Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þessar voru mest lesnar á árinu 2020 – Harmleikir, gámaslys, dóttir morðingja og Tobba vs. Bo

Þessar voru mest lesnar á árinu 2020 – Harmleikir, gámaslys, dóttir morðingja og Tobba vs. Bo

Mannlíf óskar öllum gleði­legrar hátíðar. Rit­stjórn Mannlífs þakkar les­endum sínum góða sam­leið og stór­auk­inn lestur á árinu.

Fjöl­margar fréttir Mannlífs vöktu mikla athygli og var mið­ill­inn leið­andi í stórum frétta­málum á árinu. Það eru síðan les­endur sem segja hug sinn og þessar fréttir eru þær sem fengu mestan lestur á árinu sem er að líða:

  1. Litli dreng­ur­inn jarð­sung­inn á föstu­dag. 72.000 les­endur. Facebook: Náði til 158.429 les­enda, 89.200 við­brögð, 3.900 læk, 481 ummæli, 40 deil­ingar.

Mannlíf greindi frá útför ungs drengs sem fannst lát­inn í heima­húsi í Garðabæ í sept­em­ber síð­ast­lið­inum. Max­im­il­ian Helgi Ívarsson var aðeins ell­efu ára gam­all þegar hann lést með svip­legum hætti.

Sam­fé­lagið var í sárum vegna and­láts Max­im­illian og var málið mjög umtalað á meðal barna í Garðabæ. Ekkert hefur verið gefið upp um málið annað en að ekki sé grunur uppi um neitt sak­næmt.

2. Tomas lést í gámaslys­inu í Kópavogi: Lætur eftir sig 4 ára dóttur. 67.200 les­endur. Facebook: Náði til 151.339 les­enda, 70.717 við­brögð, 1.500 læk, 90 ummæli, 5 deil­ingar.

Tomas Manči­auskas, tæp­lega þrí­tugur Lithái, fannst lát­inn í söfn­un­ar­gámi Rauða kross­ins í Kópavogi í októ­ber. Hann lét eftir sig fjög­urra ára gamla dóttur sem býr í Litháen.

Tomas er tal­inn hafa verið að teygja sig ofan í gám­inn og fest hönd sína þar. Lögregla segir ekki neitt annað að sjá en að um hörmu­legt slys hafi verið að ræða. Gámurinn er stað­settur vest­ur­bænum í Kópavogi, nærri Salnum.

Blessuð sé minn­ing Tomasar.

Félag Litháa á Íslandi harmar atburð­inn og sendi fjöl­skyldu og vinum inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur. „Okkur fannst mjög sorg­legt að heyra af þessu og það er erfitt að hugsa til þess að hann eigi þessa litlu stúlku í heima­land­inu. Við sendum fjöl­skyld­unni inni­legar sam­úð­ar­kveðjur,“ sagði Jurgita, stjórn­ar­maður í Félagi Litháa á Íslandi.

3. Harm­leikur í Garðabæ: Ellefu ára drengur fannst lát­inn. 58.100 les­endur. Facebook: Náði til 138.365 les­enda, 75.268 við­brögð, 1.900 læk, 179 ummæli, 29 deil­ingar.

Ellefu ára gam­all drengur fannst lát­inn í heima­húsi í Garðabæ. Dreng­ur­inn var í Sjá­lands­skóla og fannst hann lát­inn heima hjá sér. Ljóst var að slys hafði orðið. Sam­fé­lagið var í sárum vegna máls­ins.

Max­im­il­ian Helgi Ívarsson var aðeins ell­efu ára gam­all þegar hann lést með svip­legum hætti.

4. Guðrúnar yfir­læknis á sótt­varn­ar­sviði minnst: „Hún nestaði alla vel upp til fram­tíðar“. 54.400 les­endur. Facebook: Náði til 148.587 les­enda, 60.078 við­brögð, 2.000 læk, 109 ummæli, 25 deil­ingar.

Guðrún lést langt fyrir aldur fram.

Guðrún Sig­munds­dóttir, yfir­læknir á sótt­varn­ar­sviði land­læknis, lést langt fyrir aldur fram eftir hetju­lega bar­áttu við krabba­mein. Hún skildi eftir sig eig­in­mann og börn.

Guðrún var meðal fremstu lækna á Íslandi á sviði sótt­varna ásamt Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varna­lækni og Haraldi Bríem, fyrr­ver­andi sótt­varn­ar­lækni. Hún hafði starfað sem yfir­læknir á sótt­varn­ar­sviði svo ára­tugum skiptir þrátt fyrir ungan aldur. Um tíma var hún settur sótt­varn­ar­læknir. Þrátt fyrir veik­indi þá hélt Guðrún áfram störfum og var hún til að mynda skipuð fyrsti vara­maður í sam­starfs­nefnd um sótt­varnir í sumar.

5. Dóttir týnda leigu­bíl­stjór­ans úr Breið­holti: „Pabbi var ein­fari“. 54.300 les­endur. Facebook: Náði til 121.412 les­enda, 52.032 við­brögð, 482 læk, 38 ummæli, 12 deil­ingar.

„Við vorum náin en ég var sú eina sem hann hélt sam­bandi við. Hann vildi ekki vera í sam­bandi við neina aðra,“ sagði Álf­heiður Arn­ar­dóttir, dóttir Arnar Ing­ólfs­sonar sem fannst lát­inn í Breið­holti, um föður sinn í sam­tali við Mannlíf.

Lík Arnar heit­ins fannst í rjóðri fyrir neðan Erluhóla og hafði þá verið þar í nokkurn tíma. Ekki er fylli­lega ljóst hvenær hann lést en ljóst er að það voru nokkrir mán­uðir síðan. Enginn hafði til­kynnt um hvarf hans og virt­ist eng­inn vita að hann væri týndur. Það tók lög­regl­una því langan tíma að bera kennsl á Örn sem var 83 ára þegar hann lést.

Örn Ing­ólfs­son heit­inn.

Örn var mik­ill ein­fari að sögn Álf­heiðar en hann starf­aði lengi sem leigu­bíl­stjóri í Reykja­vík. Hann skilur eftir sig eina dóttur og níu barna­börn en önnur dóttir hans lést arið 2000. Hvergi leið Erni þó betur heldur en úti í sveit segir Álf­heiður sem bjó lengi með föður sínum í Stað­ar­sveit á Snæ­fells­nesi. Hún kall­aði hann gjarnan Adda.

6. Harm­leikur í skjóli barna­verndar – Andlát ung­barns til rann­sóknar. 49.400 les­endur.

Rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakar and­lát unga­barns sem lést á vist­heim­ili barna á vegum Barna­verndar Reykja­víkur. Andlátið átti sér stað á haust­mán­uðum og lög­reglan verst allra frétta af rann­sókn­inni að öðru leyti en því að ekki sé talið að and­látið hafi borið að með sak­næmum hætti. Ekki liggur því fyrir á þess­ari stundu hvernig and­lát barns­ins bar að og er beðið eftir nið­ur­stöðu krufn­ingar erlendiis frá.

Dauðs­fallið varð á vist­heim­ili barna á vegum Barna­vendar Reykja­víkur, úrræði sem kall­ast Mánaberg, þar sem fram fer með­ferð í for­eldra­færni. Eftir því sem Mannlíf kemst næst átti harm­leik­ur­inn sér stað í þartil­gerðri gæslu­í­búð. Íbúðin er sér­stakt úrræði þar sem for­eldrar barna eru undir sér­stöku eft­iriliti með það að mark­miði að leið­beina þeim hvernig bera eigi virð­ingu fyrir börnum sínum.

7. Helgi var aeð­ins 14 ára: „Ég vissi ekki að for­eldrar gætu elska börnin sín jafn­heitt“. 47.000 les­endur. Facebook: Náði til 136.845 les­enda, 52.286 við­brögð, 1.300 læk, 120 ummæli, 10 deil­ingar.

Helgi Jóhann­es­son var nýlega orð­inn 14 ára þegar hann lést af völdum vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóms­ins Duchenne. Margir minnt­ust hans í minn­ing­ar­greiðum Morg­un­blaðs­ins, þar á meðal móðir hans, fjöl­miðla­konan Marta María Jón­as­dóttir, og stjúp­faðir hans, Páll Winkel fang­els­is­mála­stjóri.

Sorg fjöl­skyld­unnar er mikil. Helgi var list­fengur og hafði næmt auga fyrir umhverfi sínu. Hann var náinn fjöl­skyldu sinni og hans bestu stundir voru í faðmi hennar. Marta María segir að eftir erf­iða fæð­ingu hafi verið ólýs­an­legt að fá hann í fangið. „Það að fá þig í fangið var engu líkt. Ég upp­lifði mik­inn van­mátt því ég vissi ekki að for­eldrar gætu elskað börnin sín jafn­heitt og ég elskaði þig. Frá fyrstu mín­útu ákvað ég að gefa þér allt sem ég átti til þess að þú myndir feta lífs­ins veg glaður,“ skrifar hún.

Áfallið kom þegar Helgi var fimm ára. „Þegar þú varst fimm ára greind­ist þú með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Duchenne. Það var mikið áfall fyrir okkur for­eld­rana þína og alla sem þótti vænt um þig. Við ákváðum að setja fók­us­inn á að þú myndir lifa venju­legu lífi. Duchenne var þarna með okkur og við vissum alltaf af honum, en ákváðum að láta lífið ekki snú­ast um hann. Lífið sner­ist um þig, elsku Helgi okkar,“ lýsir Marta.

8. „Pabbi minn drap mann“. 44.700 les­endur. Facebook: Náði til 132.584 les­enda, 55.186 við­brögð, 289 læk, 10 ummæli, 17 deil­ingar.

Erla steig fram í ein­lægu helg­ar­við­tal Mannlífs.

Erla Rós Bjarka­dóttir var aðeins níu ára þegar pabbi hennar gerð­ist sekur um mann­dráp. Í helg­ar­við­tali Mannlífs opn­aði hún sig um upp­vöxt­inn í skugga morðs­ins.

„Barinn með bús­á­haldi“ og „Eins og að ganga inn í slát­ur­hús“ eru meðal fyr­ir­sagna sem birt­ust í fjöl­miðlum dag­inn eftir að Bjarki Freyr Sig­ur­geirs­son varð Braga Frið­þjófs­syni að bana við Dals­hraun í Hafn­ar­firði þann 17. ágúst 2009.

9. Svandís stígur til hliðar vegna veik­inda í fjöl­skyld­unni. 43.100 les­endur. Facebook: Náði til 133.652 les­enda, 55.478 við­brögð, 2.100 læk, 230 ummæli, 5 deil­ingar.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herrra steig tíma­bundið til hliðar úr stóli heil­brigð­is­ráð­herra. Ástæðan fyrir því er alvar­leg veik­indi í fjöl­skyldu hennar. Svandís steig tíma­bundið til hliðar, eða fram til 15. októ­ber.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra.

Dóttir hennar, Una Torfa­dóttir, greind­ist í sumar með heila­æxli sem reynd­ist vera krabba­mein. Una ekki sú eina sem er alvar­lega veik í fjöl­skyldu Svan­dísar.

10. Tobba reið út í Björgvin og sakar um karl­rembu: „Ég bara fann ekki e-mailið hennar“. 41.400 les­endur. Facebook: Náði til 126.687 les­enda, 48.291 við­brögð, 200 læk, 35 ummæli, 13 deil­ingar.

Þorbjörg Mar­in­ós­dóttir, betur þekkt sem Tobba Marinós, rit­stjóri DV, sak­aði Björgvin Hall­dórs­son söngv­ara um karl­rembu þegar hann hringdi í eig­in­mann hennar til að kvarta yfir frétt DV. Það fannst henni bæði ömur­legt og nið­ur­lægj­andi.

Tobba sak­aði Björgvin um karl­rembu.

Tobba tók það fram að hún taldi það ekki sprottið af slæmum ásetn­ingi eða dón­skap hjá Björvini að hringja í eig­in­mann hennar til að kvarta undan hennar störfum. Sjálfur vildi sögn­var­inn ekki gera mikið úr mál­inu þega Mannlíf ræddi við hann. „Ég tala bara við hana sjálfur en ég bara fann ekki e-mailið hennar. Ég á eftir að hreinsa þetta mál,“ segir Björgvin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum