Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Íslendingar senda börnin í „hreinasta helvíti“ í næstu viku

„Að minnsta kosti fimm barna­fjöl­skyldur bíða þess nú að verða end­ur­sendar til Grikk­lands,“ segir Sema Erla Serdar, stofn­andi hjálp­ar­sam­tak­anna Solaris. Helgi Hrafn Gunn­ars­son Pírati segir óboð­legt að senda fólkið aftur til Grikk­lands. Engu máli skipti þó að þau hafi þar stöðu flótta­manna.

Til stóð að senda unga sex manna írakska fjöl­skyldu til Grikk­lands á fimmtu­dag, þar sem hún hefur stöðu flótta­manna. Þeim flutn­ingi var frestað með skömmum fyr­ir­vara. Rauði kross­inn mót­mælti því harð­lega á mið­viku­dag að senda börn til Grikk­lands, þar sem mikil úlfúð ríkir í garð flótta­fólks.

Mannlíf ræddi við fjöl­skyld­una fyrir hálfum mán­uði. Mohammed Al Deewan og Wedyan Al-Shammari flúðu póli­tískar ofsóknir í Írak árið 2017 og fengu alþjóð­lega vernd í Grikk­landi. Vegna ömur­legra aðstæðna flúði fjöl­skyldan til Íslands og sótti um umþjóð­lega vernd hér í júní í fyrra. Útlend­inga­stofnun synj­aði fólk­inu um efn­is­lega með­ferð mála þeirra. Börn hjón­anna eru níu ára, fimm ára, fjög­urra ára og eins árs.

Sjá einnig: Ætla að vísa fjórum börnum undir níu ára úr landi

Sema segir að fólk­inu hafi á síð­ustu stundu verið til­kynnt um að brott­vís­un­inni hefði verið frestað fram í næstu viku. Nú standi til að þau verði flutt „í boði íslenskra stjórn­valda“ til Grikk­lands, ásamt fleira flótta­fólki með beinu flugi. „Reynsla okkar sem vinnum í þessum mála­flokki er að þegar sendar eru einka­vélar þá er hópað í þær og reynt að koma eins mörgum um borð og hægt er. Ég ótt­ast að fleiri börn og barna­fjöl­skyldur fari í þetta flug í næstu viku.“

Rauði krossinn mótmælir

Rauði kross­inn á Íslandi mót­mælti á mið­viku­dag fyr­ir­hug­uðum brott­vís­unum barna­fjöl­skyldna, sem hafa fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi, til lands­ins. Fram kom að fimm fjöl­skyldum, hafi borist til­kynn­ingar um að stjórn­völd muni flytja þær til Grikk­lands á næstu dögum og vikum. Á sama tíma ber­ist fregnir af hræði­legu ástandi við Mið­jarð­ar­haf.

Í yfir­lýs­ingu Rauða kross­ins kemur fram að fregnir ber­ist frá Grikk­landi um harð­ræði grísku lög­regl­unnar og að fólki sé meinað inn­göngu. Mikil ólga sé í land­inu og andúð í garð flótta­fólks ríkj­andi. Ætla megi að sú ólga fari vax­andi. „Rauði kross­inn á Íslandi hefur ítrekað bent á að aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóð­lega vernd á Grikk­landi séu síst skárri en þeirra sem enn hafa umsókn sína til með­ferðar þar í landi. Er það sjón­ar­mið stutt af alþjóð­legum skýrslum og frá­sögnum aðila sem starfað hafa fyrir alþjóð­leg hjálp­ar­sam­tök í Grikk­landi, líkt og fram kom í umfjöllun RÚV í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik 4. febr­úar,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Mynd / Leifur Wilberg

Þrátt fyrir þetta haldi dóms­mála­ráð­herra og settur for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar því fram að þeir sem áður hafi hlotið vernd í Grikk­landi hafi sam­bæri­leg laga­leg rétt­indi og þeir sem fái vernd í öðrum ríkjum.

Hreinasta helvíti

Sema segir að ástand­inu í Grikk­landi sé af þeim sem þar dvelja lýst sem „hrein­asta hel­víti“. Þar sé hvorki að fá atvinnu né hús­næði og ástandið fari versn­andi eftir að Tyrkir opn­uðu landa­mærin fyrir flótta­fólki. Fólkinu mæti miklir for­dómar og dæmi séu um að nýnas­istar taki á móti því með ofbeldi og áreitni. Grísk stjórn­völd ráði ekk­ert við ástandið. „Hvernig í ósköp­unum getum við verið að senda börn í þessar aðstæður?“ spyr hún.

Full­trúar Sólaris fund­uðu með dóms­mála­ráð­herra á mánu­dag um stöð­una í mála­flokknum. Þar lagði Sólaris fram til­lögur fyrir ráð­herra að hafa í huga þegar kemur að umbótum í mála­flokknum. Á meðal þeirra var að stjórn­völd á Íslandi mót­uðu sér heild­stæða stefnu með mannúð að leið­ar­ljósi í mál­efnum fólks á flótta, stöðva þurfi brott­vís­anir barna með flótta­bak­grunn frá Íslandi til Grikk­lands og að hags­munir barna séu hafðir að leið­ar­ljósi þegar ákvarð­anir um mál þeirra séu teknar.

Spurð hvort barna­fjöl­skyld­urnar sem um ræðir eigi sér ein­hverja von bendir hún á að verið sé að reka dóms­mál fyrir hönd fjöl­skyld­unnar frá Írak. Hún segir að það mál verði til lykta leitt jafn­vel þó að fólkið verði flutt úr landi. Sema er sjálf í sam­bandi við þessar fjöl­skyldur. „Maður hefur séð að fólk er mjög reitt yfir þessu. Það sættir sig ekki við þessar aðstæður en forð­ast að tala um fram­tíð­ina fyrir framan börnin sín. Það er for­kast­an­legt að senda fólk aftur í þessar aðstæður í nafni okkar allra. Á meðan staðan er óbreytt í Grikk­landi þá er ekki boð­legt að senda þangað börn.“

Sema veit ekki nákvæm­lega hvaða dag fólkið verður sent úr landi í næstu viku en segir að fram­koma stjórn­valda í garð fólks­ins sé ömur­leg. Hún nefnir sem dæmi fjöl­skyld­una frá Írak. „Þau gerðu ráð fyrir að verða send úr landi í dag [fimmtu­dag] og voru senni­lega búin að kveðja vini sína í skól­anum. Svo er þessu bara frestað. Þetta unga fólk er mjög hrætt um börnin sín og fram­tíð þeirra. Þau munu ekki geta sest að í Grikk­landi. Þeirra bíður ekk­ert þar. Þau eru búin að vera á flótta frá árinu 2017, í þrjú ár, og mögu­lega bíður þeirra ekk­ert annað en fleiri ár á flótta.“

Óboðlegar aðstæður

„Það liggur bara fyrir að það er mat Rauða kross­ins, sem er áreið­an­leg­asta heim­ildin sem við höfum, að það sé óboð­legt að senda fólk til Grikk­lands – hvað þá börn,“ segir Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Hann ræddi útlend­inga­mál stutt­lega við Áslaugu Örn Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra á þriðju­dag­inn á Alþingi. Í máli Áslaugar Örnu kom fram að engum væri lengur vísað til Grikk­lands á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Aftur á móti væri fólk sent til Grikk­lands sem hefði fengið þar stöðu flótta­manna þar í landi.

Helgi segir að þessar skýr­ingar haldi engu vatni. „Einu varn­irnar sem við heyrum fyrir þessum bölv­uðu ákvörð­unum er sú ranga grein­ing að það sé betra að vera í Grikk­landi ef maður er með stöðu flótta­manns en ekki bara hæl­is­leit­andi,“ segir hann. Kjarni máls­ins sé að aðstæður fyrir þennan hóp séu óboð­legar í Grikk­landi og fari hratt versn­andi. „Við höfum við­ur­kennt að ástandið sé svo slæmt í land­inu að við sendum ekki fólk þangað á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Það er aug­ljóst að það eru hags­munir þess­ara barna að vera hér áfram. Hann bendir líka á að UNICEF, Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna, mæli gegn því að fjöl­skyldur séu sendar aftur til Grikk­lands. Það að senda þangað börn gangi gegn alþjóð­legum skuld­bind­ingum okkar.

Helgi segir að meiri­hluta á þingi vanti fyrir því að taka betur á þessum málum. Það eina sem sé í stöð­unni sé að halda þessum málum á lofti og von­ast til að Íslend­ingar kjósi í næstu alþing­is­kosn­ingum fólk á þing sem tekur mála­flokk­inn alvar­lega. Hann vill að Ísland taki við fleira flótta­fólki – en ekki öllum. „Það sem ég vil er að mál þessa fólks fái efn­is­með­ferð hér á landi. Þar með er ekk­ert víst að þetta fólki fái jákvætt svar – þó að það sé lík­legt. Ég vil bara að málin þeirra séu skoðuð.“

Verðmæti fólgin í fleira fólki

Helgi er þeirrar skoð­unar að Evrópa þurfi að taka á vanda flótta­manna sam­eig­in­lega. Hann geti ekki bara verið vanda­mál Ítala og Grikkja. Hann segir það mik­inn mis­skiln­ing að líta á flótta­menn sem byrði á sam­fé­lag okkar. Best væri ef hægt væri að standa fyrir reglu­bundnum fólks­flutn­ingum og gera fólki auð­velt að aðlag­ast sam­fé­lag­inu okkar. Hann bendir á að lönd eins og Banda­ríkin og Kanada, tvö af öfl­ugri ríkjum heims­ins, séu í grunn­inn sam­an­sett af fólki sem er af inn­flytj­endum komið. „Aukinn mann­fjöldi þýðir stærra hag­kerfi. Okkur vantar fólk á Íslandi. Auðvitað getur álagið tíma­bundið orðið meira á inn­við­ina, en til lengri tíma fel­ast verð­mæti í fólki. Þetta snýst um að dreifa álag­inu. Hann segir að póli­tíski vand­inn snú­ist í grunn­inn um útlend­inga­andúð og -ótta, sem þrí­fist í öllum sam­fé­lögum að ein­hverju leyti.“ Hann er þó ekki mjög bjart­sýnn á fram­haldið. „Vandinn er sá að eng­inn hér þarf að horfast í augu við þessi börn þegar þau eru flutt úr landi. Enginn þarf að tala við þau eftir tíu ár í Grikk­landi, eða hvar sem þau verða. Hér ríkir full­komið ábyrgð­ar­leysi í þessum málum.“

Hjálp­ar­sam­tökin Solaris fund­uðu með Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra í vik­unni og afhentu henni þessar til­lögur:

  • Íslensk stjórn­völd verða að móta sér heild­stæða stefnu með mannúð að leið­ar­ljósi í mál­efnum fólks á flótta sem allra fyrst.
  • Stöðva þarf brott­vís­anir barna með flótta­bak­grunn frá Íslandi til Grikk­lands – óháð stöðu þeirra þar. Veita þarf þeim sem fengið hafa vernd í Grikk­landi efn­is­með­ferð hér á landi.
  • Ávallt skal hafa hags­muni barna að leið­ar­ljósi og það sem þeim er fyrir bestu þegar teknar eru ákvarð­anir um mál þeirra.
  • Leggja þarf áherslu á að þau börn sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd á Íslandi ásamt for­eldrum sínum fái að tjá sig í máls­með­ferð­inni.
  • Yfirvöld þurfa að end­ur­skoða notkun sína á Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni og forð­ast að nota hana.
  • Bæta þarf þær aðstæður sem umsækj­endur um alþjóð­lega vernd búa við á Íslandi.
  • Auka þarf aðgengi umsækj­enda um alþjóð­lega vernd og þeirra sem hafa fengið stöðu sína sem flótta­fólk við­ur­kennda að heil­brigð­is­þjón­ustu og annarri nauð­syn­legri þjón­ustu.
  • Rjúfa þarf félags­lega ein­angrun umsækj­enda um alþjóð­lega vernd og þeirra sem hafa fengið stöðu sína sem flótta­fólk við­ur­kennda.
  • Jafna þarf þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd og tryggja að hún sé sú sama óháð því hvort ein­stak­lingar séu í þjón­ustu hjá Útlend­inga­stofnun eða sveit­ar­fé­lögum og sú sama á milli sveit­ar­fé­laga. Þetta á til dæmis við um aðgengi barna og ung­menna að skóla- og tóm­stunda­starfi.
  • Ákvarð­anir íslenskra yfir­valda um mál­efni fólks á flótta þurfa ávallt að vera í sam­ræmi við íslensk lög og alþjóð­legar sam­þykktir eins og Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna, Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu og Samning Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­ar­stöðu flótta­manna.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ