Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vegna banaslyss í Ísafjarðardjúpi og fyrirmæla til ferðamanna í sóttkví

Vegna banaslyss í Ísafjarðardjúpi og fyrirmæla til ferðamanna í sóttkví

Eftir // Jóhann Sigurjónsson, lækni á Ísafirði

Mér finnst mjög mik­il­vægt að taka fram að ég er ekki að gagn­rýna sótt­varn­ar­að­gerðir yfir­valda sem slíkar og frá­bið mér því að mis­ynd­is­fólk taki orð mín úr sam­hengi og noti til að and­mæla þeim. Nota bene: Ríkjandi fyr­ir­komu­lag með tvö­faldri skimun fólks við komu til lands­ins og sótt­kví á milli er, að mínu mati, vel heppnuð og skil­virk leið til að hefta smit frá útlöndum.

Aftur á móti ætla ég hér að neðan að benda á alvar­legar mis­fellur í fram­kvæmd­inni; nefni­lega að yfir­völd etji þreyttum ferða­löngum út í að keyra um landið þvert og endi­langt í vondu veðri og afleitri færð á vegum. Það er að sjálf­sögðu of snemmt að full­yrða um orsakir slyss­ins í Skötu­firði á laug­ar­dag­inn, en nokkrar stað­reyndir liggja fyrir: Fólk var á ferð snemma morg­uns við mjög slæm akst­urs­skil­yrði í krapa, hálku, myrkri, lág­skýj­uðu og hafði verið á ferð alla nótt­ina að und­an­gengnu löngu ferða­lagi frá útlöndum.

Af eigin reynslu geri ég ráð fyrir að lagt hafi verið að fólki að koma sér taf­ar­laust á þann sótt­kví­ar­stað sem það hafði skráð á heim­koma.covid.is fyrir komu til lands­ins.

Haft áhyggjur frá því í haust

Ég er búsettur í Lundi í Svíþjóð og síðan í haust hef ég þrisvar lagt leið mína til Ísa­fjarðar vegna vinnu. Í öll skiptin hef ég kosið að und­ir­gang­ast tvö­falda skimun með sótt­kví á milli. Frá því í haust hef ég haft áhyggjur af þeirri áherslu sem lögð er á að fólk, sem kemur til lands­ins, komi sér milli lands­hluta án tafar og án til­lits til vega­lengda, veð­urs, færðar á vegum og ferða­tíma áður en fólk lendir í Keflavík. Mér hefur fund­ist aug­ljós áhættan við að etja fólki í slík ferða­lög, en talað fyrir alger­lega daufum eyrum full­trúa yfir­valda í Keflavík.

Fyrir komu til Íslands þarf maður að skrá sig á heim­koma.covid.is og þar ber að skrá einn og aðeins einn dval­ar­stað meðan á sótt­kví stendur. Ég hef skráð heim­il­is­fang for­eldra minna á Ísafirði þar sem ég hef ætlað mér að dvelj­ast. Við komu til lands­ins hef ég í öll skiptin fengið afhentan upp­lýs­inga­bæk­ling um hvaða reglur gilda í sótt­kví og í öll skiptin hef ég rætt við landamæra­vörð/lög­reglu sem virð­ist gefa sér tíma til að ræða vin­gjarn­lega við hvern ein­asta far­þega sem kemur inni í landið.

Á síðu #4 í bæk­ling­unum má finna eft­ir­far­andi máls­grein:

Ef brýna nauð­syn ber til má gista eina nótt í sótt­kví nærri landamæra­stöð áður en ferð­ast er til end­an­legs dval­ar­staðar í sótt­kví.

Í mínu til­viki hef ég verið að lenda um kaffi­leytið og átt sirka 6 til 7 klst. ferða­lag að baki við komu til Kefla­víkur. Í öll skiptin hefur sam­tal mitt við landamæra­vörð­inn verið nokkurn veg­inn á sama veg. Höf­uð­á­hersla hefur verið á að brýna fyrir mér að koma mér sem fyrst á sótt­kví­ar­stað.

Svarið var afdráttarlaust

Í fyrstu ferð­inni í sept­em­ber spurði ég sér­stak­lega um hvort ég mætti gista eina nótt í mann­lausu hús­næði sem ég hefði aðgang að í Reykja­vík og halda áfram ferð­inni morg­un­inn eftir. Ég bar fyrir mig þreytu eftir langt ferða­lag, veð­ur­spá sem var betri dag­inn eftir og að ég kysi að keyra í dags­birtu. Svarið var ein­falt og afdrátt­ar­laust:

Nei. – Þreyta öku­manns, tími sól­ar­hrings og birtu­skil­yrði teld­ust ekki gildar ástæður til að hangsa á leið­inni.

Ég mald­aði í móinn og bar fyrir mig umferð­ar­ör­yggi og spurði líka hvernig væri ef veður væri vont og færð á vegum slæm. Mér var tjáð skýrt og afdrátt­ar­laust að veður og færð á vegum teld­ist ekki nauð­syn­leg ástæða til að tefja för, nema ef vegir væru bein­línis lok­aðir. Þetta vakti skilj­an­lega furðu mína og ég ákvað að spyrja hvar mörkin lægju; t.d. hvort ég mætti t.d. stoppa til að pissa eða fá mér frískt loft til að halda mér vak­andi á fáförnum stað við þjóð­veg­inn. Svarið var:

Nei – Það má strangt til tekið ekki yfir­gefa bif­reið­ina – Á fáförnum slóðum gæti maður tekið séns­inn en væri eftir sem áður brot­legur við sótt­varn­ar­lög.

Ég kom síð­ast til lands­ins fyrir rúmri viku síðan, einn í fylgd 3 ára sonar míns sem ég bar á hand­leggnum og við báðir þreyttir í sam­tali við landamæra­vörð. -Skila­boðin voru þau sömu og áður: Hunskist á áfanga­stað, án tafar – Gildir einu hvort það er í Hafn­ar­firði eða á Ísafirði.

Skemmst er frá því að segja að ég hef í öllum ferðum mínum hunsað þessi boð og sofið eina nótt fyrir sunnan og keyrt úthvíldur vestur í dags­birtu morg­un­inn eftir.

Tjarga og fiðra

Ég er búinn að ergja mig tals­vert á þessu og tjáð mig um þetta við vini og vanda­menn. Nú sé ég eftir að hafa hingað til verið of mikil gunga til að koma óánægju minni á fram­færi við yfir­völd af ótta við sekt­ar­boð upp á hund­ruð þús­unda króna. Á Íslandi hefur nefni­lega verið grunnt á ref­sigleð­inni í far­aldr­inum og hávært ákall verið uppi um að finna og góma söku­dólga sem ekki fara eftir sótt­varn­ar­reglum og helst tjarga þá og fiðra opin­ber­lega. En eftir nýliðna helgi er mér alveg sama. Ef það mætti verða til þess að vekja ein­hvern til umhugs­unar – og mögu­lega afstýra við­líka hryll­ingi og þeim sem við stóðum frammi fyrir í Djúpinu um helg­ina – þá myndi ég glaður láta tjarga mig, fiðra og féfletta.

Það er að mínu mati aug­ljós mis­tök af hálfu yfir­valda að hvetja ekki lands­byggð­ar­fólk bein­línis til að dvelja eina nótt nærri Kefla­vík­ur­flug­velli áður en lengra er haldið á ferða­lag­inu. Það er minni­háttar tækni­leg hindrun að gefa fólki kost á að skrá áning­ar­stað á covid.is. – Mér skilst að fjöldi gisti­staða á SV-horn­inu bjóði uppá hag­stæða gist­ingu í sótt­kví en þeim upp­lýs­ingum er ekki haldið að fólki. – Óháð heims­far­aldr­inum hefði það verið kær­komið tæki­færi fyrir yfir­völd að vekja ferða­langa til umhugs­unar um mik­il­vægi hvíldar og þá gríð­ar­legu áhættu sem fylgir því að vera syfj­aður við akstur. Þvert á móti hafa yfir­völd hingað til kosið að etja syfj­uðum ferða­löngum út í lang­ferðir við mis­jöfn akst­urs­skil­yrði og hótað háum fjár­sektum ef þeir hunskast ekki úr spor­unum.

Mín einlæga ósk

Það er úti­lokað að sjá fyrir allar afleið­ingar af beit­ingu jafn flók­inna ráð­staf­ana og núver­andi sótt­varn­ar­reglur eru. Með þessum orðum mínum er ég alls ekki að áfell­ast neinn eða kalla eftir því að ein­hver verði dreg­inn til ábyrgðar -Einhver spek­ingur sagði ein­hvern tím­ann eitt­hvað á þá leið að ekki ætti að dæma fólk af mis­tökum sínum, heldur af því hvernig það bregst við þeim og dregur af þeim lær­dóm – Ef það kemur á dag­inn að eng­inn vill horfast í augu við van­kanta og mis­tök í upp­lýs­inga­gjöf til lands­byggð­ar­fólks sem á leið um Kefla­vík­ur­flug­völl um þessar mundir þá vofir áfell­is­dóm­ur­inn yfir.

Það er ein­læg ósk mín að það sem eftir lifir vetrar verði þessu vinnu­lagi breytt: Að þeir ferða­langar sem skrá sótt­kví­ar­stað utan SV-horns­ins verði bein­línis hvattir til að huga að hvíld og akst­urs­skil­yrðum og minntir á að leyfi­legt sé (og mögu­legt gegn vægu gjaldi) að finna áning­ar­stað áður en ekið er af stað.

Með vin­semd og virð­ingu,

Jóhann Sig­ur­jóns­son

Læknir á Ísafirði.

Pistill­inn var upp­haf­lega birtur á Facebook-síðu höf­undar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ