Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ekkert glæpsamlegt við að svíkja út lyf

Ekkert glæpsamlegt við að svíkja út lyf
|Íris Hólm.

Kona fór í apó­tek, fram­vís­aði skil­ríkjum og leysti út lyf ann­arrar konu, sem var lyfja­laus í kjöl­farið. Konan sem tók lyfin út á fölskum for­sendum og hafði þau með sér, á enga refs­ingu yfir höfði sér. Hún braut hvorki reglur Lyfja­stofn­unar né framdi glæp sam­kvæmt skiln­ingi lög­reglu.

„Vinur minn pant­aði eitt­hvað og lét senda á póst­hús og pabbi hans fór að sækja fyrir hann en fékk ekki. Ég get hins vegar valsað inn í hvaða apó­tek sem er og tekið út hvaða lyf sem er. Og það er ekki ólög­legt.“ Þetta segir Íris Hólm Jóns­dóttir, söng­kona og leik­kona, en hún varð fyrir því um jólin að fá ekki lyfin sín afhent af því að önnur kona hafði leyst þau út. Íris var lyfja­laus yfir hátíð­irnar og þurfti svo að leita til læknis til að fá ávísun á næsta skammt en fyrir kon­una sem leysti út lyfin hafa svikin engar afleið­ingar; í augum kerf­is­ins hefur hún ekki gert neitt rangt.

„Ég fór á aðfanga­dag út í apó­tek en fékk þá þær upp­lýs­ingar að lyfin mín hefðu verið tekin út sex dögum áður í öðru apó­teki,“ segir Íris um mála­vexti. „Það var komið hádegi og búið að loka þannig að ég var lyfja­laus í nokkra daga. Svo fór ég í þetta til­tekna apó­tek og til­kynnti þetta og þá varð þetta eig­in­lega bara eins og atriði í bíó­mynd; það kom kona inn á sama tíma og ég heyrði hana segja frá því að vin­kona hennar hafi lent í því að ADHD-lyfj­unum hennar hafi verið stolið. Ég spurði um nafnið á mann­eskj­unni sem tók út lyfin og þá var það sama mann­eskjan og tók mín lyf.“

„Á meðan eru þessi lyf á svörtum mark­aði og verið að ofnota þau ein­hvers staðar. Og ég spyr mig, fyrir hvern vinnur kerfið?“

Í til­felli vin­kon­unnar voru lyfin tekin út í öðru apó­teki og Íris segir ómögu­legt að kom­ast að annarri nið­ur­stöðu en að við­kom­andi sé með lista yfir ein­stak­linga með ADHD og fari á milli apó­teka og prófi sig áfram.

Ábyrgðinni vísað á hendur sjúklingum

Konan sem sveik út lyfin var að sögn Írisar skráð í Facebook-hóp fyrir full­orðna ein­stak­linga með ADHD og má leiða líkur að því að þar hafi hún kom­ist yfir nöfn fórn­ar­lamba sinna. „Í hópnum er fólk sem deilir alls konar úrræðum og lausnum. Og það kemur fyrir að fólk spyr um auka­verk­anir lyfja,“ útskýrir Íris. Aðgengi að upp­lýs­ingum sé mikið en þær séu mis­vísandi og því gott að leita til fólks með per­sónu­lega reynslu af ólíkum lyfjum. Þess vegna hafi henni brugðið þegar for­stjóri Lyfja­stofn­unar steig fram í fjöl­miðlum og vís­aði ábyrgð­inni á hendur sjúk­lingum og hvatti þá til að vera ekki að deila reynslu sinni af lyfj­unum á sam­fé­lags­miðlum „og í ein­hverjum hópum“.

Íris Hólm.

„Þarna finnst mér Lyfja­stofnun vera að skella skömminni á sjúk­linga, sem eru í hópum til að hjálp­ast að,“ segir Íris en hún fékk sömu upp­lifun af sam­tali sínu við lækn­inn sem hún hitti til að fá nýja ávísun. „Hann sagði að það væri nú svo sem alltaf gott að gera pásu á svona lyfjum og þegar ég svar­aði honum sagði hann að læknar þyrftu jú að passa sig gagn­vart land­lækni þegar kæmi að svona upp­á­skriftum. Öll skömmin end­aði hjá mér; sjúk­lingnum sem vant­aði lyfin sín.“

Hjá Lyfja­stofnun fékk Íris þær upp­lýs­ingar að það væri ekki eig­in­legt brot á reglum að leysa út lyf ann­arra. Þegar hún leit­aði til lög­reglu var henni tjáð að athæfi kon­unnar væri ekki heldur glæp­sam­legt. „Ég bók­staf­lega spurði lög­regl­una hvort ég gæti sagt að ég gæti ekki kært mann­eskj­una af því þetta væri ekki ólög­legt.“ Svarið var já. Konan gerði ekk­ert rangt, að minnsta kosti ekki þannig að yfir­völd gætu nokkuð gert, þrátt fyrir að hún hefði gefið upp nafn og kenni­tölu og fram­vísað skil­ríkjum þegar hún tók út lyfin. Það hefði verið þjófn­aður að taka veski Írisar af búð­ar­borð­inu en ekki að taka lyfin hennar.

„Á meðan eru þessi lyf á svörtum mark­aði og verið að ofnota þau ein­hvers staðar. Og ég spyr mig, fyrir hvern vinnur kerfið? Það er búið að gera okkur sjúk­ling­unum veru­lega erfitt að fá þessi lyf en svo er það ekki flókn­ara en þetta fyrir aðra að kom­ast yfir þau. Og þá er ég ekki bara að tala um ADHD-lyf heldur líka sterk verkja­lyf og annað,“ segir Íris.

Hvetur lyfjanotendur til aðgerða

„Ég er ekki hissa á ofnotkun lyf­seð­ils­skyldra lyfja ef þetta er svona auð­velt. Það er búið að gera þetta flókið fyrir lækn­ana og sjúk­ling­unum eru skömmtuð lyfin mánuð fyrir mánuð en svo geta þeir sem mis­nota lyfin gengið inn í apó­tek og gefið upp hvaða nafn sem er og fengið þau afhent,“ segir Íris um þann lær­dóm sem hún hefur dregið af mál­inu.

„Og ég hvet bara alla sem taka lyf til að hringja í Lyfja­stofnun og biðja um þetta; að þau sendi út til­kynn­ingu á öll apó­tek lands­ins um að bara þú megir taka út lyfin eða ein­hver í fjöl­skyld­unni þinni.“

Hún seg­ist velta því fyrir sér, miðað við hversu erfitt það er að fá lyfin sín í sumum til­vikum, hvort ein­hverjir hafi lent í lífs­hættu eða sjúkra­hússinn­lögn vegna lyfja­leysis.

„Hvað þarf að ger­ast til að þetta sé tekið alvar­lega? Ég lifi án lyfj­anna minna, þó ekki vand­ræða­laust. Það er fólk sem þarf á lyfjum að halda til að halda lífi. Hversu mörg til­felli þarf til að þetta sé end­ur­skoðað?“

Þegar Íris bað um leið­bein­ingar til að koma í veg fyrir að upp­á­koman end­ur­tæki sig var henni sagt að hún þyrfti að láta skrá það í hverju ein­asta apó­teki ef hún vildi að bara hún gæti tekið lyfin út. Eða láta Lyfja­stofnun vita, sem myndi þá senda erindi á apó­tekin.

„Og ég hvet bara alla sem taka lyf til að hringja í Lyfja­stofnun og biðja um þetta; að þau sendi út til­kynn­ingu á öll apó­tek lands­ins um að bara þú megir taka út lyfin eða ein­hver í fjöl­skyld­unni þinni. Það væri lang­best ef Lyfja­stofnun fengi hrinu af svo­leiðis sím­tölum. Því þau hafa engan mann­skap til að vinna úr því og verða þá að finna aðra lausn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi