinn Öfgar mun halda sínu striki: Skömminni skilað24. júlí 2021 Hópurinn Öfgar ætlar að halda sínu striki og bjóða upp á annan þeirra gjörninga sem fyrirhugaðir voru sem partur af Druslugöngunni, sem nú hefur verið frestað um óákveðin tíma. Í tilkynningu frá Öfgum segir: „Við í Öfgum ætlum að mæta niður í bæ og bjóða upp á annan gjörninginn sem við höfum skipulagt. Klukkan 13:30 verðum við staddar við Hallgrímskirkju...
InnlentTíunda Druslugangan gengin á morgun: „Ofbeldi er faraldur sem þarf að ná niður líkt og covid-ið“23. júlí 2021 Hin árlega Drusluganga er á morgun en gangan er ávallt haldin laugardaginn fyrir verslunarmannahelgi. Gengið verður frá Hallgrímskirkju klukkan 14:00 og þaðan niður Skólavörðustíg, Bankastræti og mun gangan enda á Austurvelli. Þar taka við fundarhöld og tónlistaratriði. Mannlíf talaði við aðstandendur göngunnar þær Evu Sigurðardóttur, Ingu Hrönn, Söru Mansour og Karítas M. Bjarkadóttur og spurði þær nokkurra spurninga í tengslum...
InnlentEldbjörg í skýjunum í Seljahverfi: „Mér fannst þetta svo yndislegt af þeim“23. júlí 2021 „Mig langar að segja frá upplifun minni á rampasvæðinu í Seljahverfi,“ segir Eldbjörg Arnardóttir í byrjun færslu sinnar á samfélagsmiðli, og bætir við: „Þar eru tveir strákar að æfa sig á hjólabretti, sem er bara frábært. Eftir smá stund kemur annar strákur, virðist vera eilítið yngri, og er með puttabretti – lítið hjólabretti fyrir fingur – með sér og er...
Innlent„Stjórnin mun springa út af minnisblaði Þórólfs“23. júlí 2021 Talsverð eftirvænting ríkir í samfélaginu í dag, mögulega ótti, varðandi næstu skref ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, VG og Framsóknar, vegna Covid sem hefur ekki bara látið á sér kræla á nýjan leik, heldur er að dreifa sér með ógnarhraða hér á Íslandi. Og ekki bara það, heldur virðist ríkisstjórnin eiga í miklum og að því er virðist nánast óleysanlegum deilum innan frá;...
InnlentMynd dagsins: Hamingjudögum ríkisstjórnarinnar lokið?23. júlí 2021 Það má með sanni segja að búist sé við hamagangi á fundi ríkisstjórnarinnar sem boðað hefur verið til klukkan 16:00 í dag, þar sem á að fjalla um minnisblað Þórólfs sóttvarnalæknis. Ekki eru allir sammála um það hvort og hvernig eigi að grípa til aðgerða vegna ástandsins sem komið er upp í þjóðfélaginu vegna Covid-19. Sjálfstæðismenn virðast ekki vilja gera...
InnlentFárveik Steinunn í áfalli eftir hótunarbréf LÍN: „Hvernig geta þau verið svo mikil skítastofnun?“23. júlí 2021 „Ég er krabbameinssjúklingur og LÍN veit það. Þau halda samt áfram að senda hótanir eins og þessa. Hvernig geta þau verið svona mikil skítastofnun?“ Svona hljóðar færsla Steinunnar Mörtu á Twitter þar sem hún birtir harðorðað innheimtubréf frá innheimtufyrirtækinu Motus, fyrir hönd Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Bréfið ber yfirskriftina: „NÚ ER MÁLIÐ ORÐIÐ ALVARLEGT – LOKAVIÐVÖRUN!“ Steinunn útskýrir frekar og segist...