Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir Sjálfstæðisflokkinn hafa hækkað laun formanns bæjarráðs Árborgar um 210 prósent

Segir Sjálfstæðisflokkinn hafa hækkað laun formanns bæjarráðs Árborgar um 210 prósent
Tómas Ellert Tómasson

Tómas Ellert Tómasson, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi í Árborg segir að bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi í lok síð­asta kjör­tíma­bils í sveit­ar­fé­lag­inu, kosið gegn því að bæj­ar­stjórnin gengi til sam­starfs við KPMG um árang­urs­stjórnun í fjár­málum Árborgar.

Sjá einnig: Selfoss er á barmi gjald­þrots: „Ég geri ráð fyrir að það verði ein­hver hag­ræð­ing“

Pistill sem Tómas Ellert Tómasson skrif­aði, birt­ist í gær í sunn­lenska.is en þar bendir hann á tví­skinn­ungs­hátt Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem sagði frá slæmri fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­lags­ins í fréttum í gær. Í pistl­inum bendir Tómas einnig á að í stað þess að ráð­ast strax í þá vinnu sem búið var að sam­þykkja í bæj­ar­stjórn, eftir sam­starfið við KPMG, hafi það verið fyrsta verk nýs bæj­ar­stjórn­ar­meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks­ins að hækka laun for­manns bæj­ar­ráðs um heil 210 pró­sent, ofan á önnu laun og þókn­anir.

Pistil­inn má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Falskur tónn sleg­inn í Árborg

Fyrir ári síðan eða í lok sl. kjör­tíma­bils var sam­þykkt á bæj­ar­stjórn­ar­fundi að ganga til sam­starfs við KPMG um árang­ur­stjórnun í fjár­málum sveit­ar­fé­lags­ins. Bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins kusu gegn til­lög­unni og ósk­uðu eftir frestun máls­ins. Nú kveður við annan tón, sem betur fer.

Sveit­ar­fé­lagið Árborg hefur vaxið mikið á und­an­förnum árum og stefnir í áfram­hald­andi vöxt vegna eft­ir­spurnar frá nýjum íbúum og áforma land­eig­enda um upp­bygg­ingu.

Miklum vexti fylgja ýmsar áskor­anir fyrir sveit­ar­fé­lagið í fjár­málum. Víðtæk upp­bygg­ing á nauð­syn­legum fjár­frekum innviðum og marg­vís­leg þjón­usta og vax­andi umsvif er allt hluti af þeim áskor­unum sem takast þarf á við stjórn fjár­mála hjá sveit­ar­fé­lag­inu.

Þáver­andi og núver­andi efna­hags­á­stand með mik­illi og vax­andi verð­bólgu gerir enn flókn­ari þá áskorun að stýra fjár­málum sveit­ar­fé­lags á borð við Árborg með sem far­sælustum hætti. Af þeim sökum gékk þáver­andi bæj­ar­stjórn­ar­meiri­hluti Svf. Árborgar til sam­starfs við KPMG um árang­ur­stjórnun í fjár­málum sveit­ar­fé­lags­ins.

Í stað þess að ráð­ast strax í þá vinnu sem að búið var að sam­þykkja í bæj­ar­stjórn að þá var fyrsta verk nýs bæj­ar­stjórn­ar­meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks­ins að hækka laun for­manns bæj­ar­ráðs um 210%, ofan á föst bæj­ar­full­trúa­laun og þókn­anir fyrir for­mennsku í fasta­nefnd og nefndum byggða­sam­lag­anna. Laun og þókn­anir sem skila for­manni bæj­ar­ráðs yfir einni og hálfri milljón króna á mán­uði eða 18mkr. á ári.

Vonandi fá íbúar að sjá á íbúa­fundi á morgun að ein sparn­að­ar­til­lagan feli í sér að for­maður bæj­ar­ráðs dragi til baka sjálftök­una og end­ur­greiði íbúum sveit­ar­fé­lags­ins oftök­una. Annað er að slá falskan tón í ráð­deild­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil