Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þórdís er látin – Dúxaði í MR en strákurinn fékk verðlaunin – „Sveið alla tíð undan þessu“

Þórdís er látin – Dúxaði í MR en strákurinn fékk verðlaunin – „Sveið alla tíð undan þessu“

Þórdís Þor­valds­dóttir verður borin til grafar í dag en hún lést þann 13. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Hún var 92 ára og átti að baki glæstan feril sem bóka­vörður. Barna­barn hennar, Þórdís Elva Þor­valds­dóttir, skrifar minn­ing­ar­grein um hana og lýsir ævi magn­aðrar konu sem sótt­ist í þekk­ingu þrátt fyrir mót­læti.

Þórdís var sæmd sænsku norð­ur­stjörn­unni 1975 og veittur minn­is­pen­ingur, útgef­inn í til­efni 150 ára afmælis finnsku Kalevala-þjóð­kvæð­anna 1985. Í Morg­un­blað­inu er ferli hennar lýst svo: „Hún var rit­ari hjá Nátt­úru­gripa­safni Íslands, síðan Nátt­úru­fræði­stofnun 1950-56, yfir­bóka­vörður Norræna húss­ins í Reykja­vík 1973-85, yfir­bóka­vörður Nordens fol­kliga aka­demi í Kungälv í Svíþjóð 1980-82 og borg­ar­bóka­vörður Reykja­víkur 1985-97“.

Þórdís Elva segir ömmu sína ekki hafa verið hefð­bundna ömmu sem bak­aði smákökur. „Sól­ar­hring eftir að ég og mað­ur­inn minn lentum á Íslandi í jóla­heim­sókn, klyfjuð af töskum og ferða­l­únum smá­börnum, lést amma mín Día. Hin upp­runa­lega Þórdís Þor­valds­dóttir, þrumu­gyðjan sem ég hlaut þann heiður að vera skírð í höf­uðið á. Hún var ekki svona amma sem stendur sveitt við að baka smákökur ofan í gesti og gang­andi. Þess í stað mark­aði hún barn­æsku mína með póst­kortum frá fjar­lægum löndum, þar sem hún var á ráð­stefnum og mál­þingum því hún „þurfti alltaf að vera að læra eitt­hvað nýtt“, eins og hún sagði sjálf. Hún var ekki svona amma sem prjón­aði peysur og leista á afkom­enda­sk­ar­ann. Þess í stað gaf hún mér þykka doðranta með grískum goð­sögnum, því „stúlkur þyrstir í fróð­leik“,“ skrifar hún.

Þrátt fyrir mikla hæfi­lega þá mátti hún þola mót­læti vegna kyns síns. „Amma mundi eftir sér sitj­andi uppi á ofn­hillu rúm­lega tveggja ára gömul, þar sem henni var tyllt til að forða henni frá því að spora út gólfið sem ráðs­konan, móðir hennar, lá á hnjánum við að bóna. Til að barnið hefð­ist við uppi á hill­unni stytti hún þeim stundir með því að hlýða hnát­unni yfir staf­rófið. Þannig var amma orðin læs þriggja ára og síðar meir hopp­aði hún yfir tvo bekki í skól­anum, en var þá settur stóll­inn fyrir dyrnar því frek­ari námsa­frek af hennar hálfu settu eldri nem­endur í slæmt ljós. Þegar hún dúxaði engu að síður í Mennta­skól­anum í Reykja­vík voru verð­launin fyrir besta náms­ár­ang­ur­inn látin fara til næst­hæsta nem­and­ans, því hann var strákur en hún stelpa. Hún bar höf­uðið hátt, en sveið alla tíð undan þessu órétt­læti,“ segir Þórdís.

Hún lét hug­myndir um kyn­hlut­verk sem vind um eyrun þjóta. „Amma fór í háskóla­nám í íslenskum fræðum á tíma þegar ein­ungis tveir aðrir nem­endur í því námi voru konur. Í kjöl­farið var hún fyr­ir­vinna fjöl­skyld­unnar á meðan afi var í lækna­námi og lét álit ann­arra og íhalds­samar hug­myndir um kyn­hlut­verk sem vind um eyrun þjóta. Samhliða þessu eign­að­ist hún tvö börn, en þau áttu eftir að verða fimm sam­tals,“ segir Þórdís.

Að lokum varð Þórdís borg­ar­bóka­vörður. „Þrátt fyrir sinn skerf af striti og sorg vann amma sig upp til æðstu met­orða innan sinnar starfs­stéttar og varð borg­ar­bóka­vörður, þar sem henni var treyst fyrir því að halda úti einu öfl­ug­asta fræðslu­setri borg­ar­búa. Ég get ekki ímyndað mér verð­ugri mann­eskju í það starf en ömmu. Hún skildi mik­il­vægi þess að brúa kyn­slóða­bilið og vann ötul­lega að því að gera almenn­ings­bóka­söfn staf­ræn með til­komu gagna­grunns­ins Gegnis. Þannig var amma hluti af þeirri bylt­ingu sem færði sög­urnar, sem for­feður okkar hvísl­uðu við eld­inn, til barna nútím­ans,“ segir Þórdís.

Nafna hennar þakkar henni að lokum fyrir að flytja fjöll. „Sjálf var hún magn­aður sögu­maður. Þegar hún varð sjö­tug þurfti ég að vinna og missti af afmæl­is­veisl­unni hennar, en frétti síðar að for­set­inn, fyrr­ver­andi for­set­inn og borg­ar­stjór­inn voru öll meðal gesta. Þá var ég afbrýð­isöm út í ömmu fyrir að þekkja svona merk­is­fólk. Núna er ég afbrýð­isöm út í merk­is­fólkið fyrir að hafa kom­ist í afmælið hennar ömmu. Þar sem gler­þak var að finna braut amma það, sam­hliða því að lifa inni­halds­ríku lífi í faðmi stórrar fjöl­skyldu. Ég elska þig, amma mín. Takk fyrir að flytja fjöll, svo dætur þínar og barna­börn geti klifið þau. Útsýnið sem þú eft­ir­lætur okkur er stór­kost­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina