LandiðBæjarstjórn Vestmannaeyja áhyggjufull vegna uppbyggingar á Skerjafirði5. maí 2023 Bæjarstjórn Vestmannaeyja lýsir yfir áhyggjum vegna uppbyggingar á Skerjafirði. Bæjarstjórn Vestmannaeyja tók fyrir umræðu um samgöngumál á fundi sínum í gær en þar var meðal annars rætt um fyrirætlanir ríkisins og Reykjavíkurborgar um að hefja undirbúning íbúðaruppbyggingar í Skerjafirði. Frá þessu er sagt á eyjafrettir.is. Eftirfarandi ályktun sendi bæjarstjórnin frá sér vegna málsins: Bæjarstjórn Vestmannaeyja lýsir yfir áhyggjum vegna fyrirhugaðrar...
InnlentKristinn um „ofsóknirnar“ á hendur Assange: „Hvað gera leiðtogarnir í Reykjavík?“2. maí 2023 „Guðni forseti ávarpaði þingmenn Evrópuráðsins í liðinni viku í Strassborg en eins og kunnugt er verður leiðtogafundur ráðsins í Reykjavík 16.-17. maí n.k. Forsetinn svaraði líka spurningum og spurði þýski þingmaðurinn Andrej Hunko forsetann hvað leiðtogafundurinn myndi gera í málefnum Julian Assange sem hefur núna verið í rúm fjögur ár í fangelsi í Bretlandi að berjast gegn framsali til Bandaríkjanna...
InnlentHæðist að 1. maí kaffi Valhallar: „Hvað er venjulegt verkafólk að gera þar? Kyssa á vöndinn?“2. maí 2023 Björn Birgisson hæðist að 1. maí kaffi Sjálfstæðisflokksins og spyr hvort verkalýðsráðið í Valhöll sé „með fullu ráði“. Samfélagsrýnirinn beitti, Björn Birgisson í Grindavík skrifaði færslu í dag þar sem hann hæddist að 1. maí kaffi Sjálfstæðisflokksins í Valhöll. Birtir hann við færsluna ljósmynd af Guðlaugu Þór Þórðarsyni, umhverfisráðherra, klæddan í svuntu yfir jakkaföt. Segir Björn að meðal annars að...
InnlentGunnar Smári hjólar í Willum: „Sækir sér smá athygli út á harm annarra“26. apríl 2023 Gunnar Smári Egilsson er ævareiður út í Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Ástæðan er sú að Sósíalistaforingjanum finnst hann vera að „sækja sér athygli út á harm annarra.“ Sósíalistaforinginn Gunnar Smári skrifaði stutta en harðorða færslu á síðu Sósíalistaflokksins á Facebook. Hlekkjar hann frétt mbl.is um viðbrögð heilbrigðisráðherra við fregnum af ópíóíðum faraldri sem nú geisar um landið en Mannlíf fjallaði...
InnlentDagur svarar Sjálfstæðisflokknum: „Já, það er verkefni að glíma við fjármálin“24. apríl 2023 „Mér finnst býsna holur hljómur í gagnrýni Sjáflstæðiflokksins á fjármál borgarinnar. Staða dagsins í fjármálum sveitarfélaga einkennist af áhrifum verðbólgu og vanfjármögnunar ríkisins á málaflokki fatlaðs fólks. Í þeirri umræðu sem fram fer um hana má þó ekki gleyma því grettistaki sem lyft hefur verið í fjármálum borgarinnar – og margra annarra sveitarfélaga – allt frá hruni.“ Svo hljóðar byrjun...
InnlentSegir Bjarna Ben í sérkennilegri stöðu: „Hver fellur áður en tjaldið fellur?“16. apríl 2023 Björn Birgisson veltir fyrir sér sérkennilegri stöðu sem Bjarni Benediktsson er kominn í varðandi dómsmálarastöðuna. Í nýrri færslu spáir hinn skeleggi samfélagsrýnir, Björn Birgisson, í þá erfiðu stöðu sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra virðist kominn í innan Sjálfstæðisflokksins. Guðrún Hafsteinsdóttir, fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis hefði átti að taka við Jóni Gunnarssyni sem dómsmálaráðherra, í mars síðastliðnum, líkt og lofað var við endurnýjun...
InnlentDorrit hjólar í Benjamin Netanyahu: „Þeim er sama um allt nema sjálfa sig!“13. apríl 2023 Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú Íslands formælir Ísraelsstjórn í nýlegri færslu á Instagram. Segir hún forsætisráðherra landsins gera hvað sem er til að halda völdum. Dorrit, sem sjálf er ísraelsk, birti ljósmynd frá mótmælum í Ísrael og skrifar harðorðan pistil við hana þar sem hún formælir Benjamin Netanyahu og stjórn hans, sem farið hafa að margra mati langt yfir strikið gagnvart...
LandiðSegir Sjálfstæðisflokkinn hafa hækkað laun formanns bæjarráðs Árborgar um 210 prósent12. apríl 2023 Tómas Ellert Tómasson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Árborg segir að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi í lok síðasta kjörtímabils í sveitarfélaginu, kosið gegn því að bæjarstjórnin gengi til samstarfs við KPMG um árangursstjórnun í fjármálum Árborgar. Sjá einnig: Selfoss er á barmi gjaldþrots: „Ég geri ráð fyrir að það verði einhver hagræðing“ Pistill sem Tómas Ellert Tómasson skrifaði, birtist í gær í sunnlenska.is...
LandiðSelfoss er á barmi gjaldþrots: „Ég geri ráð fyrir að það verði einhver hagræðing“11. apríl 2023 Sveitarfélagið Árborg er á barmi gjaldþrots samkvæmt frétt Vísis. Í frétt Vísis segir að skuldir sveitafélagsins Árborgar hafi vaxið mikið í verðbólgunni og að frost á fasteignamarkaði hafi komið niður á tekjum sveitarfélagsins. Þar kemur einnig fram að veltufé sé neikvætt upp á 76 þúsund krónur á hvern íbúa. Bæjarstjóri Árborgar, Fjóla Kristinsdóttir, segir að nauðsynlegt sé að gera eitthvað...
InnlentGunnar: „Gjaldþrota stjórnmálafólk grípur alltaf til menningarstríðs til að fela eigin vangetu“11. apríl 2023 Sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson skýtur bylmingsfast á Samfylkinguna með því að birta 17 ára gamla auglýsingu frá flokknum. Gunnar Smári spyr af hverju almenningur á Íslandi hafi misst trú á stjórnmálum, í nýrri færslu á Facebook-síðu Sósíalistaflokksins í dag. Með þeim vangaveltum birtir hann 17 ára gamla auglýsingu frá Samfylkingunni þar sem flokkurinn lofar öllu fögru varðandi Reykjavík. Eitthvað sem...
InnlentVill gera tannréttingar fríar: „Erum enn að mismuna börnum eftir efnahag foreldra þeirra“11. apríl 2023 Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar vill að tannréttingar verði gerðar ókeypis fyrir börn og biður um þrýsting svo það geti orðið að veruleika. Ágúst Ólafur Ágústsson Þingmaðurinn fyrrverandi skrifaði færslu á Facebook fyrir stundu þar sem hann minnist þess að í dag eru 10 ár liðin frá því að þáverandi velferðaráðherra og þáverandi formaður Tannlæknafélags Íslands skrifuðu undir samninga...
InnlentSegir pólitíska spillingu aldrei rannsakaða á Íslandi: „Þetta eru bara örfá dæmi“10. apríl 2023 Atli Þór Fanndal fer mikinn í færslu á Facebook þar sem hann ber saman pólitíska spillingu á Íslandi og erlendis. Atli Þór Fanndal Færsluna skrifar Atli Þór, sem er framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International, við frétt BBC um handtöku eiginmanns Nicolu Sturgeon vegna gruns um fjármálamisferli í starfi fyrir Skoska Þjóðarflokkinn. Mannlíf fjallaði um málið fyrir páska. Atli Þór telur upp...