InnlentGunnar býður 400 þúsund fyrir allt draslið – BMW-inn strípaður á Patreksfirði20. janúar 2021 Gunnar Sean Eggertsson greinir frá því í hópi BMW-eigenda á Íslandi á Facebook að einhver hafi strípað bílinn hans í nótt. Myndirnar hér fyrir neðan segja sína sögu en þar má sjá hvernig búið er að fjarlægja næstum allt sem hægt er að selja aftur sem íhlut. „Nú kom einhver fávitinn vestur á patreksfjörð og hreinsaði allt af og úr...
InnlentKristinn R. Ólafsson talar frá Madrid og lýsir hryllingi20. janúar 2021 Kristinn R. Ólafsson, leiðsögumaður og pistlahöfundur, flytur ekki góð tíðindi frá Spáni þar sem hann er búsettur. Hann segir Covid-ástandið í landinu fara sífellt versnandi og dauðföllin fjölga enn frekar. Þetta kemur fram í færslu Kristins á Facebook þar sem hann talar, eins og svo oft áður, frá Madríd, höfuðborg Spánar. Þaðan flutti Kristinn pistla til margra ára við miklar...
InnlentUppþot og afhjúpun í hópnum sem hatar konur: „Ég óð eld og brennistein fyrir SDG“20. janúar 2021 Sveinn Óskar Sigurðsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Mosfellsbæ, hefur undanfarið verið iðinn við að smala meðlimum Karlmennskuspjallsins í flokkinn. Karlmennskuspjallið er líklega vafasamasti Facebook-hópur landsins en flest, ef ekki öll, umræða þar snýst um kvenhatur. Frægt er þegar Kristinn Sigurjónsson, þá lektor við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, var rekinn fyrir ummæli sem þar féllu. Sveinn Óskar hefur deilt nokkrum...
InnlentÞjóðin slegin yfir harmleiknum – Engin þolinmæði fyrir rasistum – Ummæli í Pabbatips vekja reiði20. janúar 2021 Íslenska þjóðin er slegin yfir harmleiknum í Skötufirði en í gær var greint frá því að litli drengurinn, Mikolaj Majewski, væri látinn. Hann var aðeins 18 mánaða. Móðir hans, Kamila Majewska, lést einnig eftir hið hræðilega slys en Tomek Majewska, faðir drengsins og eiginmaður Kamila, komst lífs af. Þau höfðu fest rætur á Flateyri og voru á leið þangað þegar...
InnlentSamfélag Pólverja á Íslandi í sárum og syrgir litla drenginn og móður hans – Söfnun heldur áfram19. janúar 2021 Litli drengurinn, Mikolaj Majewski, sem lenti í umferðarslysi í Skötufirði á laugardaginn er látinn. Hann var aðeins 18 mánaða. Móðir hans, Kamila Majewska, lést einnig eftir hið hræðilega slys en Tomek Majewska, faðir drengsins og eiginmaður Kamila, komst lífs af. Hin unga fjölskylda hafði dvalið í Póllandi yfir jól og var á leið heim til Flateyrar þegar bíllinn endaði utan...
InnlentSingalong Skoppu og Skrýtlu breyttist í martröð: „Ég vissi ekki af þessari bíóferð”19. janúar 2021 Ríflega 50 börn úr Breiðagerðisskóla eru í sóttkví eftir að hafa farið að sjá sýningu Skoppu og Skrítlu í Sambíóinu Álfabakka. Daginn eftir sýninguna greindist eitt barnanna með Covid-19.Ferðin í Álfabakka var ekki farin á vegum skóla. Eitt barn í hópnum hafði fengið leyfi til að halda afmælisdaginn sinn hátíðlegan í kvikmyndahúsinu og bauð auðvitað sínum bestu vinum að gleðjast...
InnlentLína Birgitta lokar á Instagramið – Komst í bobba fyrir 110 þúsund strigaskó19. janúar 2021 Samfélagsmiðlastjarnan og athafnakonan, Lína Birgitta, hefur lokað fyrir Instagram-reikning sinn þannig að einungis vinir hennar geta séð færslur hennar. Fyrir flesta væri það varla frásögu færandi en hún hefur þetta að atvinnu og því nokkuð stærri ákvörðun en hjá flestum. Það má telja nokkuð líklegt að nýlegt myndband og umfjöllun í kjölfarið hafi haft áhrif þar. Hringbraut greindi frá því...
InnlentLést eftir fall í Seljahverfi19. janúar 2021 Karlmaður á sjötugsaldri lést á Landspítalanum í gær. Í skeyti frá lögreglu kemur fram að maðurinn hafi slasast alvarlega síðastliðinn laugardag eftir að hann féll af reiðhjóli. Maðurinn var að hjóla eftir göngustíg í Seljahverfi í Breiðholti þegar slysið varð. Lögreglu barst tilkynning um slysið snemma á laugardagsmorgun. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Í tilkynningu frá lögreglu segir...
InnlentSverrir opnar sig um skelfilegasta dag ársins: „Eldri borgarar bera kvíðboga“ en „börn gráta“19. janúar 2021 „Engu er líkara en að búið sé að þróa nýja fíkn meðal þjóðarinnar, sprengifíkn. Var þó nóg af öðrum fíknum fyrir. Sprengifíknin leysist úr læðingi úti um allt, er meiri háttar og truflar alla. Eyðileggur meira og minna alla hátíðarstemmningu. Íþróttafélög og björgunarsveitir standa aðallega fyrir sölu á þessu dóti til að fjármagna lofsverða starfsemi sína. Þessir aðilar gera út...
InnlentVegna banaslyss í Ísafjarðardjúpi og fyrirmæla til ferðamanna í sóttkví19. janúar 2021 Eftir // Jóhann Sigurjónsson, lækni á Ísafirði Mér finnst mjög mikilvægt að taka fram að ég er ekki að gagnrýna sóttvarnaraðgerðir yfirvalda sem slíkar og frábið mér því að misyndisfólk taki orð mín úr samhengi og noti til að andmæla þeim. Nota bene: Ríkjandi fyrirkomulag með tvöfaldri skimun fólks við komu til landsins og sóttkví á milli er, að mínu...
InnlentÞú verður næstur segir Jón Baldvin: „Ætlum við virkilega að láta þetta yfir okkur ganga?“19. janúar 2021 Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi stjórnmálamaður, hvetur íslensku þjóðina í aðsendri grein í Fréttablaðinu til að rísa upp gegn Metoo-hreyfingunni. Hann segir að hver sem er gæti lent í því sama og hann. Ástæðan fyrir pistli Jóns er að í helgarblaði Fréttablaðsins voru viðtöl við þrjár konur sem sögðust hafa verið áreittar af honum. Slíkar frásagnir eru orðnar ansi margar á...
InnlentTrylltist og truflaði slökkvilið: „Það var reynt að brenna mig inni, kveikja í mér. Ertu hálfviti?“18. janúar 2021 „Ég er ekkert rólegur. Það var reynt að brenna mig inni,“ sagði reiður og ósáttur íbúi á Ólafsfirði sem ítrekað truflaði störf slökkviliðs Fjallabyggðar sem kallað var út síðastliðna nótt. Myndbandsupptöku sem inniheldur hluta samskiptum mannsins við lögreglu má finna neðar í umfjöllun. Eldurinn kom upp í kjallaraíbúð að Kirkjustræti á Ólafsfirði. Íbúi á efri hæð hússins lét ófriðlega og...