Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ætla að vísa fjórum börnum undir níu ára úr landi

Mohammed Al Deewan og Wedyan Al-Shammari flúðu póli­tískar ofsóknir í Írak. Þau flúðu til Grikk­lands og fengu þar alþjóð­lega vernd en aðstæður voru ömur­legar fyrir fjöl­skyld­una ungu. Útlend­inga­stofnun segir ástandið í Grikk­landi hins vegar nógu gott og ætlar að senda þau til baka.

Eftir að hafa ekið um í nokkurn tíma í stóru iðn­að­ar­hverf­inu blasir kulda­legt fjöl­býl­is­húsið við. Það hefur ekk­ert verið gert fyrir aðkom­una eða sam­eign­ina en inni, í íbúð­inni þar sem Mohammed Al Deewan og Wedyan Al-Shammari hafa búið börnum sínum heim­ili, er hlý­legt og mót­tök­urnar góðar. Börnin þeirra; Ali 9 ára, Kayan 5 ára, Saja 4 ára og hin eins árs gamla Jadin, sitja stillt og prúð á sóf­anum og stara for­vitnum augum á aðkomu­fólkið. Þau svara vina­legu „hæ“ og vinki með feimn­is­legum brosum.

Mohammed og Wedyan yfir­gáfu Írak árið 2017, eftir að hafa sætt póli­tískum ofsóknum. Mohammed sætti m.a. pynt­ingum af hálfu ofbeld­is­sveita með tengsl við hið opin­bera, sem voru á eftir bróður hans. Lög­reglan gerði ekk­ert til að hjálpa. Fjöl­skyldan ákvað að yfir­gefa landið og kom til Grikk­lands, þar sem hún dvaldi í búðum á eyj­unni Samos. Ástandið þar var slæmt; þau deildu litlum gámi með annarri fjöl­skyldu og höfðu engan aðgang að almenni­legri hrein­læt­is­að­stöðu. Wedyan gat ekki farið um ein af ótta við að verða fyrir áreitni hópa ungra manna. Bless­un­ar­lega fengu börnin nauð­syn­lega lækn­is­þjón­ustu, m.a. við astma, en því var ekki að skipta fyrir full­orðna fólkið.

„Ali byrj­aði í skóla en var beittur ofbeldi af kenn­ar­anum sínum“

Sumarið 2018 var hæl­is­um­sókn fjöl­skyld­unnar sam­þykkt og hún fékk dval­ar­leyfi til 2021. Á meg­in­land­inu tók þó lítt betra við; þegar þau höfðu fengið sam­þykkið nutu þau ekki lengur aðstoðar og þurftu sjálf að verða sér úti um hús­næði. Á end­anum leigðu þau litla íbúð með fjórum öðrum fjöl­skyldum. Það var enga vinnu að fá og Mohammed þurfti að slá lán hjá kunn­ingjum til að eiga fyrir mat og öðrum nauð­synjum. Ali byrj­aði í skóla en var beittur ofbeldi af kenn­ar­anum sínum. Hann var ekki sá eini í fjöl­skyld­unni sem upp­lifði miður góðar mót­tökur því Mohammed og Wedyan upp­lifðu ítrekað for­dóma í sinn garð, m.a. í formi ofbeldis. Í eitt sinn var ráð­ist á þau með þeim afleið­ingum að  Wedyan meidd­ist alvar­lega á hendi. Hún fékk enga lækn­is­að­stoð og glímir enn við skerta hreyfi­getu.

Mohammed og Wedyan ákváðu að yfir­gefa Grikk­land og sóttu um alþjóð­lega vernd á Íslandi 28. júní 2019. Þau hafa fengið synjun á efn­is­með­ferð hjá Útlend­inga­stofnun og úrskurð­ar­nefnd um útlend­inga­mál og hefur verið til­kynnt að þau ættu að búa sig undir að vera flutt aftur til Grikk­lands.

Vísa í það sem ætti að vera en ekki það sem er

Í skýrslu Útlend­inga­stofn­unar um mál fjöl­skyld­unnar gengst stofn­unin við því að ótti Mohammeds og Wedyan um að vera send aftur sé á rökum reistur. Þar segir m.a. að sam­kvæmt heim­ildum séu for­dómar, hat­urs­orð­ræða og glæpir í garð fólks af erlendum upp­runa vanda­mál í Grikk­landi. Þá segir einnig að frá­sögn umsækj­anda um erf­ið­leika með að fá hús­næði komi heim og saman við fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar um aðstæður ein­stak­linga sem hlotið hafa alþjóð­lega vernd í Grikk­landi. Á sama tíma vísar Útlend­inga­stofnun ítrekað til laga og reglna sem eiga að tryggja rétt ein­stak­linga sem njóta alþjóð­legrar verndar, þrátt fyrir að nýj­ustu upp­lýs­ingar og fréttir bendi til þess að raun­veru­leik­inn sé allt annar.

„Við úrlausn máls­ins verður byggt á því að umsækj­andi og fjöl­skylda hans njóti í öllum meg­in­dráttum sömu rétt­inda og grískir rík­is­borg­arar til grunn­þjón­ustu, s.s. heil­brigð­is­þjón­ustu, aðgengis að vinnu­mark­aði og menntun í land­inu og geti leitað á náðir félags­mála­yf­ir­valda, ann­arra þar til bærra stjórn­valda í land­inu og eftir atvikum frjálsra félaga­sam­taka í land­inu, telji þau sig þurfa á aðstoð að halda.“

Í Aþenu hefur gömlum ólymp­íu­leik­vangi verið breytt í flótta­manna­búðir. Þar hafa fjöl­skyldur búið sér heim­ili með því að strengja upp gömul lök og sæng­ur­ver eða slá upp tjöldum. Mynd / epa

Þess er hvergi getið að þau hjálp­ar­sam­tök sem starfa í Grikk­landi segja ástandið þar von­laust. Amnesty International, sem Útlend­inga­stofnun vísar m.a. til í rök­stuðn­ingi sínum, og fleiri hafa t.d. kallað eftir því að stjórn­völd í Grikk­landi og öðrum Evr­ópu­ríkjum grípi til aðgerða til að rýma búðir á grísku eyj­unum sem voru hugs­aðar fyrir um fimm þús­und manns en hýsa nú yfir 40 þús­und manns. Samtökin hafa bent á að úrvinnsla mála á eyj­unum hafi taf­ist, ekki síst vegna þess að öll aðstaða fyrir hæl­is­leit­endur á meg­in­land­inu sé sömu­leiðis full­nýtt og vegna þess að önnur ríki hafa neitað að aðstoða Grikki við að bera þung­ann af flótta­manna­straumnum.

Þá er þess heldur ekki getið að sú rík­is­stjórn sem tók við völdum í Grikk­landi í fyrra hefur ítrekað gripið til aðgerða og yfir­lýs­inga sem gagn­rýnendur segja end­ur­spegla fjand­sam­leg við­horf í garð hæl­is­leit­enda. Má þar m.a. nefna nýjar máls­með­ferð­ar­reglur, sem alþjóð­leg sam­tök segja sniðin til þess að geta neitað fleirum á tækni­legum for­sendum.

UNICEF mælir gegn endursendingum til Grikklands

Mynd / Leifur Wilberg

Mohammed og Wedyan hafa leitað til lög­manns en virð­ast hóf­lega bjart­sýn þegar við þau er rætt. Spurð að því hvað þau sjá fyrir sér ef þau verða send aftur til Grikk­lands vill Mohammad ekki svara fyrir framan börnin. Síðar í sam­tal­inu seg­ist hann ekki sjá neina fram­tíð ef þau verða flutt á brott. Hvorki Mohammed né Wedyan tala íslensku eða ensku og þau eru ein­læg­lega þakk­lát fyrir að máli þeirra sé sýndur áhugi. Ali, sem er í grunn­skóla í Hafn­ar­firði, talar og skilur svo­lítið í íslensku og nýtur þess aug­ljós­lega að fá heim­sókn.

Það er Sema Erla Serdar, for­maður Solaris – hjálp­ar­sam­taka fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk, sem leiðir sam­talið við Mohammed og Wedyan. „Þetta er óþol­andi,“ segir hún eftir á um þá stað­reynd að stjórn­völd hafi ekki breytt afstöðu sinni til Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar og sér­stak­lega barna á flótta. Að í hvert ein­asta sinn sem flytja eigi börn á brott þurfi að koma til mót­mæla, und­ir­skrifta­safn­ana og ekki síst fjöl­miðlaum­fjöll­unar til að ráða­menn finni mann­úð­ina í sjálfum sér.

„Það vita það allir að ástandið í Grikk­landi er ekki boð­legt,“ segir hún um rök­semda­færslu Útlend­inga­stofn­unar og bendir m.a. á umfjöllun Kveiks um stöðu barna á flótta, þar sem fram kom að UNICEF – Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna mælir ein­dregið gegn því að börn séu send aftur til Grikk­lands. Aðeins helm­ingur barna fái skóla­vist og veru­legar líkur séu á því að fólk muni búa við afar bágar aðstæður. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá stofn­unum SÞ eru vís­bend­ingar uppi um að fólk eigi erfitt með að nýta þau úrræði sem eigi að standa til boða og aðlag­ast grísku sam­fé­lagi. Til dæmis eiga færri en 10% flótta­manna banka­reikn­ing. Þá stendur atvinnu­leysi í land­inu í 17%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina