InnlentErna Ýr vill ekki að við fáum bóluefni því „Kínverjar eiga 11 mismunandi gerðir af þessum vírus“30. desember 2020 Erna Ýr Öldudóttir, þáttastjórnandi á Útvarpi Sögu og álitsgjafi ýmsa fjölmiðla, fer mikinn í athugasemd við færslu Hannesar Hólmsteins Gissuraronar, prófessors við Háskóla Íslands. Hannes kvartar undan því að mögulega fái Íslendingar ekki nægilega mikið bóluefni við COVID sem fyrst. Erna segir landsmenn ekkert þurfa bóluefni, því Kínverjar eigi lager af álíka veirum. „Við þurfum ekkert bóluefni. Þetta er tiltölulega...
InnlentÞórdís er látin – Dúxaði í MR en strákurinn fékk verðlaunin – „Sveið alla tíð undan þessu“30. desember 2020 Þórdís Þorvaldsdóttir verður borin til grafar í dag en hún lést þann 13. desember síðastliðinn. Hún var 92 ára og átti að baki glæstan feril sem bókavörður. Barnabarn hennar, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, skrifar minningargrein um hana og lýsir ævi magnaðrar konu sem sóttist í þekkingu þrátt fyrir mótlæti. Þórdís var sæmd sænsku norðurstjörnunni 1975 og veittur minnispeningur, útgefinn í tilefni...
InnlentÞessar voru mest lesnar á árinu 2020 – Harmleikir, gámaslys, dóttir morðingja og Tobba vs. Bo30. desember 2020 Mannlíf óskar öllum gleðilegrar hátíðar. Ritstjórn Mannlífs þakkar lesendum sínum góða samleið og stóraukinn lestur á árinu. Fjölmargar fréttir Mannlífs vöktu mikla athygli og var miðillinn leiðandi í stórum fréttamálum á árinu. Það eru síðan lesendur sem segja hug sinn og þessar fréttir eru þær sem fengu mestan lestur á árinu sem er að líða: Litli drengurinn jarðsunginn á föstudag....
InnlentDavíð ósáttur og vill að RÚV ræði afsögn Katrínar vegna umdeilds faðmlags30. desember 2020 Í Staksteinum er Ríkisútvarpið gagnrýnt harðlega vegna viðtals Einars Þorsteinssonar við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra en linkindar í garð tveggja ráðherra Vinstri grænna. Staksteinar eru hluti af ritstjórnarefni Morgunblaðsins og ávalt ómerkt. Oft er þessi hluti skrifaður af ritstjóranum, Davíð Oddssyni, sem jafnframt ber ábyrgð á áróðrinum stöðu sinnar vegna. Það má lesa úr Staksteinum að Davíð eða aðrir yfirmenn Morgunblaðsins...
InnlentPétur fengið endanlega nóg: Lokar Facebook – Ein ljót setning og dagurinn ónýtur30. desember 2020 Tónllistarmaðurinn Pétur Örn Guðmundsson, eða Pétur jesú eins og hann er gjarnan kallaður segir að samfélagsmiðillinn Facebook hafi bæði tekið frá honum tíma og eins skapað hjá honum vanlíðan. Pétur hefur því ákveðið að loka Facebook í heilt ár. Hann kveðst ekki hafa átt von á að samfélagsmiðillinn tæki frá honum tíma mörgum sinnum á dag. „Þá er ég aðallega...
InnlentVölva Mannlífs: Bjarni sigrar30. desember 2020 Sjálfstæðisflokkurinn fær býsna góða niðurstöðu úr kosningunum eða nærri 23 prósent atkvæða sem er meira en flestir bjuggust við. Þetta leiðir til þess að Bjarni og hans menn verða skilgreindir sem sigurvegarar kosninganna. Það gerist svo í einni svipan að Katrín Jakobsdóttir gengur á fund Guðna Jóhannessonar forseta og biðst lausnar fyrir sitt ráðuneyti og skömmu síðar verður Bjarna Bendiktssyni...
InnlentHannes opnar sig um áfengisneyslu: „Óneitanlega væri ég afkastameiri, hefði ég ekki áfengi um hönd“30. desember 2020 Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla Íslands, ræðir áfengisneyslu sína í færslu sem hann birtir í nótt. Hann telur neysluna ekki hafa gert sér neitt mein en viðurkennir þó að hann flýji í fang áfengis undan hörðum heimi, líkt og hann orðar það. Færslan hefst á uppgjöri hans við árið sem er að líða. „Ég hef komist tiltölulega vel frá...
InnlentSigurliði Guðmundsson er látinn29. desember 2020 Sigurliði Guðmundsson fæddist í Reykjavík 15. október 1942. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 20. desember 2020, 78 ára að aldri. Sigurliði eignaðist synina Theodór Gísla og Sigurð Ragnar með Guðbjörgu Theodórsdóttir fyrri konu sinni. Árið 2001 kynntist hann Ríkey Guðmundsdóttir 2001 en hún á börnin Oddný Ósk, Guðmund Elmar, Pálínu Svölu og Kolbrúnu Söndru. Sigurliði var rafvirkjameistari og einn...
InnlentVölva Mannlífs: Dagur hættir29. desember 2020 Ein klassískasta svigasetning í leikbókmenntum heimsins er: (tekur hatt sinn og staf og fer út til vinstri). Þetta er einmitt það sem Dagur B. Eggertsson gerir í lok hins nýja árs. Hann stendur upp úr stól sínum sem borgarstjóri og heldur á vit annarra verkefna. Völvan sér hann á sjónvarpsskjánum með tár á hvarmi þegar hann er að þakka samstarfsfólki...
SkoðunAðsend greinFrábært hjá forstjóranum29. desember 2020 Eftir / Vilhjálm Birgisson Gríðarlega mikilvægt að allir hörðustu andstæðingar stóriðjunnar og umhverfissinnar á Íslandi lesi það sem forstjóri Landsvirkjunar skrifar í þessum pistli. En orðrétt segir Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunar: „Það vill reyndar oft brenna við, þegar bent er á endurnýjanlega, umhverfisvæna raforkuvinnslu að menn láta eins og það skipti litlu máli því sú orka sé nýtt í mengandi...
InnlentMynd dagsins: Frumlegasta jólakveðja ársins29. desember 2020 Eiríkur Sigurðsson er þaulreyndur skipstjóri til tæplega fjörutíu ára. Hann er aflakló, þykir slyngur við veiðar og leiðbeinir sínum sjógörpum frá brúnni í frystitogaranum Reval Viking. Þegar lagt er úr höfn á veturna er stefnan sett djúpt inn í svartasta myrkrið sem er að finna á jarðarkringlunni. Og á meðan vetur konungur ræður ríkjum er myrkrið alltaf á sínum stað....
InnlentSara Björk varði titilinn og er íþróttamaður ársins 202029. desember 2020 Samtök íþróttafréttamanna tilkynntu nú í kvöld í 65. sinn hvaða íþróttamaður þótti skara fram úr á árinu. Íþróttamaður ársins 2020, fékk fullt hús stiga, er að þessu sinni: Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu. Sara Björk sem átti ótrúlegt ár, varði því titil sinn frá því í fyrra. Á vef RÚV um valið segir: Á árinu varð Sara...