InnlentCovid-19Leiðbeiningar um rakstur „vegna kórónaveirunnar“ fara eins og eldur um sinu á Netinu6. mars 2020 Í vikunni greindu fjölmiðlar frá því að íslenskir karlar væru farnir að raka af sér skeggið til að fyrirbyggja kórónasmit. Rætt var við lækni sem hefur rakað af sér skeggið í þágu sóttvarna og segist vita um minnst tvo aðra lækna sem gert það líka. Sjá einnig: Hvetja menn til að raka af sér skeggið til að fyrirbyggja kórónasmit Aðgerðir...
InnlentReynt að koma í veg fyrir að fólk geti svikið út lyf6. mars 2020 Mannlíf sagði frá því í janúar að söngkonan Íris Hólm Jónsdóttir, varð fyrir því um jólin að fá ekki lyfin sín afhent af því að önnur kona hafði leyst þau út. Íris var lyfjalaus yfir hátíðirnar og þurfti svo að leita til læknis til að fá ávísun á næsta skammt. Ókunnuga konan hafði farið í apótekið, framvísaði skilríkjum og leyst...
InnlentÍslendingar senda börnin í „hreinasta helvíti“ í næstu viku6. mars 2020 „Að minnsta kosti fimm barnafjölskyldur bíða þess nú að verða endursendar til Grikklands,“ segir Sema Erla Serdar, stofnandi hjálparsamtakanna Solaris. Helgi Hrafn Gunnarsson Pírati segir óboðlegt að senda fólkið aftur til Grikklands. Engu máli skipti þó að þau hafi þar stöðu flóttamanna. Til stóð að senda unga sex manna írakska fjölskyldu til Grikklands á fimmtudag, þar sem hún hefur stöðu...
InnlentCovid-19„Ef ég smitast þá smitast ég og þá tækla ég það“6. mars 2020 María Dungal líffæraþegi er ein margra Íslendinga sem eru í aukinni smithættu af COVID-19 kórónaveirunni vegna undirliggjandi sjúkdóma. Dagsdaglega þarf hún að passa upp á sig og forðast flensu og aðrar pestir, en núna er aukin hætta vegna kórónaveirunnar og kannski ekki síst vegna þess að fregnir berast af því að Íslendingar sem koma erlendis frá reyna í einhverjum tilvikum...
InnlentCovid-19Fólk með sjúkdóma óttast um líf sitt6. mars 2020 Fólk með undirliggjandi sjúkdóma óttast mjög að smitast af kórónaveirunni, að sögn formanns Öryrkjabandalags Íslands. Þeim sem eru veikir fyrir stafar meiri ógn af veirunni en þeim sem eru hraustir. Línur Hjálparsíma Rauða krossins hafa verið rauðglóandi undanfarna daga. Öryrkjar og aldraðir eru áberandi í hópi innhringjenda. „Margir öryrkjar eru með alvarlega undirliggjandi sjúkdóma og eru þess vegna í meiri...
InnlentSegir margt fólk vera „komið á brúnina andlega“ vegna verkfalla6. mars 2020 Verkföll félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg hafa mikil áhrif á barnafjölskyldur í Reykjavík. Ásdís Gunnarsdóttir, tveggja barna móðir, segist vera reið vegna ástandsins. Ásdís skrifaði færslu um málið á Facebook í fyrradag og lýsti ástandinu á heimilinu. Hún segir það vera „óbærilegt“ fyrir dóttur sína sem er með einhverfu og skertan þroska. Í samtali við Mannlíf kveðst Ásdís Gunnarsdóttir...
InnlentUnglingsdrengir réðust á starfsmann skíðasvæðis6. mars 2020 Unglingsdrengir réðust með höggum og spörkum á umsjónarmann skíðasvæðisins í Grafarvogi í gærkvöldi þegar hann gerði athugasemdir um að þeir færu ekki eftir reglum svæðisins. Unglingarnir réðust með höggum og spörkum á umsjónarmanninn. Unglingarnir voru farnir þegar lögregla kom á staðinn. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu, en hún fékk tilkynningu um árásina í gærkvöldi kl. 19.15. Maðurinn hafði samband...
InnlentCovid-19Þeir sem virða ekki sóttkví gætu átt fangelsisvist yfir höfði sér6. mars 2020 Lögmæður segir sóttvarnalækni geta leitað aðstoðar lögregluyfirvalda fari fólk ekki eftir tilmælum um að vera í sóttkví vegna COVID-19. „Ef einstaklingur er með sjúkdóm og vill ekki gera neitt til að hefta útbreiðslu smitunar, og almannahagsmunir liggja undir, getur sóttvarnalæknir leitað aðstoðar lögregluyfirvalda.“ Þetta segir Jón Þór Ólason, lögmaður og lektor við lagadeild Háskóla Íslands, í samtali við Fréttablaðið, í...
InnlentBorgaraleg handtaka á erlendum brúðguma – Kostulegt atvik á Austurlandi5. mars 2020 Steinþór Guðni Stefánsson framkvæmdastjóri Austurverks ætlaði að moka veginn yfir Fjarðarheiði á þriðjudag, en þegar hann kom að hjólaskóflu sinni mætti honum óvenjuleg sjón: erlendur ferðamaður var þar í ökumannshúsi vélarinnar, og meira að segja upp á búinn í jakkafötum undir úlpunni. Í viðtali við Austurfrétt segir Steinþór frá atvikinu. Ferðamaðurinn gat einungis sagt að honum væri kalt, og brá...
InnlentCovid-19Lög sem gera handþvottinn skemmtilegri5. mars 2020 Allir vita að besta leiðin til að minnka útbreiðslu kórónaveirunnar er að þvo sér oft og vandlega um hendurnar. Heilbrigðisyfirvöld segja að til að koma að fullu gagni þurfi þvotturinn að standa yfir í tuttugu sekúndur. Sums staðar er mælt með því að syngja afmælissönginn tvisvar til að passa upp á að handþvotturinn standi yfir í þessar margumræddu tuttugu sekúndur,...
InnlentCovid-19Ber af sér allar sögusagnir um að virða ekki sóttkví: „Hér eru allir hressir“5. mars 2020 Lúðvík Jónasson framkvæmdastjóri hjá birtingarhúsinu Bestun er einn þeirra íslendinga sem eru heima hjá sér í sóttkví vegna COVID-19 veirunnar. Lúðvík var staddur ásamt fjölskyldu sinni í skíðaferðalagi á Ítalíu í lok febrúar, en öll Ítalía er nú skilgreind sem hættusvæði sökum kórónaveirunnar. Í færslu sem Lúðvík birtir á Facebook ber hann af sér sögusagnir um að hann sé á...
InnlentCovid-19Fjölgar sér ekki í matvælum en getur setið á yfirborðinu5. mars 2020 Ekki er vitað til þess að Covid-19 hafi smitast með matvælum. Þeir sem eru í sóttkví og með einkenni ættu þó ekki að útbúa mat fyrir aðra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. Í tilkynningunni segir að MAST hafi borist ýmsar fyrirspurnir um Covid-19 og matvæli. Veiran sem veldur Covid-19 sé ekki matarborin, þ.e. hún fjölgi sér ekki í...