Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Tíunda Druslugangan gengin á morgun: „Ofbeldi er faraldur sem þarf að ná niður líkt og covid-ið“

Tíunda Druslugangan gengin á morgun: „Ofbeldi er faraldur sem þarf að ná niður líkt og covid-ið“

Hin árlega Druslu­ganga er á morgun en gangan er ávallt haldin laug­ar­dag­inn fyrir versl­un­ar­manna­helgi. Gengið verður frá Hall­gríms­kirkju klukkan 14:00 og þaðan niður Skóla­vörðu­stíg, Banka­stræti og mun gangan enda á Aust­ur­velli. Þar taka við fund­ar­höld og tón­list­ar­at­riði.

Mannlíf tal­aði við aðstand­endur göng­unnar þær Evu Sig­urð­ar­dóttur, Ingu Hrönn, Söru Mansour og Karítas M. Bjarka­dóttur og spurði þær nokk­urra spurn­inga í tengslum við göng­una.

Hvaða ár var Druslu­gangan gengin fyrst ? „Gangan var fyrst gengin sum­arið 2011, og hefur verið gengin á hverju ári síðan þá. (Fyrir utan raf­ræna göngu síð­asta sum­ars vegna covid)“.

Búist þið við miklum fjölda ? „Það er erfitt að gera sér grein fyrir fjöld­anum vegna stöð­unnar í sam­fé­lag­inu. En stuðn­ing­ur­inn er mik­ill og þörfin er skýr út frá umræðum síð­ustu vikna og mán­aða“.

Eruð þið smeykar við að aðgerðir vegna covid muni hafa áhrif á göng­una ? „Staðan í covid málum hefur nú þegar haft áhrif og mun klár­lega hafa áhrif á göng­una sjálfa. Við búumst ekki við eins mörgum vegna fjölda smita sem og yfir­vof­andi aðgerða og tak­mark­ana. En við verðum með grímur og spritt í varn­ings­söl­unni við Hall­gríms­kirkju og niðri við Aust­ur­völl, þetta er allt undir berum himni og auð­velt að halda fjar­lægð.  Við von­umst auð­vitað til þess að geta og mega ganga Druslu­göng­una, því ofbeldi er far­aldur sem þarf að ná niður líkt og covid-ið“.

Hér má sjá dagskrá Druslugöngunnar 2021

Ræður
– Inga Björk Mar­grétar Bjarna­dóttir

– Inga Hrönn

– Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir

Tónlist

– BSÍ

– Kristín Sesselja

– Silja Rós

Mynd frá fyrri göngu

„Með Druslu­göng­unni viljum við færa ábyrgð kyn­ferð­is­glæpa frá þolendum yfir á ger­endur. Við viljum ekki ein­blína á klæðnað, hegðun eða fas þolenda sem afsökun fyrir kyn­ferð­is­glæpi. Færum skömm­ina þar sem hún á heima!“

Öfgar standa fyrir gjörningum og barmmerkjasölu

Mannlíf hafði sam­band við Ólöfu Töru Harð­ar­dóttur, einn af með­limum hóps­ins Öfga og spurði hana út í þeirra þátt­töku í göng­unni. „Við Hall­gríms­kirkju munum við dreifa blöðum og skrif­færum til göngu­fólks. Niðri á Aust­ur­velli verður komið fyrir „Skilum skömminni“-kassa og getur fólk þá skrifað það sem því hentar á blöðin, í þeim til­gangi að skila skömminni af sér. Við Öfga­konur munum svo sjá um að farga skömminni á við­eig­andi hátt… sem kemur í ljós síðar hvernig verður. Einnig verður botn­lausu tjaldi komið fyrir á gang­stétt­inni við Hall­gríms­kirkju. Þar býðst gestum og gang­andi að stíga inn fyrir og kríta nafn ger­enda sinna á gang­stétt­ina. Við skiljum ger­end­urna svo eftir þar þegar við göngum niður holtið!

Við verðum einnig  að selja barm­merki til styrktar málfrels­is­sjóði á 1.000 kr stykkið. Það er hægt að leggja beint inná reikn­ing­inn þeirra  0133-26-201240, kt: 561219-2060 ef fólk kemst ekki á stað­inn eða vilt leggja minni upp­hæð inn eða bara vilt ekki barm­merkið, öll hjálp telur. En eina leiðin til að fá́ barm­merkið er með því að kaupa það beint hjá okkur, allur ágóði rennur svo til málfrels­is­sjóð. Auðvitað eru fjár­hags­legar aðstæður mis­mun­andi hjá́ fólki og það er líka hægt að hjálpa með að vekja athygli á málsstað­inum á samfélags­miðlum t.d. með að deila síð­unni hjá́ málfrels­is­sjóði ; https://malfrelsissjodur.is/“. Hér má sjá við­burði Öfga á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ