Björn Birgisson hæðist að 1. maí kaffi Sjálfstæðisflokksins og spyr hvort verkalýðsráðið í Valhöll sé „með fullu ráði“.
Samfélagsrýnirinn beitti, Björn Birgisson í Grindavík skrifaði færslu í dag þar sem hann hæddist að 1. maí kaffi Sjálfstæðisflokksins í Valhöll. Birtir hann við færsluna ljósmynd af Guðlaugu Þór Þórðarsyni, umhverfisráðherra, klæddan í svuntu yfir jakkaföt. Segir Björn að meðal annars að það hafi gleymst að benda á að „enginn alvöru bakari setur svuntuna utan yfir stakan jakkafataakka og bakar með hendur í vösum“.
„Sjallar eru gjarnan með 1. maí kaffi í Valhöll.
Svokallað verkalýðsráð flokksins sér um það.Þangað mæta ráðherrar og þingmenn flokksins og fáeinir aðrir.Svona til að sýna að „Stétt með stétt“ sé enn í fullu gildi, en ekki bara úrelt blekkingarhjal.Þar er boðið upp á vöfflur með rjóma.Í gær kom í ljós að hægt er að nota Ásmund Friðriksson í vöfflubaksturinn og tilraun var gerð til að sýna að sama mætti segja um Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfisráðherra og fallkandidat í formannskjöri og því var sett á hann svunta.Það gleymdist alveg að benda á að enginn alvöru bakari setur svuntuna utan yfir stakan jakka eða jakkafatajakka og bakar með hendur í vösum!Myndin er að síðu Heiðu Þórðar, en hún er dyggur fylgismaður Guðlaugs Þórs og vildi væntanlega sýna að hann gæti alveg bakað vöfflur, ekkert síður en Ásmundur Friðriksson!Verkalýðsráð í Valhöll með fullu ráði?“

Þó nokkrir svara Birni og sumir taka þátt í hæðninni. Elías þar á meðal: „Það er svo sem viðburður út af fyrir sig að sjá Sjálfstæðismenn með hendur í eigin vösum.“
Halldór nokkur tók upp hanskann fyrir Sjálfstæðisflokkinn í sinni athugasemd: „Ég var þarna Björn. Fullt hús af fólki af öllum stéttum. Guðlaugur Þór stóð sig vel í bakstrinum svona líka flott klæddur.“
Þessu svarar Jóhanna nokkur: „Hvað er venjulegt verkafólk að gera þar? Kyssa á vöndinn?“































Athugasemdir