Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Reynt að koma í veg fyrir að fólk geti svikið út lyf

Reynt að koma í veg fyrir að fólk geti svikið út lyf
Mynd / Unnur Magna

Mannlíf sagði frá því í jan­úar að söng­konan Íris Hólm Jóns­dóttir, varð fyrir því um jólin að fá ekki lyfin sín afhent af því að önnur kona hafði leyst þau út. Íris var lyfja­laus yfir hátíð­irnar og þurfti svo að leita til læknis til að fá ávísun á næsta skammt.

Ókunnuga konan hafði farið í apó­tekið, fram­vís­aði skil­ríkjum og leyst lyf Írisar út. Konan á enga refs­ingu yfir höfði sér. Hún braut hvorki reglur Lyfja­stofn­unar né framdi glæp sam­kvæmt skiln­ingi lög­reglu.

„Svo fór ég í þetta til­tekna apó­tek og til­kynnti þetta og þá varð þetta eig­in­lega bara eins og atriði í bíó­mynd; það kom kona inn á sama tíma og ég heyrði hana segja frá því að vin­kona hennar hafi lent í því að ADHD-lyfj­unum hennar hafi verið stolið. Ég spurði um nafnið á mann­eskj­unni sem tók út lyfin og þá var það sama mann­eskjan og tók mín lyf,“ sagði Íris í sam­tali við Mannlíf.

Svipuð atvik hafa nokkrum sinnum komið upp er fram kemur á vef Lyfja­stofn­unar, það er að lyf hafa verið leyst út af öðrum en eig­anda lyfja­á­vís­unar, án heim­ildar hans. Því hefur verið skerpt á túlkun og fram­kvæmd ákvæðis í 18. grein reglu­gerðar nr. 1266/2017 um lyfja­á­vís­anir og afhend­ingu lyfja.

Skriflegt umboð og persónuskilríki

Þann 10. mars næst­kom­andi ganga í gildi breyt­ingar sem varða afhend­ingu lyfja í apó­tekum. Eftir það verður ein­ungis heim­ilt að afhenda lyf eig­anda lyfja­á­vís­unar, eða þeim sem hefur ótví­rætt umboð hans til að fá þau afhent. Til að ótví­rætt sé hver geti talist umboðs­maður verður fram­vegis kallað eftir skrif­legu umboði þess sem sækir lyf í apó­tek fyrir annan en sjálfan sig. Framvísa þarf per­sónu­skil­ríkjum hvort sem um ræðir eig­anda eða umboðs­mann.

Á vef Lyfja­stofn­unar segir að sá sem sækir lyf fyrir annan en sjálfan sig skal leggja fram skrif­legt umboð í apó­teki. Umboðið eða afrit þess skal geym­ast í apó­tek­inu. Sé þörf á áfram­hald­andi aðstoð við að sækja lyf fyrir þann sem umboðið veitti, getur umboðs­mað­ur­inn óskað eftir að skjalið verði ljós­ritað í apó­tek­inu, ljós­ritið verði varð­veitt þar, en umboðs­mað­ur­inn haldi frum­rit­inu og geti fram­vísað því síðar eftir þörfum.

Sjá einnig: Ekkert glæp­sam­legt við að svíkja út lyf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina