InnlentEmbættismaður Ísafjarðarbæjar uppvís að einelti: „Margrét er í sínu starfi og nýtur trausts15. júní 2021 Uppnám varð í bæjarpólitíkinni á Ísafirði þegar Sif Huld Albertsdóttir bæjarfulltrúi sjálfstæðisflokksins sagði af sér vegna eineltis sem hún varð fyrir af hendi Margrétar Geirsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar. Sif hefur ákveðið að lögsækja Ísafjarðarbæ vegna þessa og þá telur hún að bærinn skuldi henni formlega afsökunarbeiðni vegna málsins. Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Birgir Gunnarsson segir aftur á móti að Sif sé þegar...
InnlentBarnagæslan týndi Anítu í Smáralind og foreldrarnir fengu áfall: „Starfsmenn ypptu bara öxlum“14. júní 2021 „Í panikki hleyp ég og konan mín um Smáralind að leita af barninu okkar og starfsmenn barnagæslunnar gerðu ekki handtak á meðan,“ skrifar Brynjar Þór Sigurðsson um átakanlega reynslu fjölskyldunnar af því að kaupa gæslu fyrir barnið sitt í Smáralind.Þegar þau komu í Smáralind fékk dóttir þeirra, Aníta fædd 2017, að fara í barnagæsluna sem Smárabíó rekur. Hjónin greiddu fyrir...
InnlentÁreiti sem staðið hefur yfir í 10 mánuði- „Hér er bankað og djöflast“13. júní 2021 „Ég hef reynt að leiða þetta hjá mér og er ekki að fara til dyra en þessu linnir ekki,“ skrifar Hildur, íbúi í Langholtshverfi, sem hefur orðið fyrir áreiti á heimili sínu í 10 mánuði. Hjá henni er bankað og djöflast mörgum sinnum í viku, bæði á daginn og á kvöldin.„Það er líka frekar erfitt að fara ekki til dyra...
InnlentFramfarir hjá Guðmundi Felix sem getur hreyft framhandlegg: „Núna get ég framkallað hreyfingu“13. júní 2021 „Fyrir tveimur vikum sýndi ég ykkur að upphandleggsvöðvinn virkaði. Ég var að spenna vöðvann örlítið en það framkallaði enga hreyfingu. Núna, þegar ég er í sundlauginni, get ég ef ég spenni upphandleggsvöðvann, framkallað hreyfingu á framhandleggnum,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson. Hann segir að þetta séu ef til vill ekki miklar framfarir en bætir svo við að miðað við það að...
InnlentÞórunn slóst við krabbamein og kerfið: „Ég bað hana bara í guðanna bænum að hringja í djákna“.12. júní 2021 „Ég mun aldrei gleyma þegar einn hjúkrunarfræðingurinn bauðst til að hringja á djákna því það „væri svo vont að vera svona reiður”. Ég bað hana bara í guðanna bænum að hringja í djákna ef hann gæti lagað sýkinguna,” segir Þórunn Unnarsdóttir, viðskiptalögfræðingur, sem hefur háð illvíga baráttu við alvarlegt krabbamein. Allt fór úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis á meðan á...
InnlentMetooÞjóðþekktir spyrja á Facebook hvort drepa eigi Auð: „Svo gjörsamlega galið að mig skortir orð“11. júní 2021 Þjóðþekktum þykir þungt vegið að tónlistarmanninum Auði sem hefur legið undir alvarlegum ásökunum um kynferðisbrot gegn ungum stúlkum og láta skýrt að sér kveða á umræðuþræði myndlistarmannsins Jóns Óskars á Facebook. „Ég ætlaði ekki að blanda mér í þessa umræðu en mér er hætt að standa á sama; Auður fær ekki að spila með Bubba, rekinn frá Þjóðleikhúsinu og ekki...
InnlentBíll stíflaði Hvalfjarðargöngin11. júní 2021 „Það virðist svo vera að bílar séu að bila oftar í göngunum en uppi á þjóðvegi. Við höfum enga hugmynd um af hverju það gerist en það er vissulega verðugt rannsóknarefni. Reyndar gefur enginn tommu eftir í hraðanum í göngunum en ég veit ekki hvort það tengist þessu. Ég myndi taka nánari skoðun á því fagnandi,“ segir Hermann Snorri Jónsson,...
InnlentHlíf fær loksins að hitta Alzheimersjúka móður sína11. júní 2021 „Hún er annað hvort of lyfjuð eða of ringluð til að halda uppi samtali. Því miður er sjúkdómurinn þess eðlis að það er ótrúlega erfitt að eiga við hann, lyfin hafa ekki virkað eins og vonast hafði verið, og henni hrakar hratt,“ sagði í færslu sem vinkona Hlífar Bjarnadóttir, skrifaði um móður Hlífar og setti inn á söfnunarsíðuna gofundme.com. Mannlíf...
InnlentNýbakaður íslenskur milljarðamæringur: Þiggur ráðgjöf vegna auðævanna10. júní 2021 „Þær reglur gilda að þetta er skattfrjáls vinningur og rennur óskiptur til vinningshafa,“ segir Pétur Hrafn Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Íslenskrar Getspár, um einn stærsta lottóvinning sem nokkur Íslendingur hefur hreppt í sögu lýðveldisins. Þá verður vinningurinn greiddur út í einu lagi. „Já, vinningurinn verður greiddur út í einu lagi eftir fjórar vikur,“ segir , upplýsingafulltrúi Íslenskrar Getspár. Öllum vinningshöfum sem hreppa...
InnlentDiljá sló í gegn í prófkjöri: „Við vorum ofboðslega meðvirk“10. júní 2021 „Susie Rut fór alltaf alla leið og náði botninum mjög hratt. Hún náði samt að snúa við blaðinu og náði tökum á eigin lífi. Eftir meðferð og dvöl á áfangaheimili var hún dugleg við að sækja fundi og var á fullu við að hjálpa öðrum. En svo fór að hún féll mjög harkalega þremur árum síðar,“ segir Diljá Mist Einarsdóttir,...
InnlentLeigudeila í Árneshreppi: Eva oddviti gerð afturreka með að fleygja Hrafni út10. júní 2021 Nýlega var leigusamningi á íbúð Hrafns Jökulssonar í Norðurfirði í Árneshreppi sagt upp, en íbúðin er í eigu Árneshrepps. Í tölvupósti frá oddvita hreppsins var Hrafni tilkynnt að hann yrði að fara út vegna lítillar viðveru í íbúðinni og leiguskuldar. Hrafn var afar ósáttur og í Facebook-færslu á síðunni Vinir Kolgrafarvíkur sagði hann eftirfarandi um málið: „Stórfréttir af Ströndum: Svo...
InnlentDjammþörf landans eftir Covid ofmetin: – „Töluvert offramboð af tónleikum“.10. júní 2021 Mikill fjöldi tónleika og viðburða eru auglýst næstu vikur og mánuði og ljóst að þjóðin er orðin langþyrst eftir skemmtan eftir innilokun faraldarins. Einnig hefur færst líf í bókanir á húsnæði undir veisluhöld og ráðstefnur. Má þar þakka afléttingum samkomutakmarkana, góðu gengi bólusetninga svo og endurkomu ferðamanna til landsins. Allt á fulla ferð „Okkur sýnist á öllu að strax eftir...